Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Side 62
GOTTSKÁLK ÞÓR JENSSON
efhahag þjóðarinnar, og rúmlega þriðjungur landsmanna hrundi niður í
hjálparleysi.Æpandi dæmi um misræmið í dygðum þjóðarinnar er hið merka
fræðirit Hannesar Finnssonar biskups, Mannfœkkun á íslandi af völdum
hallœra, þar sem í fyrsta sinn var beitt tölfræði í sagnfræðirannsóknum.
íslandslýsingar ogferðabækurfrá sextándu til nítjándu aldar
Qualiscunque descriptio islandiæ, eða íslandslýsing, líklega eftir Odd Ein-
arsson og líklega rituð seint á níunda áratug sextándu aldar, er fyrsta ritið af
þessari gerð. Höfundurinn útskýrir tengsl íslendinga við tignar ættir Norð-
manna með því að vitna til íslenskrar ættfr æði „sem víða er að finna í fornum
handritum vorum, sem rituð voru endur fyrir löngu af forfeðrum vorum
með miklu erfiði og aðdáunarverðri kostgæfni“ (quæpassim inueniuntur in
uetustis codicibus domesticis non sine magnis laboribus etadmirabili diligentia
jam olim a majoribus nostris conscriptis) ,32 Hann bendir á að á íslandi hafi
verið skrifaðar sögur jafnt um óbreytta menn innlenda, sem og erlenda kon-
unga, og dregur þannig upp hliðstæðu með íslensku alþýðufólki og norskum
konungum, sem hann segir skylda að ætterni eins og fram komi í íslenskum
ættatölum. En íslendingar hafi einnig skráð sögu margra annarra landa og
þýtt mörg erlend rit á eigin tungu, en sú tunga sé einmitt norræna, hin forna
tunga Norðurlanda, sem íslendingar einir hafi varðveitt, þegar aðrir nor-
rænir menn hafi tínt henni niður. „Að tunga þessi sé ein af höfuðtungum
heimsins, sem sé auðvitað fengin í hendur útvöldu fólki fyrir undursamlega
velgjörð guðs, ffá byrjun hins babelska tungumálaruglings“ (linguam unam
esse exprincipalibus linguis totius orbis, attributam uidelicet quibusdam certis
hominibus admirando Dei beneficio statim in uniuersali linguarum
confusione).33 Hann ber lof á „áhuga hinnar íslenzku þjóðar og kostgæfni,
jafht við að gefa gaum að þessu framandi efni, endurrita það og flytja
hvaðanæva sem eins konar fjársjóði til ættjarðarinnar, sem og við að skrá af
trúmennsku innlend málefni, þegar staðreynd er, að ótöluleg ágætisverk
annarra þjóða, verð ævarandi minningar, hafa fallið í hið eilífa og hörmulega
myrkur gleymskunnar vegna einbers skorts á rithöfundum.“34
Til er önnur ekki síður merkileg íslandslýsing á latínu, eftir Danann Peder
Hansen Resen, sem á það sameiginlegt með ofangreindu verki, að hafa að-
eins varðveist í handriti. I raun hefur verkið ekki ennþá verið prentað, ef frá
er talið að árið 1991 birtist þýðing þess eftir Jakob Benediktsson.35 Eins og
við sáum að ofan þá kemur Resen talsvert við sögu útgáfu á íslenskum ritum.
Það sem einkum tengir þetta rit við efni þessarar greinar er kafli XXVIII um
Lesti og dygðir íslendinga.36 Resen gengur skipulega til verka að hætti
nýlatínuhöfunda. Fyrst bendir hann á að í hverju landi sé eitthvað gott og
60
www.malogmenning.is
TMM 2000:2