Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Blaðsíða 38
SÍÐARI ALDIR
Á lúterskum síðari öldum lifa kristnar dyggðir og fornar norrænar
góðu lífi hlið við hlið. Tvö dæmi eru um það í vísum eftir séra Hall-
grím Pétursson. Dyggðahugmyndir síðari alda sýna ljóst undan
hvaða dyggðafargi við höfum nýlega sloppið.
Ég hef skoðað eina heimild sem fjallar sérstaklega um dyggðir
kvenna, 16. aldar ritið Dyggðaspegil.1 Þar kemur fram að hugrekki og
réttlæti teljast þá ekki til dyggða kvenna, viskudyggðin er guðs orða
þekking, en hófsemi, trú og kærleikur eru afar mikilvægar kvendyggð-
ir. Vonin lendir milli línanna í Dyggðaspegli, en er nátengd heitri trú.
Dyggðaspegill telur kvenlegar ýmsar dyggðir sem ekki teljast til
þeirra klassísku sem hér er gengið út frá. Þær minna á allan dyggða-
pakkann sem stóð fyrir utan dyggðirnar sjö, flestar þeirra áttu einnig
við karla. Þær eru þakklæti, iðni og þrifnaður, æra og siðsemi, hrein-
læti, skírlífi og heiðarleg blygðan, heiðrun foreldra, auðmýkt og lítil-
læti, Ijúflyndi og vinsæld. Skírlífið er kallað höfuðprýði kvenlegra
dyggða, þar sem lítið verði úr öllum hinum dyggðunum ef hana
skorti. Konur eiga að halda sér utan hjónabands hreinum útvortis og
innvortis á sálu og líkama, fyrir utan nokkra saurgan og sambland
við aðra. Bæði lögmál náttúrunnar og lögmál guðs skipa svo fyrir,
segir Dyggðaspegill.
Við höfum, karlar sem konur, sloppið undan sumum þessum
dyggðum en aðrar lifa góðu lífi. Skírlífi utan hjónabands er úrelt en
samkvæmt Gallup skipta iðni, heiðrunforeldra og vinsæld enn miklu
máli. Og Ijúflyndi einnig ef hægt er að tengja það við samtímadyggð-
ina jákvæðni.
1 viska
Þessi tvö dæmi frá lútherskum síðari öldum kenna hvernig öðlast
megi visku. Gamla dyggðin úr Hávamálum að mæla fátt og aðeins
þarft lifir hjá Hallgrími. Hann mælir ekki með hreinskilni heldur
varar við flærð. Heilræðavísur eru horfnar í samtímanum. Það er
ekki í tísku að segja fólki hvernig það eigi að öðlast visku. Og sann-
lega tíðkast ekki að mæla fátt, allt er yfirfullt af bulli í gulu pressunni
og á öðrum játningafundum. Dæmið úr Dyggðaspegli takmarkar
36
www.malogmenning.is
TMM 2000:2