Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Qupperneq 15

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1991, Qupperneq 15
En í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Ég er svolítið hræddur um að frá heimspekilegu sjónarmiði bíði Einars sömu örlög og Bjöms Gunnlaugssonar (og kann- ski Hegels). Þeirra stærðfræðilega tilraun til þess að sætta og fella saman gjörólík viðhorf í eitt heildstætt og rökrænt kerfi var kannski frá upphafi dauðadæmd. Einar trúði hins vegar á þetta og reyndi í fullri einlægni að smíða samfellda, heila og óslitna keðju úr sundurleitum hlekkjum. Þótt mönnum veitist kannski nú á dögum æ erfiðara að feta sig eftir henni, þá hefur þessi smíði þó alltént verið nokkurs virði því sá sem reynir að skapa, hann brýtur oft okkar hugarhlekki og opnar okkur þar með nýja sýn sem auðvitað er eitt helsta mark- mið góðs skáldskapar. 1. Grein þessi er að mestu leyti samhljóða erindi sem greinarhöfundur hélt á þingi Félags áhugamanna um bókmenntir um Einar Benediktsson, þann 6. júlí 1991. Eins og vera ber með erindi á slíkum þingum er hér frekar reynt að varpa fram hug- myndum en veita fullmótuð svör. Allar tilvitnanir í kvæði Einars eru í Einar Benediktsson. Kvœðasafn. Reykjavík 1964. Upphafstilvitnunin er þar á bls. 128. 2. Þessi huglægni minnir kannski svolítið á þá frægu „huglægu" línu Tómasar, „ég hélt ég væri smá- mey/ og hugðist finna til“ og mætast þar óvænt einhver okkar ólíkustu Ijóðskáld. Önnur hlið þessarar huglægni er svo sú merki- lega staðreynd að afar víða í kvæðum Einars er hægt að samsama ljóðmælanda honum sjálfum. Persóna hans kemur þar beint fram eða liggur undir og yfir flestum kvæðanna, m.a.s. í kvæðum sem eiga að vera um tiltekna menn, til dæmis í Davíð konungur, eins og Sigurbjörn Einarsson hefur bent mér á. 3. Sjá Gils Guðmundsson. Vœringinn mikli. Reykja- vík 1990. Bls. 112-113. 4. Gils Guðmundsson 1990. Bls. 173. 5. Sjá Kristján Karlsson: „Inngangur". Ljóðasafn Einars Benediktssonar. Hafnarfirði 1979. Bls. 18. 6. Sjá Benedikt Gröndal. Dœgradvöl. Reykjavík 1965. Bls. 77. 7. Lbs. 2009, 4to. 8. Gunnar Harðarson: „Njóla og íslensk heimspeki“. Skírnir vor 1990. Bls. 79.1 samaheftiergrein um ævi Bjöms Gunnlaugssonar eftir Bergstein Jóns- son, „Spekingurinn með bamshjartað". 9. Efasemdir hafa oft verið túlkaðar sem merki um trúhneigð og ýmsir af frægustu trúmönnum ver- aldarsögunnar voru helteknir af stríðum efasemd- um um Guð. Hér nægir að benda á Agústínus kirkjuföðurog/áM/ngarhans. Af íslenskum bók- menntafræðingum sem hafa túlkað þetta sjónar- mið er Sigurður Nordal skýrasta dæmið og má benda á ritgerðir hans um Stephan G. Stephans- son og Þorstein Erlingsson í því sambandi. 10. í raun og veru minnir margt í kvæðum Einars mjög á bollaleggingar Kants, ekki einungis það sem nefnt er að ofan heldur einnig t.d. hugmyndir hans um listina sem standi utan og ofan við efnisheiminn. Það er víða og ekki síst í kvæðum frá síðari hluta ferils síns, sem manni finnast hugmyndir Einars um skáldskapinn og í raun grfðarleg upphafning hans á honum bera sterkan keim af Kant. Ef við hugsum líka til spakmæla- gerðar, aforisma Einars, þá kemur á daginn að þeir eru fyrst og fremst móralskir. Þeir eru siða- boð um það hvemig skuli lifa, en eins og mörgum er kunnugt er Immanúel Kant kannski nú á dög- um þekktastur fyrir skrif sín um siðfræði og setti þar fram merkileg siðalögmál. 11. Um heimspeki Hegels hefur auðvitað mikið og margt verið skrifað, einnig á íslensku, en eitt haldbesta yfirlitið er kannski grein Kristjáns Amasonar, „Mótsögn og miðlun" (Skírnir 1986), þar sem komið er inn á ýmsar af forsendum þess sem hér er sagt. 12. Það er freistandi í þessu samhengi að heimfæra upp á Einar orð Þorsteins Gylfasonar um Hegel í Valdsorðaskaki (1982): „veruleikinn er að því leyti frábrugðinn prófessor Hegel að hann er sjálfum sér samkvæmur". 13. Til Huldu, úr Hrönnum 1913. Einar Benedikts- son. Kvœðasafn. Reykjavík 1964. Bls. 295. 14. Ursfðustu Ijóðabók hans, Hvömmum 1930. Einar Benediktsson. Kvœðasafn. Reykjavík 1964. Bls. 607. TMM 1991:4 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.