Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Blaðsíða 73
Annað Indókínastríð Bandaríkjamantia
Jean-Michel Vinot, annar frönsku læknanna sem voru i fylgd með mér nú,
sagði:
Eg man að heil sjúkradeild af smábörnum dóu hér á einni viku, hér var
ekkert. Nú eiga þeir starfandi spítala og lyfjastofu sem er nokkuð vel búin.
Alvarlegasta sjúkdómsdlfelli sem ég get fundið nú er barn með heila-
himnubólgu, og hún er ekki í lífshættu.
Þegar við vorum hér í fyrra taldist dr. Vinot svo til að áttatíu prósent kvennanna
í Kompong Speu hefðu misst tíðahring sinn, beinlínis vegna þess álags sem lífið
var undir stjórn sem reyndi að bræða saman langsóttan og afbakaðan maóisma
og barbaríska þjóðrembu og fortíðarhyggju og gerði ekki aðeins fjölskylduna
útlæga heldur um leið allar tilfinningar og tjáningu ástar og sorgar. Nú var
yfirfull fæðingardeild á spítalanum. „Þessi breyting er ótrúleg,“ sagði dr. Vinot.
Ian Hopwood hjá UNICEF hefur reiknað út að 912.000 börn séu nú í skólum
i allri Kampútsíu. „Margir hinna 19.000 kennara hafa aldrei kennt áður,“ segir
hann, „en rikisstjórnin hefur tekið upp tveggja mánaða skyndinámskeið, og það
virðist hafa tekist furðu vel.“ I ágúst í fyrra fann Jim Howard fimmtíu veik og
langsoltin börn í húsi í Phnom Penh sem hafði verið breytt í svínastíu. A tíu
mánuðum hefur þessu húsi verið breytt í stærsta barnaskóla landsins, með
skrifborðum, pappír, blýjöntum, leikföngum, fótboltum o. s. frv. fyrir erlent,
einkum breskt söfnunarfé.
Þegar við komum til Phnom Penh í fyrrasumar stóð borgin nánast eins og
hún hafði verið skilin eftir, ruslahaugar þar sem lítil munaðarlaus börn reyndu að
draga fram lífið. A einhvern undarlegan hátt fann maður fyrir viðurvist dauðans
í þessari röku kyrrð; þetta hafði verið borg meira en tveggja milljóna manna og
öllum hafði þeim verið skipað frammi fyrir byssuhlaupum að þramma til sveita
og ef til vill hafði helmingur þeirra nú týnt lífi.
Nú eru íbúar Phnom Penh rúmt hundrað þúsund. Þar er lífleg umferð,
verslanir, veitingastaðir, brúðkaup, tvö hávaðasöm markaðstorg, rafmagn, vatn,
vefnaðarverksmiðja, lyfjaverksmiðja, pagóður enduropnaðar, símar, tvær
strædsvagnaleiðir, jasshljómsveit, knattspyrnulið og gjaldmiðill.
Enda þótt við sæjum engin merki þeirra hungursneyðar sem blasti við í
fyrrasumar, sem landsmenn minnast nú sem „hinna miklu dauðamánaða“,
sáum við merki ískyggilegrar vannæringar á börnum. Á járnbrautarstöðinni í
Battambang sópuðu grindhoruð börn vagnana innan með höndunum og fengu
hrísgrjónaútsæði að launum. Þau hafa lifað af og þau geisla af orku sem virðist
327