Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Blaðsíða 9
DYGGÐIRNAR OG ÍSLENDINGAR
telja þessar dyggðir mikilvægastar: Heiðarleika, hreinskilni, jákvæðni, traust,
dugnað, sterk fjölskyldu- og vináttubönd, og heilsu. Niðurstöður voru þó
afar mismunandi, einkum ef skoðaður er munur milli kynslóða, og í mörg-
um tilfellum koma svör fólks á óvart. Það vekur til dæmis furðu hve lítils
íslendingar meta starfsfr ama og menntun, en það er á skjön við þá mynd sem
margir vilja draga upp af hinu hraða tæknisamfélagi þar sem viðskipti og
upplýsingar eru driffjöður alls.
Könnuninni var þannig háttað að fyrst var spurt spurninga þar sem fólk
var beðið um að nefna einhvern einn eiginleika sem það mæti mest í fari
annarra, væri ánægðast með í sjálfum sér eða vildi helst vera búið, og var öll-
um frjálst að svara hverju sem þeir vildu. Þar kemur í ljós að aðeins um þrjú
prósent nefna frama eða farsælan feril í starfi. Menntun og þekking virðast
heldur ekki skipta mestu fyrir nema um sex prósent svarenda. Almenn hug-
tök sem varða framkomu og persónustyrk virðast höfða mun sterkar til
fólks: Heiðarleiki, hreinskilni, bjartsýni eða jákvæðni, traust og dugnaður.
f síðari hluta könnunarinnar var spurt nokkurra spurninga þar sem svar-
endur voru beðnir um að forgangsraða fimm hugtökum í hvert sinn eftir því
hvað þeir teldu mikilvægast í lífinu eða skipta mestu máli í hamingjusömu
lífi. Hér þurfi að velja milli fimm fyrirfram gefinna möguleika, ólíkt því sem
var í fyrstu spurningunum fjórum, en tekið var nokkuð mið af svörunum við
þeim þegar hugtökin voru valin og reynt að ná fram ítarlegri niðurstöðum
um samhengi hinna ýmsu þátta. Hver mátti gefa tvö svör og nefna það sem
honum þótti mikilvægast og það sem honum þótti næstmikilvægast. Niður-
stöður hér voru á svipaðan veg og í fyrri hluta könnunarinnar, nema hvað al-
menn hugtök á borð við heiðarleika og hreinskilni risu ekki alveg jafn hátt
þótt margir nefndu þau, en í ljós kom að fjölskylda, vinir og góð heilsa virðast
skipta flesta mestu máli. Frami í starfi og menntun þykir fæstum mikilvægast
í lífinu þótt athyglisvert sé að örlítið fleiri telja þessi atriði vera næstmikil-
vægust.
Dyggðir
Áður en hugað er nánar að niðurstöðum könnunarinnar og því hvað lesa
megi í þær um siðferði íslendinga og afstöðu til dyggða er rétt að rekja í
stuttu máli nokkur atriði um sögu dyggðanna og dyggðahugtakið sjálft, upp-
runa þess og inntak. Líklegt er að ýmislegt í könnuninni komi sumum les-
endum undarlega fyrir sjónir og þeir eigi jafnvel erfitt með að sjá hvernig
hægt sé að túlka niðurstöður hennar þannig að þær segi nokkuð um dyggðir.
Fjölskyldu- og vinabönd eru augljóslega snar þáttur í lífi fólks, sérstaklega á
íslandi, og öllum er það mikilvægt að halda heilsu, en hvernig á að skilja það
TMM 2000:2
www.malogmenning.is
7