Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 30
Salvör Nordal
Dyggðir að fornu og nýju
Ef stóumaður væri spurður þess sem væri eítirsóknarverðast í lífinu og lykill-
inn að hamingjusömu lífi stæði ekki á svari. Hamingjan felst í því að uppræta
ástríðurnar úr sálinni og öðlast stóiska ró apatheia. Þegar sálin hefur læknast
og bregst ekki lengur við utanaðkomandi áreiti með ástríðufullum hætti hefur
henni tekist að stilla sig í samhljóm við náttúruna og sitt innsta eðli. Fullkomn-
un hins vitra manns hefur náðst. Þetta kann að hljóma ósköp einfalt en að baki
þessum orðum býr tilkomumikil kenning um mannlega breytni og raunveru-
leg gæði í heiminum, kenning sem sumum hefur fundist öfgafull í meira lagi.
Stóumenn líktu sér oft við lækna, en í stað þess að lækna meinsemdir lík-
amans beindu þeir sjónum sínum að sálinni og sjúkleikum hennar. Birting-
armynd þessa sjúkleika eru ástríður á borð við ánægju, reiði, ótta, girnd eða
hatur sem blossar upp í sálinni. Þessar ástríður komu ekki síst fram í grískum
harmleikjum, sem voru stóumönnum sérstaklega hugleiknir, þar sem per-
sónur leiksins eru yfirkomnar af sterkum ástríðum og áhorfandinn hrærist
með og endurupplifir þær í sínu eigin brjósti. Læknar stóuspekinnar reyndu
hins vegar að koma vitinu fyrir samborgara sína og leiða þá í allan sannleik-
ann um hamingjuna og dyggðugt líf.
En hafa kenningar stóumanna um ástríður og dyggðir eitthvað að segja
okkur nútímamönnum? f könnun Gallups á afstöðu íslendinga nútímans um
eftirsóknarverð gæði og hamingju má lesa einhvern vísi að hugmyndum
þeirra um dyggðir og hverjar þeirra eru í mestum metum hjá íslendingnum. í
ljósi þeirrar staðreyndar að Forn-Grikkir lögðu grunninn að dyggðakenning-
um eins og við þekkjum þær er ekki úr vegi að skoða viðhorf íslendinga út ff á
kenningum Grikkja. Það er einkum skóli stóuspekinga sem ræddur verður hér
á eftir en hann tilheyrir helleníska tímabilinu í Grikklandi (323-30 f.Kr.) og á
einnig verðuga fulltrúa meðal Rómverja.
Stóuskólinn
Stóuspekin á rætur sínar að rekja til Grikklands hins forna og er upphafs-
maður skólans jafnan talinn Zeno frá Citium sem uppi var ca. 336-264 f.Kr.
28
www.malogmenning.is
TMM 2000:2