Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Page 8

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Page 8
Tímarit Mdls og menningar háskólum, jafnvel kaþólskum einsog í Freiburg í Sviss, að grundvallaratriðin í þessum tveimur kenningum séu í raun réttri hin sömu; þar komi að menn standi á sama punktinum. Eg lét að vísu skírast til kaþólsku en vildi aldrei ganga í Kommúnista- flokkinn. Eg vildi frjáls mega velta málefnunum fyrir mér með þeim for- sendum sem ég hafði á valdi mínu; lét aldrei rígskorðaðar heimspekigreinar binda mig. í mörgum tilfellum hef ég snúist öndverður móti þessum hug- myndum við meiri þroska, og við umbreyting tímanna, einsog Ijóslega kem- ur fram í hugleiðingum mínum um stórasannleik, sem er efst í ritgerðasafninu, Upphaf mannúðarstefnu. Þar tekur steininn úr, sem kallað er. Einsog Halldórs er von og vísa er hann hér ekki að eyða þremur högg- um á eina flugu, í einu höggi slær hann þrjár. 1) Hann setur jafnaðarmerki milli marxisma og stalínisma. 2) Hann kemur marxismanum í flatsæng með guðfræði og kirkjutrúarbrögðum. 3) Hann falsar sína eigin sögu. Ef Halldór var marxisti einsog hann segir, vaknar spurningin: hverskonar marxisti var hann? Þetta væri verðugt verkefni fyrir vel menntaða grúskara; Peter Hallberg og fleiri sem um Halldór hafa skrifað leiða þetta hjá sér með öllu. Hér verður ekki farið í saumana á miklu efni, aðeins stiklað á stóru, því sem nokkurnveginn liggur í augum uppi. Ekki held ég að það sé ofsagt hjá Halldóri að hann hafi „samsamað sig mjög sterklega kaþólskri þeólógíu á tímabili í æsku“. En hitt er hrapallegt misminni, ef ekki vísvitandi blekking, að samsömun hans við boðskap „hinna verstti manna“ hafi verið eitthvað minni. Sömuleiðis að hún hafi verið minni en annarra. Svo virðist sem Halldóri hafi ungum verið rík þörf á andlegum haldreipum af stærri gerðinni, nokkurskonar stórasannleiksöryggi í ótryggum heimi. Hann sveiflast milii kennismiða af ólíkasta tagi og er ekki fyrr laus undan einum en hann beygir sig í lotningu fyrir átoríteti þess næsta. Dágóðan frið fær hann ekki fyrren í kaþólskunni, aldagömlu og steinrunnu hugmyndakerfi sem gat veitt ósjálfstæðum og trúhneigðum unglingi efalaus svör við þeim spurning- um sem hann réð ekki við sjálfur. Það er tilgáta mín að þetta skeið hafi ráðið úrslitum um andlega þróun Hall- dórs, hann hafi þarna vanist á þau þægindi sem fylgja gagnrýnislausri trú á visku annarra og ekki tekist að brjótast útúr þessum lamandi lúxus þrátt fyrir virðingarverðar tilraunir. Þó hann hafi nú árum saman verið að telja lesendum sínum trú um að hverskyns „fagnaðarerindi“ séu með öllu útúr hans sögu, geisl- ar samt ennþá af honum gömul vantrú á eigin hugsun og oftrú á annarra. Eða hvernig stendur á því að hann þarf að láta „menn sem hafa stúderað heimspeki á færustu heimspekiháskólum“ segja sér að grundvallaratriðin í kaþólsku og marxisma séu í raun réttri hin sömu? Getur hann ekki komist að eigin niður- stöðu í þessu máli, verseraður í hvorutveggja einsog hann segist vera? 254
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.