Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 94

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2000, Page 94
AÐALSTEINN INGÓLFSSON manna og „ómerkingum“. Er stundum talað um að margt af því sem Sigurð- ur bauð upp eftir Kjarval, hafi verið upptínsla á verkum úr ruslahaug þessa uppáhaldslistamanns hans. Hins vegar urðu aldrei alvarlegir eftirmálar af uppboðum Sigurðar. Og að því ég best veit hafa aldrei vaknað grunsemdir um að hann hafi vísvitandi boðið upp rangfeðruð verk, hvað þá að hann hafi beinlínis látið „ffamleiða“ verk til uppboðs eins og rætt er um að svikahrapparnir sem hér eru til um- ræðu hafi gert. Á áttunda áratugnum, eftir að Sigurður lét af uppboðshaldi og umboðs- sölu listaverka, tók Guðmundur Axelsson upp þennan þráð og hélt regluleg uppboð á bókum og listmunum í rúman áratug, auk þess sem hann seldi og keypti listaverk fyrir einkaðila. Guðmundur var, og er enn, ótrúlega fjölffóður, fundvís og úrræðagóður listhöndlari og að auki öllu meiri smekkmaður en fyrirrennari hans í „brans- anum“. Sá sem þetta skrifar þurfti nokkrum sinnum að leita ráða hjá Guð- mundi og reyndi hann aldrei að öðru en heiðarlegum vinnubrögðum. I ljósi tiltölulega vandræðalausrar forsögu listaverkauppboðanna á land- inu er kannski ekki nema von að íslenskir listaverkakaupendur hafi verið helst til bláeygir þegar Gallerí Borg, meintur sökudólgur í þessu fölsunar- máli, hóf að standa fyrir uppboðum árið 1988. Aðgangur að eigendasögum Þegar horft er til baka, hefði ýmislegt í þessari uppboðsstarfsemi og ffam- komu aðstandenda gallerísins auðvitað átt að vekja grunsemdir jafnt leik- manna sem lærðra. í sjálfu sér var ekkert grunsamlegt við þá „framboðsaukningu" á áður óþekktum verkum eftir helstu listamenn þjóðarinnar sem þessi uppboð höfðu í för með sér. Fyrir áðurnefnda vöntun á heildarskrám og ónógar listsögulegar rann- sóknir var sérhver íslenskur listamaður nánast óþekkt stærð, það vissu menn. I ljósi sögunnar voru einnig góðar líkur á því að enn leyndist fjöldi verka eftir íslenska myndlistarmenn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Til að mynda var vitað um nánast heilar sýningar listamanna á borð við Mugg (Guðmund Thorsteinsson) og Kristínu Jónsdóttur í Danmörku, sem ekki höfðu skilað sér til íslands nema að takmörkuðu leyti. Svo ekki sé minnst á listamenn eins og Júlíönu Sveinsdóttur, sem bjó í Danmörku mestan hluta starfsævi sinnar. Aukinheldur voru aðstandendur atorkusamir og gumuðu óspart af sam- 92 www.malogmennmg.is TMM 2000:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.