Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Síða 123

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1979, Síða 123
sé að leita skýringa á þjóðfélagsgerð hvers tíma (sjá t. d. Israel 1973, bls. 66). Þess er einnig að vænta að slík bók beri merki þess sjónarmiðs að fræðileg um- f jöllun um félagsleg fyrirbæri skýri þau ekki einungis og greini, heldur eigi um- fjöllunin sjálf þátt í sköpun og mót- un þessara fyrirbæra (sjá t. d. Israel 1972, bls. 140). Af sjálfu leiðir að ekki verða gerðar hlutleysiskröfur í pólitískum anda til Joachims Israels, en þeim mun harðari um fræðimannsleg vinnubrögð og heiðarleika í allri fram- setningu, þ. e. að hann uppfylli sjáifur þau skilyrði sem hann hefur svo ske- legglega sett fram annars staðar. Ef til vill má það teljast galli á bók Israels, Samfélagið, sem hér á einkum að vera til umræðu, að þeim vanda- málum, sem ég hef tæpt á hér að fram- an, eru þar gerð lítil skil. Það er til afsökunar að bókin er ætluð ungu fólki og þarf að vera aðgengileg í samræmi við það. A hitt ber einnig að líta, að sú staðreyndamergð um þjóðfélag lesand- ans, sem bókin er hlaðin af (og er einn höfuðkostur hennar), hefur óhjákvæmi- lega ýtt tii hiiðar öðrum tegundum efnis. Ef gæta á sanngirni (og það viljum við væntanlega öll gera?) ber að dæma verk í ljósi markmiða skapanda þess eða höfundar. Höfuðmarkmið þessar- ar bókar virðist vera að vekja unga les- endur til umhugsunar og umræðu um nokkur helstu átakasvið þjóðfélagsins, jafnframt því að koma að eins miklum staðtölulegum fróðleik og stærðarmörk bókarinnar leyfa. Undirtitill bókarinnar, fjölskyldan — vinnan — ríkið, gefur til kynna að höfundur hefur orðið að velja og hafna, þótt að vísu megi koma flestum hlumm að undir merkjum þess- ara hugtaka. í formála hinnar dönsku XJmsagnir um bcekur útgáfu bókarinnar segir að félagsfræði hafi oft yfir sér blæ óraunveruleika. Höfundur ætlar ekki að láta saka sig um slíkt. Og hvernig hefur þá til tek- ist? Því verður ekki svarað í fáum orð um. Aður en lengra er haldið er þó rétt að geta þess að þýðingin og hinar umfangsmiklu staðfærslur efnisins, sem á stundum hafa leitt til langra endur- skrifta, hafa farið Auði Styrkársdótmr þannig úr hendi að henni er sómi að. A frummálinu hefur bókin bæði kosti og gaila. Hvorir tveggja skila sér í ís- lensku útgáfunni, en að mínu mati er hlutfallið a. m. k. ekki óæskilegra að íslenskun lokinni. Eitt erfiðasta við- fangsefni, sem fræðimenn geta valið sér (og jafnframt eitt hið mikilvæg- asta), er að skrifa um starfssvið sitt fyr- ir unglinga. Fyrir fullorðinn lesanda — ekki síst ef hann ber nokkurt skynbragð á viðfangsefnið, og það gildir sem bet- ur fer um marga þegar félagsfræði á í hlut — er auðvelt að henda á lofti andlitlar upplýsingar um nauðahvers- dagsleg fyrirbæri, og útlistanir á því sem hverjum manni er augljóst. Ef til vill hafa höfundur og þýðandi einstöku sinnum gengið of langt í einföldunar- átt, og ef til vill háir það bókinni að henni virðist ætlað að vera gjaldgengt lesefni hvenær sem er á 4 ára tímabili í ævi unglinga sem eru í örum þroska. Ef til vill er líka auðveldara að benda á milliveginn en að rata eftir honum. Þrátt fyrir einfalt málfar er bókin þess eðlis að hún gerir verulegar kröfur til þeirra sem vilja nota hana. I hönd- um kennara sem hefur aflað sér þjóð- félagsfræðilegrar þekkingar genrr hún reynst hið nýtasta kennslugagn. Hér hef ég ekki síst í huga heimspekilegar og þekkingarfræðilegar forsendur Joachims TMM 24 369
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.