Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 25
Halldór Guðmundsson Hamhleypur og samgenglar Um tvífara í bókmenntum í ritgerðinni er fjallað um tvífara í skáldskap að fornu og nýju. Gerð er grein fyrir sálfræðilegum forsendum og afbrigðum þessa fyrirbæris og rakið hvernig vissar tegundir tvífara hafa verið öðrum fremur áberandi á til- teknum skeiðum bókmenntasögunnar. Tekin eru fjöldamörg dæmi allt frá íslendingasögum til Dr. Jekyll and Mr. Hyde. Rætt er sérstaklega um 19. öldina, blómaskeið tvífara, og það hvers vegna tvífarar virðast hafa glatað töfrum sínum í fagurbókmenntum á 20. öld. Sá ókunni, sem var ennþá í frakkanum og með hattinn, sat andspænis honum á rúminu hans, og örlaði á brosi á vörum; um leið og hann kipraði augun lítið eitt kinkaði hann vinalega til hans kolli. Herra Goljadkín langaði til að hrópa upp yfir sig en gat það ekki, langaði til að mótmæla en brast afl til þess. Hárin risu á höfði hans og hann hneig niður í stól, máttlaus af hryllingi. Herra Goljadkín sá nú hver það var sem hann hafði kynnst þessa nótt. Næturgestur hans var enginn annar en hann sjálfúr, Herra Goljadkín í eigin persónu, annar herra Goljadkín, en nákvæmlega sá sami og hann sjálfur — í stuttu máli, í hvívetna það sem kallað er tvífari hans ... Fjodor Dostójevskí: Tvífarinn} Af öllum þeim lymskulegu brögðum sem sagnamenn 19. aldar beittu til að vekja hroll með lesendum sínum, var eitt það áhrifa- mesta jafnan að láta sögupersónu mæta sjálfri sér, en þó ekki sjálfri sér — semsé tvífara sínum. Stórmeistarar á borð við Edgar Allan Poe, Guy de Maupassant, Rob- ert Louis Stevenson og E.T.A. Hoffmann kunnu allir þetta bragð og gátu látið hárin rísa á sléttgreiddum lesendum með því að leiða hina óhugnanlegu persónu tvífarans fram á sögusviðið. En hvað er svona skelfi- legt við að mæta sjálfum sér, hvers vegna vekur það óhug? Þessa spumingu er ætl- unin að ræða í eftirfarandi grein, og víkja jafnframt að margvíslegum dæmum um tvífaraminnið í bókmenntasögunni, allt frá Islendingasögum til nútímabókmennta. Að eiga sér tvífara kemur við hljómbotn TMM 1990:3 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.