Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Blaðsíða 14

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Blaðsíða 14
drauma persónuvana skynsemi. Sú skyn- semi — einsog einmitt hugtakið „endan- leg lausn“ minnir okkur á — á svo hremmilega auðvelt með að breyta draumum sínum í veruleika og snúa þann- ig veruleikanum í martröð. Henni myndi ekki aðeins mistakast að leysa kreppu nú- tíðarinnar (ef hún þá skyldi yfirleitt lifa af), heldur versnaði kreppan að miklum mun. Við það að bæta nokkrum miljónum dauðra inn á hart leikinn reikning sið- menningarinnar mundi ekki verða bund- inn endi á eðlislæga þróun hennar til alræðis heldur þvert á móti flýtt fyrir henni. Það yrði Pyrrhosarsigur því að sig- urvegaramir mundu að slíkum hildarleik loknum líkjast andstæðingum sínum meir en nokkur vill nú viðurkenna eða getur gert sér í hugarlund. (Lítið dæmi: hvílíkt ógnargúlag yrði þá ekki að reisa á Vestur- löndum í nafni föðurlands, lýðræðis, framfara og heraga handa öllum þeim, sem af einfeldni, ásetningi, hræðslu eða léttúð, færðust undan að taka þátt í að- gerðinni!). Aldrei hefur verið unnt að vinna bug á meinsemd með því einu að fjarlægja sjúk- dómseinkennin. Það verður að nema brott meinið sjálft. 3 Öðru hverju gefst mér kostur á að ræða við ýmsa menntamenn frá Vesturlöndum sem gista land okkar og ráðast í að heim- sækja nú andófsmann — sumir af sönnum áhuga, af vilja til að skilja og láta í ljós samhug sinn, en aðra rekur forvitnin ein: Jafnframt því að skoða byggingar í gotn- eskum stíl og frá barokktíma, væri ekki úr vegi að líta á andófsliðið líka; þetta er það eina sem getur vakið áhuga ferðamanns í þessu einstaklega litlausa umhverfi. Sam- tölin eru yfirleitt afar fræðandi fyrir mig, ég fæ ýmislegt að vita og öðlast innsýn í margt. Einatt er ég spurður í þessum dúr: Hald- ið þið að þið getið breytt einhverju, þegar þið eruð svona fáir og hafið engin áhrif? Eruð þið andvígir sósíalisma eða viljið þið einungis bæta hann? Fordæmið þið eða fallist þið á að komið sé fyrir nýjum stöðvum fyrir Pershing-flugskeyti í Vest- ur-Evrópu? Hvað getum við gert fyrir ykkur? Hvað kemur ykkur til að gera það sem þið gerið, þegar það eina sem þið fáið í ykkar hlut er ofsóknir og fangelsun, en enginn sýnilegur árangur? Viljið þið end- urreisa auðvaldsskipulagið í landinu? Þessar spumingar em vel meintar, þær eru sprottnar af vilja til skilnings og þær sýna að þeir sem spyrja láta veröldina skipta sig máli, hvemig hún er og hvemig hún veltist. Samt er það svo, að þessar og viðlíka spumingar afhjúpa fyrir mér hvað eftir annað, hve mikið það er sem menntamenn Vesturlanda skilja ekki — og að sumu leyti megna ekki að skilja — af því sem gerist hér, hvað það er sem við, svonefnd- ir andófsmenn, berjumst fyrir, og hver ætlunin er með þessu öllu saman. Tökum til að mynda spuminguna: „Hvað getum við gert fyrir ykkur?“ Vitaskuld er það margt og mikið. Því meiri stuðnings, áhuga og samhugar sem við njótum frá frjálst hugsandi fólki í umheiminum, því minni hætta er á að við lendum í fangelsi og þvf meiri von er að rödd okkar verði ekki hrópandans í eyðimörkinni. En samt — einhverstaðar langt inni í spurningunni liggur misskilningur. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá er það ekki 12 TMM 1990:1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.