Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Blaðsíða 22
ÞÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR
eftirlit með allri mannlegri skömm, í þeim sáttmála samfélagsins er réttlætið
nú innbyggt. Og það er okkar að berjast við að halda því við og aðlaga það
nýjum tímum.
Trúin er orðin að jákvæðni. Ekki er að furða, þetta er sá kjarni sem lifði af
árás vísindahyggjunnar á trúarbrögðin. Skrattinn hvarf og allt yfirnáttúru-
legt og því að mestu öll hvíta hirðin líka, trúin varð tilfinningasannleikur, og
helsta áhersla kristninnar síðan á síðustu öld hefur verið á það góða. Bænin
er eftir sem áður tilraun mannsins til að stilla óveður tauga og heila svo hann
megi skynja jákvæðni.
Vonin er orðin traust. Segir það ekki nokkuð um öryggisleysið í samtím-
anum? Lénsveldið uppleyst og í stað þess að vona á guð biður maður þess að
kerfi samskiptanna sé traust.
í stað dyggðarinnar kærleika situr nú vinátta ogjjölskylda í svipuðu önd-
vegi og kærleikur gerði. Finna má skýringu á þessu. Það eru engir flakkarar
lengur sem koma á bæi. Menn sýna almennan kærleik nú orðið með því að
vera breitt bak og borga skatta sem skila sér til þeirra sem á þurfa að halda.
Kærleikurinn varð með allsnægtasamfélaginu innbyggður í almennar trygg-
ingar.
íhugið þessa samantekt. Nýju dyggðirnar mynda öruggt skjól gegn því
sem okkar menningarheimur telur að valdi persónulegu böli. Þær verða
ótrúlega öflugar þegar þær vinna saman, þessar dyggðir. Ef þú ert
hreinskilinn getur þú ekki brotið lög, þá lendir þú í vandræðum. Þú getur
verið hreinskilinn í hjónabandi, hunsað foreldra þína og drýgt hór, það er
löglegt, en dyggðin vinátta og fjölskylda kemur þér til bjargar. Dyggðin
dugnaður sér til þess að þér tekst að ávaxta þitt pund og halda uppi fjölskyldu
þinni og dyggðin traust gerir það að verkum að þú bugast ei. Dyggðin heilsa
gerir þig að sparsömum módelmanni, þú reykir ekki, drekkur ekki áfengi,
færð þér ekki róandi, borðar hvorki sætt né feitt og stundar líkamsrækt.
Dyggðin jákvœðni tengist heilsunni góðum böndum, það eflir ónæmiskerfið
að vera jákvæður, það stillir geðið og býður heim hamingju. Þá vantar eina
dyggð og hver er hún? Heiðarleikinn, sú sem íslendingar hafa nú í öndvegi.
Heiðarleikinn er drottning dyggðanna. Hún styrkir hreinskilnina, vinátt-
una og fjölskylduna, dugnaðinn og heilsuna. Það er óheiðarlegt nú til dags að
hugsa ekki um heilsuna. Það er óheiðarlegt gagnvart afkomendunum, fædd-
um sem ófæddum, það er læknisfræðilega sannað. Þessar fimm atferlis-
dyggðir mynda saman mynstur í skildinum sem hinn dyggðugi ber gegn
óreiðu heimsins. Hinar tvær eru huglægari, traustið og jákvæðnin, þær
mynda trúarlegan dúett í fögrum litum.
Þessar dyggðir eru innbyggðar í okkar menningu. Sumir hugsa sjálfstætt
og láta skilaboð úr öðrum menningarkimum hafa áhrif á sig, og fýrir þá
20
www.malogmenning.is
TMM 2000:2