Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 72
Tímarit Máls og menningar Penh, sagði við mig: „Fyrir utan smáhnupl eru sögurnar um að hjálpargögnum hafi verið stungið undan komnar utan frá og eru ekkert annað en áróður og vitleysa. Hví skyldu Víetnamar gefa með annarri hendinni og taka allt aftur með hinni?“ Jafnvel Abramowitz ambassador hefur neyðst til að láta hafa eftir sér að engar sannanir séu fyrir því að Víetnamar séu að fremja „lævíslegt þjóðarmorð“. Þær fullyrðingar að Rússar hafi heft birgðasendingar stangast á við nýjustu yfirlitstölur bandaríska utanríkisráðuneytisins þar sem Sovétrikin eru talin eiga stærstan hlut af matar- og birgðasendingum til Kampútsiu. En þessi áróður, í smáskömmtum dag frá degi, hafði haft tilætluð áhrif. Ekki síst á þá fjölmörgu Breta sem gefið höfðu til Oxfam og annarra hjálparstofnana sem starfa á yfirráðasvæði Phnom Penh-stjórnarinnar, en margir þeirra urðu mjög von- sviknir. Ný heimsókn til Kampútsíu Ég fór aftur til Kampútsíu í júlímánuði s. 1. í fylgd Jim Howard, sem hóf aðgerðir Oxfam í Kampútsíu, og tveggja franskra lækna sem voru einu vest- rænu læknarnir í landinu þegar ég var þar í fyrrasumar. Ég hafði beðið þá að koma með mér því ég áleit að aðeins þeir sem hefðu kynnst hungursneyðinni sem þá ríkti í Kampútsíu gætu metið rétt núverandi ástand. Svo mörg vandamál blasa við því þjóðfélagi þar sem flestir innri máttarviðir eru brostnir, þar sem allar fjölskyldur sem ég mætti áttu á bak að sjá a. m. k. sex nánum ættingjum, að endurreisnarstarfið væri þróuðustu þjóðfélögum um megn. Þetta er bændaþjóðfélag þar sem menntamenn og iðnaðarmenn hafa verið stráfelldir. Til dæmis hafði Heilbrigðisráðuneydð á að skipa einum ráð- herra í fyrra ásamt einum fulltrúa og gömlum Renault-bíl með ónýtum raf- geymi og engum hjólbörðum. Nú hefur starfsmönnum að vísu fjölgað um þrjá, en verkefnin eru yfirþyrmandi og ráðuneytið er mjög gagnrýnt af erlendum starfsmönnum fýrir hvað það komi litlu í framkvæmd. I ágúst í fyrra var þannig komið fyrir spítalanum í Kompong Speu sem fellur undir þetta ráðuneyti, að þar voru engin 'lyf, engar umbúðir, engin rúm, engar ábreiður. Það var enginn spítali, í eyðileggingaræði sínu höfðu Rauðu kmerarnir lagt hann í rúst, af engu minni verklagni en þeir höfðu rúið kaþólsku dómkirkjuna í Phnom Penh, þar sem ekki var steinn eftir skilinn. Næst á eftir Battambang-héraðinu var Kompong Speu ef til vill sá staður í Kampútsíu sem harðast varð úti í villimannlegum ráns- og eyðingarherferðum Rauðu kmeranna I ágúst í fýrra var þarna aðeins einn víetnamskur læknir sem vildi endilega sprauta á okkur dettóli því þarna geysaði kólera, og Dr. 326
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.