Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 70

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1989, Side 70
Tímarit Máls og menningar þó ekki að leyna að oft fæða smáskekkjur af sér aðrar hvimleiðari, og mér er ekki grunlaust um að þessi hafi þegar aukið kyn sitt. Þórbergur lýsir með tilþrifum komu sinni í þennan heim (I Suðursveit, bls. 20-22). Móðir hans kom hart niður, og var síðast gripið til þess úrræð- is að senda Ketil Jónsson á Gerði austur í Nes eftir Þorgrími lækni Þórðar- syni. Aður en þeir kæmust á leiðarenda fæddist drengurinn, og var þá Björn föðurbróðir hans fenginn til að ríða á móti lækni og segja honum að hann þyrfti ekki lengra. Björn mætti Þorgrími og Katli á klettarák framan í Hestgerðiskambi, og þar sneri læknir við. I frásögn Þórbergs af þessari erfiðu fæðingu segir meðal annars: „Fólk var farið að tala sín á milli, að þetta ætlaði líkast til að enda á sama veg og með Ragnhildi Steinsdóttur, konu Ketils. Ollum voru í fersku minni örlög hennar, og það jók á óhug manna. Það var alveg svona með hana. Henni gekk afar illa að fæða. Ketill vitjaði Þorgríms læknis. A meðan fæddist barnið. Það kom andvana. Þá var strax sendur maður til að snúa lækninum aftur, því að það var dýrt að fá lækni út í Suðursveit. En eftir að maðurinn var farinn, fékk Ragnhildur krampakast og dó.“ Samkvæmt prestsþjónustubók Kálfafellsstaðar gerðist þessi sorgar- atburður eins og fyrr getur hinn 21. maí árið 1888 eða tíu vikum eftir að Þórbergur fœddist, ef fæðingarárið 1888 er rétt. Er þá óhugsandi að fólk hafi hinn 12. mars verið að tala um örlög Ragnhildar Steinsdóttur með þeim hætti sem Þórbergur gerir sér í hugarlund. Athugum málin eilítið nánar. Ef Ketill á Gerði hefði fyrir skömmu misst konu og barn við áþekkar aðstæður, er þá líklegt að einmitt hann hefði ver- ið fenginn til að sækja lækni til Önnu á Hala? Ég held menn hefðu hlífst við að leggja það á hann. Og enn eitt: Ef öllum hefði verið í fersku minni fráfall Ragnhildar Steinsdóttur rétt eftir barnsburð, er þá sennilegt að lækni hefði verið snúið aftur þegar hann var kominn alla leið suður að Hestgerði? Eg held að öruggara hefði þótt að hann riði þessar fáu bæjarleiðir sem eftir voru til að huga að konu og barni. Aftur á móti verða öll viðbrögð manna eðlilegri og auðskýrðari hafi atburðaröðin verið eins og prestsþjónustu- bókin segir. Skrif Þórbergs eru allt um það skiljanleg. Hann er í góðri trú: heldur að Ragnhildur á Gerði hafi dáið af barnsförum vorið áður en hann fæddist og er að geta sér til hvernig fólki í þessu litla samfélagi á Breiðabólstaðartorf- unni hafi liðið, hvað það hafi verið að hugsa og tala um þegar horfur voru á að allt ætlaði að enda með sömu hörmungum á Hala. Hann var ekki að skrifa sagnfræði, heldur skáldlega lýsingu á lífinu í Suðursveit í barnæsku hans og fyrir hans dag. Þess vegna hefur hann ekki talið þörf á þeirri vís- 332
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.