Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 18

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 18
Tímarit Máls og menningar Bólivíska ríkisstjórnin hafði líka sent sína fulltrúa á ráðstefnuna, tvær konur sem lýstu því yfir með miklu brambolti að Bólivía hefði öllum öðrum löndum fremur stuðlað að jafnrétti karla og kvenna — þær fóru á þessa ráðstefnu í þeim tilgangi einum að segja frá þessu. Það kom í ljós að engin önnur kona búsett í Bólivíu var boðin til óopinberu ráðstefnunnar, hinar sem ég hitti bjuggu allar í Mexíkó. Af blaðalestri hafði ég fengið þá hugmynd að þarna yrðu tveir aðskildir stéttahópar: ríkisstjórnarfulltrúarnir yrðu upp til hópa yfirstéttarkonur en á hinu þinginu mundi ég aðeins hitta konur eins og mig, af alþýðustétt, sem ættu við sams konar vandamál að stríða og ég. Ég hlakkaði mikið til. „Caramba'1,1 sagði ég við sjálfa mig, „hér á ég eftir að hitta verkamanna- og bændakonur úr öllum heiminum. Þær eru áreiðanlega alveg eins og við, kúgaðar og ofsóttar.“ A hótelinu kynntist ég strax stúlku frá Ecuador og með henni fór ég á ráðstefnuna. En ég komst ekki fyrr en á mánudag, og allt hafði byrjað á föstudegi. Við komum inn í mjög stóran sal sem rúmaði 4 — 500 konur. Stúlkan frá Ecuador sagði við mig: „Komdu félagi, komdu hingað inn. Hérna er fjallað um brýnustu vandamál kvenna. Hérna er það sem við eigum að taka þátt í um- ræðum.“ Oll sæti voru þegar setin svo við settumst í tröppurnar fullar af eftirvænt- ingu. Við höfðum misst af heilum degi og vorum ákafar að vinna það upp og heyra hvað svo mörgum konum lægi á hjarta sem hefðu safnast saman á einum stað, hvaða áhrif alþjóðlega kvennaárið gæti haft, hvaða vandamál væri brýnast að leysa. Þetta var í fyrsta skipti sem ég tók þátt í nokkru þvílíku, og ég hélt að ég mundi heyra margt og mikið sem gæti orðið mér að gagni í lífi mínu, vinnu og baráttu. Jæja, en meðan ég sat þarna stóð bandarísk kona upp og gekk að hátalar- anum; hún var mikið máluð i framan og með alls konar dinglumdangl um hálsinn, og hún sagði yfir salinn án þess hún tæki hendur úr vösum: „Eg hef beðið um orðið til aö segja skoðun mína í örstuttu máli: Hún er sú að karlmenn ættu að hlaða heiðursmerkjum á okkur vændiskonurnar fyrir að leggja á okkur að sofa hjá svo mörgum þeirra.“ Þessu var tekið með húrrahrópum og lófataki. Jæja, en við vinkona mín stóðum upp og fórum. Þetta var nefnilega fundur fyrir mörg hundruð vændiskonur, svo við fórum i annan sal. Þar þinguðu 1 Spænskt blótsyröi. 272
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.