Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Side 36

Bókasafnið - 01.06.2014, Side 36
Bókasafnið 38. árg. 2014 36 aldrei lánaða bók á síðasta skólaári. Á mynd 3 má sjá að grunnnemar fá töluvert meira lánað en framhaldsnemar, en um 57% framhaldsnema höfðu ekkert fengið að láni á ár­ inu á móti tæplega 40% grunnnema. Í upprunalegu Huddersfield rannsókninni voru útlán grunnnema í viðskiptafræði ﴾samtals 4.416﴿ sérstaklega birt og er fróðlegt að bera saman töl­ fræði þeirra við útlán grunnema Menntavísinda­ sviðs ﴾samtals 1.220﴿. Rétt er að taka allan samanburð með fyrirvara þar sem rannsóknirnar eru ólíkar. Samkvæmt töflu 1 er fjöldi útlána mjög svipaður. Munurinn er þó mestur í fyrstu tveimur flokkunum þar sem 39% nema á Menntavísinda­ sviði höfðu ekkert fengið að láni á árinu á móti 47% nema í Huddersfield, og 24% nema á Menntavísindasviði voru með eitt til fimm útlán á árinu á móti 14% nema í Huddersfield. Hudders­ field rannsóknin útilokaði nema í hlutanámi, fjar­ námi, í styttri námskeiðum og fámennum námskeiðum ﴾Goodall og Pattern, 2011, bls. 164﴿. En eru tengsl milli fjölda útlána og einkunna á Menntavísindasviði og er sá munur marktækur eins og í The Library Impact Data Project? ﴾Stone og Ramsden, 2013, bls. 546; 554﴿. Til að kanna hvort svo sé var miðað við útlán útskriftarnema sem brautskráðust í júní 2013. Á Kennarabraut eru margir í diplómanámi ﴾bæði á grunnstigi og í framhaldsnámi﴿. Þessir einstaklingar fá yfirleitt minna lánað en aðrir nemar og þau skila ekki lokaverkefni. Af þeim sökum voru nemar í diplómanámi ﴾samtals 38﴿ fjarlægðir úr úrtakinu til að fá marktækari niðurstöður og raunhæfari sam­ anburð milli deilda. Töluverður munur reyndist vera á útlánum útskriftarnema eftir námsstigi. Grunnnemar fengu að meðaltali meira að láni en meistaranemar og 40% meistaranema voru ekki með nein útlán á árinu á móti 20% grunnnema. Því var ákveðið að þrengja úrtakið enn frekar og skoða eingöngu útskriftarnema í grunnnámi, samtals 224 ﴾sjá mynd 4﴿. Þá er einnig raunhæf­ ara að bera saman niðurstöðurnar við The Library Impact Data Poject sem tekur einungis til út­ skriftarnema í grunnnámi. Eins og áður er miðað við útlán skólaárið 2012–2013. Ljóst er að útlán útskriftarnema í grunnnámi eru tölu­ vert hærri en útlán grunnnemanna allra ef við berum saman mynd 3 og 4. Enda er það ekki ósennilegt að vinna við lokaverkefni auki útlán, en langflestir nemar ljúka verkefni sínu á lokaárinu. Að meðaltali fengu út­ skriftarnemar 13 bækur að láni yfir árið en sá nemandi sem var með flest útlán fékk 97 bækur að láni. Helming­ ur nemanna fékk fleiri en sjö bækur að láni yfir árið. Ef skoðuð er fyrst meðaleinkunn við útskrift í hverju útlánaþrepi í töflu 2 er ljóst að meðaleinkunn við útskrift hækkar eftir því sem útlánum fjölgar. Þó er hækkunin mjög lítil og meðaleinkunn í öllum flokkunum er 1. stigs einkunn ﴾7,25– 8,99﴿. Mynd 1 – Útlán grunnnema eftir deild Mynd 2 – Útlán framhaldsnema eftir deild Mynd 3 – Útlán eftir námsstigi

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.