Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Page 20

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Page 20
að gegn því að þekkingin breyttist ábyrgðarlaust í gereyðingarvopn. f>að er tvímælalaust mörgum sinnum áhrifa- meira að aðhafast á vettvangi orsakanna heldur en bregðast einungis við afleiðing- unum: Afleiðingum verður venjulega að- eins svarað með samskonar tækjum, ámóta ósiðlegum. Sé haldið inn á þá braut, verður fræjum ábyrgðarleysis sáð enn víðar en áður og þannig breiðist út það eitur sem alræðið þrífst á. Ég er fylgismaður „andpóli- tískrar stjórnmálastefnu“. . . Ég er fylgismaður „andpólitískrar stjómmálastefnu", þ.e.a.s. ég vil stefnu sem ekki væri valdatækni og valdbeiting, ekki drottinvald stýrifræðinnar yfir fólki, ekki list þess marksækna, ekki list henti- semi og bellibragða, heldur pólitík sem væri aðferð til að finna og ná innihalds- ríku lífi, vemda það líf og þjóna því. Þá væri pólitíkin orðin að list hagnýtrar sið- gæðisstefnu og þerna sannleikans, um- hyggjusemi fyrir meðbræðrum okkar sem væri í frumdráttum sínum mannleg og aðlöguð að því sem mannlegt er. Ég geri ráð fyrir því að þessi afstaða sé í meira lagi óhagnýt í þessum heimi og erfitt að beita henni í hversdagslífinu. Ég þekki samt engan kost betri. 5 Eftir að ég var dæmdur og afplánaði refs- ingu, fékk ég að reyna á eigin skrokki mikilvægi alþjóðasamhugar og bætandi afl hans. Ævinlega verð ég þakklátur fyrir allt sem látið var í ljós af því tagi. Samt held ég ekki að við, sem reynum að segja 18 sannleikann upphátt við okkar kringum- stæður, séum í svo illri aðstöðu að hlut- skipti okkar verði endalaust að biðja og vænta hjálpar en geta aldrei veitt neitt á móti. Ég er reyndar sannfærður um að þeir sem á sovésku áhrifasvæði nefnast „and- ófsmenn“ fari í gegnum sérstaka tegund nútímareynslu, þeir öðlist reynslu af lífi við ysta vígi ómennskuvalds nútímans. Sem slíkur hefur þessi „andófsmaður" tækifæri og ber beinlínis skylda til að íhuga þessa reynslu, vitna um hana og miðla henni til þeirra sem eru svo heppnir að sleppa undan henni. Við eigum þess líka kost að veita þeim lið með ákveðnum hætti sem hjálpa okkur, veita þeim lið í okkar djúpstæðu sameiginlegu þágu, í þágu mannsins. Atriði sem sköpum skiptir í þessari reynslu er að kostur gefst á því sem ég nefndi „andpólitíska stjórnmálastefnu" og hún getur haft sitt að segja, enda þótt það liggi í eðli hennar að hún getur ekki lagt neinn árangur á borðið fyrirfram. Áhrifin liggja vitaskuld á allt öðru sviði en því sem Vesturlönd meta sem árangur í stjómmálum. Hér er um að ræða dulin og óbein áhrif sem verka á löngum tíma og þau er býsna erfitt að mæla. Oft á tíðum eru áhrifin ekki annarstaðar að verki en á ósýnilegu sviði félagslegrar vitundar, samviskunnar og dulvitundar- innar. Það kann að vera hartnær útilokað að sjá hvaða þýðingu þessi viðleitni hefur þar og í hvaða mæli hún hefur áhrif á hugsanlegar umbreytingar á þjóðfélag- inu. Það sýnir sig samt — og það tel ég grundvallaratriði — að einstaklingur sem virðist valdalaus en ræðst í að tala þrumu- raust sannleikans og leggur allt sitt í söl- TMM 1990:1 J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.