Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 81

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1990, Side 81
um á handverkinu, skrifa lipran stíl og flétta söguþráðinn vel og örugglega. En klisjan er Iífsseig, í efnisvali, úrvinnslu og stöðluðum viðhorfum til persóna og mál- efna. Islenskar unglingabækur bera þess augljós merki, með fáeinum heiðarlegum undantekningum, að vera öðru fremur tískufyrirbæri, söluvara. Lögmál mark- aðarins ráða mestu um það hvað er skrifað og hvemig: bækumar eiga, líkt og út- varpsrásirnar, sjónvarpsstöðvarnar og bíómyndimar, að vera léttar og skemmti- legar, hæfilega ögrandi, hæfilega spenn- andi, hæfilega töff, en umfram allt: lausar við öfgar, lausar við sálarháska, lausar við flóknar spumingar um mannlega tilveru. Og skortir þar af leiðandi oftast bæði reisn og dýpt. Meðalmennskan er líka áberandi í bók- um fyrir yngri bömin, þó þröngsýn tísku- . . . klisjan er lífsseig, í efn- isvali, úrvinnslu og stöðluð- um viðhorfum til persóna s og málefna. Islenskar ung- lingabœkur bera þess aug- Ijós merki, með fáeinum heiðarlegum undantekning- um, að vera öðrufremur tískufyrirbœri, söluvara. lögmál ráði þar síður en á sviði unglinga- bókmennta. Listræn og hugmyndafræði- leg kreppa ríkir á báðum sviðum. f>að er líkast því sem verið sé að gefa út sömu bækumar ár eftir ár, aðeins með mismun- andi titlum, í mismunandi umbúðum, eftir mismunandi höfunda. Eitt af því fáa sem eftir stendur af barna- bókmenntaumræðu áttunda áratugarins eru blaðaumsagnir um bamabækur, sem vart sáust fyrir hennar daga. En þó þeim hafi fjölgað fer því samt fjarri að við þær sé almennt lögð sama rækt og þegar full- orðinsbækur eiga í hlut. Þær eru yfirleitt snubbóttari, yfirborðslegri og bera ósjald- an vott um staðlað gildismat, fremur en innsæi og bókmenntafræðilega þekkingu. Virðingarleysi fjölmiðla í garð bama- bókmennta tekur á sig margvíslegar myndir. Dæmi: Þegar fjallað var um nýj- ustu útgáfubók Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka síðastliðið vor lét annað tveggja stærstu dagblaðanna nægja að fá ellefu ára gamla telpu til að skrifa um hana umsögn. Annað dæmi: Á haustin þegar blöðin gefa fyrsta yfirlit yfir væntanlegar bækur á jólamarkaði eru barnabækur iðulega sniðgengnar. Þar má lesa langa upptaln- ingu á skáldverkum, ævisögum, mat- reiðslubókum, handbókum í þessu og hinu, en hvergi minnst á bamabækur, nema kannski í klausu eins og þessari: Auk þess gefur forlagið út nokkrar bækur handa bömum. Þessi aulaháttur er ekki síður sök útgefendanna, þetta eru þeirra áherslur, ekki síður en blaðamanna. Og enn eitt dæmi: í útvarpsfréttum fyrir einu eða tveimur árum heyrði ég frétt um afhendingu H.C. Andersen-verðlaun- anna. Fréttin var á þá leið að hollensk kona hefði hlotið verðlaunin. Ekkert nafn fylgdi, engar upplýsingar um verkið sem unnið hafði til þessara virtu verðlauna, bara þetta: „hollensk kona“. En svo ég sleppi frekari málalenging- um, þá hlýtur stóra spurningin að vera sú, hvemig hægt sé að styrkja stöðu íslenskra TMM 1990:1 79
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.