Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Síða 51

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Síða 51
í landsprófinu varð eitthvað minna um beinar líkamlegar ofsóknir. Það kom fyrir að Dundi var látinn í friði, svona persónulega. Hann náði meira að segja að mynda um sig eins konar kunningjahóp. Þetta vom tveir eða þrír sérvitringar og kúkar, hallærisnáungar sem enginn nennti að tala við. Ég man að einn þeirra var kallaður Dúddi, talinn hálfgerður ofviti, þungt haldinn af einhvers konar véladellu. Hann ruglaðist alveg endanlega skömmu eftir landspróf og maður er enn að sjá hann vafrandi héma um götumar. Þessir drengir héldu sig mikið út af fyrir sig og allir vom þeim sammála um að best færi á því. Þeir reyktu ekki og drukku ekki og voru almennt andfélagslegir. Það varð líka fljótt á allra vitorði að þeir væm hommar. Þið getið rétt ímyndað ykkur hver kom þeim orðrómi af stað. Ofsóknimar færðust nú í staðinn yfir á annað plan. Kannski var það út af þessum skorti á viðbrögðum frá gerpinu: Ég hafði sem sé forgöngu um að gera Gvendi landa og fjölskyldu hans lífið sem allra leiðast. Við sáum meðal annars til þess að þau hjónin Guðmundur Maronsson og Þórdís Guðjónsdóttir pöntuðu sér áskriftir að nokkum veginn öllum blöðum og tímaritum landsins, ævinlega með ósk um að nýta sér tilboð um að fá öll tölublöð fyrra árs heimsend sér að kostnaðarlausu. Ný vikutíðindi, Mánudagsblaðið, Okurkarlar, Tígulgosinn, Hjartaásinn, Sannar sögur, Blandaðir ávextir, Samtíðin, Eimreiðin, Andvari, Gangleri, Veðráttan ... öll streymdu þessi rit í stríðum straumum inn um póstlúguna á Bithaga 13. Þá fóru sendiferðarbílar að koma með smurt brauð á ýmsum tímum sólarhrings, skuggalegir leigubílstjórar birtust í lágnættinu og reyndu með góðu eða illu að troða svartadauða upp á bindindismanninn Gvend landa, sem margsór af sér að hafa hringt og beðið um einn góðan. Fyrir utan venjulegan, almennan símaterror var auk þess lítill friður fyrir reiðum tannlæknum, læknum og fótsnyrtidömum sem hringdu og ásökuðu fjölskyldumeðlimi á víxl fyrir að mæta ekki í pantaða tíma. Mykju var sturtað í garðinn hvað eftir annað, steypu- bflstjórar hótuðu í sífellu að tæma umbeðna farma beint ofan í innkeyrsluna að bflskúmum. Allan tímann sá ég til þess að Dundi ræfillinn gengi ekki að því gruflandi hver stóð á bak við þessa starfsemi. Það var gert með ýmsum hárfínum athugasemdum sem látnar vom falla í áheym vesalingsins: — Hvaða lykt er þetta strákar, var einhver að koma úr fjósinu? Eða: — Asskodi hefur það lagast mikið upp á síðkastið rækjubrauðið frá Biminum. Eða: — Virkilega interessant ritstjómargrein í Blönduðum ávöxtum í síðustu viku, emð þið búnir að lesa hana strákar? TMM 1990:3 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.