Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 71

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Side 71
3 Skömmu eftir að Rússar lögðu undir sig land mitt, ráku þeir mig úr starfi því sem ég hafði gegnt (eins og þeir gerðu við þúsundir annarra Tékka) og engum leyfðist að ráða mig í annað starf. Þá komu ungir vinir mínir að máli við mig, þeir voru of ungir til að vera á skrá hjá Rússunum, og gátu því haldið störfum sínum á ritstjómum, við kennslu, í kvikmyndaverum. Þessir ungu góðu vinir mínir, sem ég mun aldrei bregðast, buðu mér að skrifa og nota sín nöfn undir sjónvarps- og útvarpsleikrit, leikrit fyrir leikhús, greinar, ferðagreinar, kvikmyndahandrit, svo ég gæti séð mér farborða. Eg þáði nokkra af þessum greiðum, en yfirleitt afþakkaði ég þá vegna þess að ég hafði ekki við að skrifa allt sem ég var beðinn að skrifa, auk þess sem það gat reynst hættulegt. Ekki fyrir mig, heldur þau. Leynilögreglan var að reyna að svelta okkur í hel, draga okkur niður í svaðið, neyða okkur til að gefast upp og biðjast afsökunar opinberlega. Því vaktaði hún nákvæm- lega hverja glufu sem við reyndum til að smjúga út úr hringnum sem hún hafði slegið um okkur og hún refsaði grimmilega hverjum þeim sem gaf nafn sitt. Meðal þessara örlátu gefenda var ung kona sem hét R. (í þessu tilfelli hef ég engu að leyna því allt komst upp). Þessi fágaða, hlédræga og gáfaða stúlka var ritstjóri gríðarlega útbreidds tímarits fyrir ungt fólk. Þar sem tímaritið neyddist á þessum tíma til að birta ótrúlega margar skelfilega vondar pólítískar greinar þar sem bróðurþjóðin rússneska var hafin til skýjanna, beitti ritstjómin öllum ráðum til að ná athygli fjöldans. Hún hafði því ákveðið að bregða um stundarsakir út af hinni tandurhreinu marxísku hugmyndafræði og vera með fastan dálk um stjömuspeki. Ég bjó til þúsundir stjömukorta á þeim ámm sem ég var útskúfaður. Úr því að sá mikli Jaroslav Hasek lifði á því að selja hunda (hann gerði mikið af því að selja stolna hunda og taldi mönnum trú um að kynblendingar væru hreinræktaðir), því skyldi ég þá ekki geta orðið stjömuspekingur? Vinir mínir í París höfðu fyrir margt löngu sent mér stjömu- spekirit eftir André Barbault og undir nafni hans stóð þessi titill sperrtum stöfum: Forseti alþjóðlegu stjörnuspekimiðstöðvarinnar og með því að breyta skriftinni minni hafði ég bætt við með blekpenna á fyrstu blaðsíðuna: 77/ Milans Kundera með aðdáun, André Barbault. Ég lét árituðu bækumar mínar eins og óvart liggja uppi á borði og útskýrði fyrir viðskiptavinum mínum í Prag að mánuðum saman hefði ég verið aðstoðarmaður hins víðfræga André Barbault í París. Þegar R. bað mig að sjá leynilega um stjömuspána í vikuriti sínu, fylltist ég vitaskuld eldmóði og ráðlagði henni að segja ritstjóminni að höfundur textanna væri bráðsjall kjameðlisfræðingur sem ekki vildi segja til nafns af ótta við að verða að athlægi meðal starfsbræðra sinna. Áformin virtust tryggð á tvennan hátt: af vísindamanninum sem ekki var til og dulnefninu. TMM 1990:3 69
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.