Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Síða 72

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Síða 72
Tímarit Máls og menningar pallborðið og módernísk verk sækja skýringar sínar, kenniliði myndhverf- inga sinna10, fremur í fornar goðsögur en pósitífisma, grípa til táknsæis að nýju jafnvel þótt goðsögurnar séu allar í molum og táknin misræð. Ut frá sama mælikvarða getum við líka séð hvernig módernisminn hefur þokast úr sagnagerð síðari ára og skilur þó eftir sig margvísleg spor, en það er önnur saga. Þemagreining getur hjálpað okkur til að skilja margvíslegar hliðar módernismans, skoða þróun hans og breytingar. „Formræn efa- hyggja“ skipti Joyce meira máli en Kafka, skáldsögur þess fyrrnefnda eru miklu nýstárlegri í formi en verk hins síðarnefnda, svo dæmi sé tekið. Módernisminn eftir seinna stríð er öðru vísi en módernismi áranna milli stríða. Engin ástæða er til að undanskilja sífellt sögulegar forsendur þessa seinni módernisma og absúrdisma: Stríðið, útrýmingarbúðirnar, kjarn- orkusprengjuna og þó umfram allt ömurlega hugmyndafátækt og einstefnu kalda stríðsins. I París eftirstríðsáranna áttu nútímaskáldin samleið með svörtum útlögum djassins, sem léku sína tæru snilld á óguðlegum hraða: í nútímalistinni átti frjáls hugsun athvarf, því hún gat leyft sér að vera órök- leg og óskynsamleg á mælikvarða ríkjandi hugsunar. Vitanlega birtist í Tómasi Jónssyni eða fyrstu verkum Thors Vilhjálmssonar allt annars konar módernismi en í Vefaranum mikla, þessi verk eru sprottin úr allt öðrum jarðvegi, eru viðbrögð við allt öðrum veruleika. Bókmenntasöguleg umfjöllun verður að rísa undir nafni, verður að vera söguleg, sleppur ekki í skjóli skilgreininga undan umfjöllun um yrkisefni og inntak. Það er mikil blessun fyrir bókmenntirnar að losna undan ofur- valdi pólitískra fyrirmæla, en það er engin ástæða til að forðast samfélag og sögu einsog heitan eldinn í bókmenntasögulegri umfjöllun af þeim sökum. Hafi menn sagt að tiltekin módernísk verk einkennist af því að táknmynd- irnar losni frá táknmiðunum, fari á eitthvert óskilgreint flot, hafa þeir ekki sagt neitt meira um verkin en að þau séu illskiljanleg á mælikvarða raun- sæis. Það þarf að sýna nákvæmlega fram á hvernig þetta gerist til að lesandi verði einhverju nær. Og eftir sem áður væri bara um lýsingu að ræða, fyrr eða síðar kæmi að spurningunni um skýringar. Mér finnst rétt að leita þeirra í samfélagi og sögu, þótt það hvarfli ekki að mér að innsti kjarni skáldskapar verði þar með skýrður til fulls. Og góðar skýringar verða líka að tengjast formsköpun verksins. En almennur rammi boðskipta- og tákn- fræði er alltof víður fyrir einstök verk, þau hringla bara í honum. Þetta er einsog að setja eina niðursuðudós í stóran gám og ætla sér svo að ráða í innihald dósarinnar með því að lýsa gámnum. Svo ég haldi aðeins áfram með þennan þráð: Það er hægur vandinn nú- orðið að skrifa bókmenntaritgerð sem í raun er ekki annað en endursögn á franska sálfræðingnum Lacan með smáviðbót frá bókmenntafræðingnum 198
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.