Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Page 76
6 Ég hef líka dansað hringdans. Það var árið 1948, kommúnistar höfðu unnið sigur í landi mínu, ráðherrar sósíalista og kristinna demókrata höfðu flúið úr landi, og ég hélt um öxl eða í hönd annarra komm- únískra stúdenta, við tókum tvö skref á staðnum, eitt skref áfram og við lyftum hægra fæti og síðan vinstra fæti og við gerðum þetta næstum því mánaðarlega, því við vorum að halda upp á eitthvað, afmæli eða atburð, fomu óréttlæti var útrýmt og nýtt óréttlæti innleitt, verksmiðjur voru þjóðnýttar, þúsundum manna var varpað í fangelsi, læknisþjónusta varð ókeypis, tóbakssalar máttu horfa uppá að verslanir þeirra vom gerðar upptækar, gömlu verkamennimir fóm í fyrsta sinn á ævinni í frí í einbýlishúsin sem höfðu verið gerð upptæk og við vomm eitt sólskinsbros. Svo gerðist það dag nokkum að ég sagði eitthvað sem ekki átti að segja, ég var rekinn úr flokknum og mátti hypja mig út úr hringnum. Þá fyrst áttaði ég mig á töframætti hringsins. Enda þótt maður sé rekinn úr röðinni getur maður átt afturkvæmt þangað. Röðin er opið form. En hringurinn lokast á hæla manns og þangað á maður ekki afturkvæmt. Það er engin tilviljun að hnettimir ganga í hring, og að steinn sem losnar úr þeim fjarlægist þá óhjákvæmilega fyrir tilverknað miðflóttaaflsins. Líkt og loftsteinn sem bromað hefur út úr hnetti, lenti ég út úr hringnum og ég held áfram að hrapa enn þann dag í dag. Sumir fá að deyja á hringsóli og aðrir kremjast þegar þeir koma niður eftir fallið. Og þeir síðamefndu (sem ég tilheyri) ala alla tíð með sér dulinn söknuð eftir glataða hringnum, því við búum jú í heimi þar sem allt hringsnýst. Það var enn verið að halda upp á eitthvert afmælið og enn einu sinni var ungt fólk að dansa hringdans á götum Pragborgar. Ég ráfaði um meðal þess, ég var rétt hjá því, en mér var ekki hleypt inn í neinn hringanna. Þetta var í júnímánuði árið 1950 og Milada Horakova hafði verið hengd daginn áður. Hún hafði setið á þingi fyrir sósíalistaflokkinn og dómstóll kommúnista hafði dæmt hana fyrir að hafa unnið gegn Ríkinu. Tékkneski súrrealistinn Zavis Kalandra, vinur André Bretons og Pauls Éluards, hafði verið hengdur um leið og hún. Og ungir Tékkar dönsuðu vitandi það að daginn áður höfðu kona og súrrealisti dinglað í snömnni í þessari sömu borg, og þeir dönsuðu af enn meiri ofsa, því dansinn bar sakleysi þeirra fagurt vitni og skar sig greinilega úr sótsvartri sekt hinna tveggja sem hengd höfðu verið fyrir að bregðast alþýðunni og vonum hennar. André Breton trúði ekki að Kalandra hefði bmgðist alþýðunni og vonum hennar og í París bað hann Éluard (í opnu bréfi dagsettu 13. júní 1950) að mótmæla þessum fáránlegu ásökunum og reyna að koma aldavini þeirra til hjálpar. En Éluard var upptekinn í gríðarmiklum hringdansi milli Parísar, Moskvu, Prag, Varsjár, Sofíu og Grikklands, með öllum sósíalistalöndum og kommúnistaflokkum heimsins, og alls staðar fór hann með íS?7 74 TMM 1990:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.