Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 167
Umsagnir um bakur
Hér er hróflað við helgisögn enda hefur
komið í ljós að ekki eiga allir lesendur
Kvæðafylgsna auðvelt með að sætta sig
við þetta. En það væri misskilningur að
halda að þessi niðurstaða rýri gildi
kv'æðisins. Satt að segja er hætt við að
þjóðsagan um ævarandi ástir Jónasar og
Þóru hafi í kennslustofum oft og einatt
skyggt á kvæðið sjálft. Með allri virðingu
fvrir minningu Þóru Gunnarsdóttur á
hún svo sem ekki meira erindi i bók-
menntasöguna en sú jómfrú Jessen frá
Slagelse sem virðist hafa orðið fyrsta til-
efni þess að Jónas orti Efter Assembléen.
Stðasti hluti ritgerðarinnar um Ferða-
lok fjallar ekki nema í orði kveðnu um
aldur kvæðisins. Hannes viðrar þar þá
skemmrilegu hugmynd að með nokkrum
hætti séu Ferðalok andsvar við öðru frægu
ástarkvæði frá 19du öld, Stgrúnarljóðum
Bjarna Thorarensen. Svo mikið er víst að
kvæði Jónasar birtir viðhorf til ástarinnar
gerólikt þeirri dauðadýrkun sem kemur
fram i kvæði Bjarna. Hannes lætur i það
skina að hann eigi fleiri röksemdir í
pokahorninu fvrir niðurstöðu sinni en
þær sem fram koma og er best að láta alla
rökræðu bíða þess að hann geri efninu
tæmandi skil, en hér kemur enn að þeim
samleik textanna sem Hannes hefur svo
næmt auga fyrir.
Kvæðafylgsni leggja drjúgan skerf til
rannsókna á kveðskap Jónasar Hallgríms-
sonar. Það er vonandi ekki eintóm ósk-
hyggja þegar manni finnst Hannes fara
með slikum hætti á svig við ýmis megin-
atriði að undir hljóti að búa áætlun um
frekari glimu við efnið.
Vésteinn Ó/ason.
DRÖGAÐSÖGU
KOMMÚNISTAFLOKKSINS
Skömmu fyrir jólin 1979 gáfu Sagnfræði-
stofnun Háskóla Islands og Menningar-
sjóður út bókina Kommúnistahreyfmgin á
ís/andi 1921 —1934 . 5. bindi i ritröðinni
Sagnfrceðirannsóknir. Höfundur bókarinn-
ar er Þór Whitehead sagnfræðingur og
rannsóknarlektor við heimspekideild H. I.
Upphaflega var ritgerð sú sem er í bókinni
skrifuð sem ritgerð til B. A.-prófs í sagn-
fræði frá H. í. 1970. Höfundur hefur yflr-
farið textann og breytt litils háttar. Einnig
hefur hann skotið inn allmörgum neðan-
málsgreinum, ekki sist til að greina frá
rannsóknum sem síðar hafa verið gerðar
og heimildum sem hann hetur kvnnt sér
síðar.
Fjöldamargir sagntræðinemar hafa á
undanförnum árum leitað fanga i sögu
róttækrar hreyfingar til að finna efni i
prófritgerðir sinar. Nokkrar þessara rit-
gerða hafa verið gefnar út. Þær eru flestar
fjölritaðar en ritgerð Þórs er prentuð með
vönduðum frágangi, þ. á. m. mörgum
mvndum. Ekki trevsti ég mér til að meta
hvort ritgerð Þórs stendur framar hinum.
Hún er sennilega lengst og hún tekur til
meðferðar fleiri efnisþætti en nokkur
önnur enda er hún á köflum ágripskennd.
Það er þó álitamál hvort það er ekki ein-
mitt kostur. A þann hátt hefur a. m. k.
tekist að gera fróðlegri bók um margt
heldur en ef hún hefði einvörðungu fjall-
að um afmarkaða þætti. Með þessum
hætti flýtir hún fyrir þeim, sem hafa áhuga
á að kanna sögu KFI frekar, að komast inn
i viðfangsefnið. Þeir stúdentar sem farið
hafa nánar i saumana á einstökum atrið-
421