Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 19

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 19
Bókasafnið 38. árg. 2014 1 9 bóka­ og skjalasöfn heldur sé afstrakt og þekkingin sem miðlað er nýtist útskrifuðu fólki við störf á sem víðustum vettvangi. Meðal annars með það að markmiði að upp­ lýsingafræðingar búi yfir þekkingu sem gerir þeim kleift að vinna á sviði þekkingarstjórnar sem mun verða æ mikilvægari starfsvettvangur í framtíðinni ﴾Srikantaiah og Koenig, 2008﴿. Jafnframt er ráðlegt að nýta kosti há­ skóla og efla tengsl og samvinnu upplýsingafræðinnar við aðrar greinar innan Háskóla Íslands eftir því sem ástæða er til. Kröfur um aukinn nemendafjölda í upplýsingafræð­ inni í Háskóla Íslands til þess að skapa greininni fjár­ hagslega möguleika á æskilegri framtíðarþróun kalla auk þess sem að ofan er nefnt á að litið sé til menntunar fyrir víðari starfsvettvang. 8 Umræða Umræðan sem hér fer á eftir snýst annars vegar um virkni kenninganna sem notaðar voru og hins vegar um niðurstöður rannsóknanna sem hér eru til umfjöllunar. 8.1 Um virkni kenninganna Auk þess sem að ofan er nefnt um virkni kenningar Abbotts ﴾1988﴿ hlýtur sú spurning vaknar hvers vegna áhrif rafrænu útgáfunnar á framboð starfa og vinnuum­ hverfi urðu þveröfug við áhrif örefnisútgáfunnar sem Abbott greinir og nefnd eru hér að ofan. Til þess að svara þeirri spurningu er miðilskenningin ﴾medium theory﴿ notuð hér ﴾Meyrowitz, 2001﴿. Örefnisútgáfan uppfyllir hvorki þau skilyrði miðilskenningarinnar að notkun þekkingar og upplýsinga á þeim miðli hafi orðið hluti af daglegu lífi almennings frá blautu barnsbeini né að mikið magn þekkingar og upplýsinga hafi verið til á þeim miðli og allur almenningur hafi haft að því greiðan aðgang. Rafræn útgáfa og miðlun uppfyllir hins vegar öll skilyrði miðilskenningarinnar hér á landi þar sem tölvu­ notkun og Lýðnetstengingar heimila eru með því mesta sem þekkist í heiminum ﴾Tölvu­ og netnotkun ein­ staklinga 2012, 2012﴿. Annað atriði sem sú er þetta ritar telur að skipti máli er að örefnisútgáfan byggir ekki á notkun nýs táknkerfis, en það gerir rafræn miðlun hins vegar, þar sem er tvíundakótinn ﴾Stefanía Júlíusdóttir, 2013a﴿. 8.2 Um niðurstöður Þróunin hér á landi var að miklu leyti sambærileg við þróunina Vestanhafs. Munurinn var þó sá að hér á landi kom hún til mun seinna, í sumum atriðum munaði heilli öld. Í BNA var eftirspurn upphaflega meiri en fram­ boð bókasafnsfræðinga, eins og var hér á landi eftir að menntun bókasafnsfræðinga hófst í Háskóla Íslands. Í báðum löndum mynduðu almenningsbókasöfn upp­ haflega mikilvægasta starfsvettvanginn í óðali launaðrar vinnu, í BNA ásamt háskólabókasöfnum ﴾Abbott, 1988, s. 217﴿ en hér á landi ásamt skólabókasöfnum bæði 1989 og 2001. Einkum á það við um bókasafnsfræð­ inga. Þetta virtist þó vera að breytast hérlendis. Enda þótt hlutfall starfsfólks og stöðugilda væri enn hæst í þessum bókasafnategundum 2001 hafði þróunin orðið sú að það hafði lækkað um rúm 20% frá því 1989. Að sama skapi hafði hlutfall starfsfólks og stöðugilda hækkað í rannsóknabókasöfnum, sérfræðibókasöfnum og við skjalastjórn ﴾sjá töflu 4﴿ ﴾Stefanía Júlíusdóttir, 2013a﴿. Í BNA höfðu bókasafnsfræðingar reitt sig mjög á aðkeypta vinnu við skráningu, flokkun og lyklun frá Library of Congress frá 1900 og öðrum á undan þeim ﴾Abbott, 1988, s. 216­224﴿. Þar reyndi minna á kunnáttu til verka á þessu kjarnasviði greinarinnar en hér á landi þar sem sú vinna var að mestu leyti frumunnin í hverju bókasafni fram til aldamótanna 2000, þegar nýi Gegnir kom til sögunnar ﴾Stefanía Júlíusdóttir, 1996, 2013a﴿. Í BNA höfðu bókasafnsfræðingar ekki haslað sér völl í óðali skjalastjórnar ﴾Abbott, 1988, s. 221; samtal við doktor Karen Markey prófessor, 28. júní 2013﴿ í sama mæli og hér á landi í upphafi 21. aldar. Að hluta til gæti það stafað af því að í BNA hafi bókasafnsfræðingar væntanlega ekki haft þekkingu sambærilega við þekk­ ingu íslenskra bókasafnsfræðinga á frumskráningu, flokkun og lyklun. Auk þess höfðu bókasafnsfræðingar í BNA næga vinnu í bókasöfnum þegar þeir reyndu seint á 19. öld að ná yfirráðum á sviði skjalastjórnar. En á Ís­ landi fór það saman að brýnt var fyrir bókasafnsfræð­ inga að stækka óðal sitt, samtímis því sem þörf varð á skjalastjórum seint á 20. öld þegar útrás bókasafns­ fræðinga í skjalastjórn hófst fyrir alvöru. Leiða má að því líkum að yfirfærsla íslenskra bókasafnsfræðinga á þekk­ ingu og reynslu af frumvinnu við skipulag þekkingar og upplýsinga, sem að ofan er nefnt, yfir á svið skjala­ stjórnar ásamt námskeiðum á því sviði innan bókasafns­ og upplýsingafræði í Háskóla Íslands hafi gert þeim fært ﴾eða auðveldað þeim mjög﴿ að flytja sig yfir á svið skjalastjórnar á síðasta áratug 20. aldar og í upphafi þeirrar 21. Að þekking þeirra á þessu sviði hafi í raun verið óhlutstæð ﴾afstrakt﴿ og þess vegna hafi þeir geta notað hana við vinnu á öðrum vettvangi en eingöngu í bókasöfnum. Af þessu má meðal annars ráða að gildi samanburðar milli landa á menntunarþörf takmarkist við muninn á þeim óðulum sem útskrifað fólk starfar á í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.