Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 44

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 44
Bókasafnið 38. árg. 2014 44 reglur og fyrirmæli sem er að finna í skjalastjórnunar­ staðlinum ÍST/ISO 15489 ﴾Staðlaráð Íslands, 2005a; 2005b﴿. Fram kom að talsverður hluti þátttakenda hafði hvorki fullt né skýrt umboð til athafna á innleiðingartíma RSSK. Það leiddi til þess að innleiðingin gekk ekki eins og til var ætlast í upphafi. Þar sem aftur á móti fullt og skýrt umboð var til staðar heppnaðist innleiðingin mun betur. Það er í samræmi við aðrar rannsóknir á innleið­ ingu og notkun starfsfólks á upplýsingakerfum almennt ﴾Armstrong og Sambamurthy, 1999; Brittain, 1992; Fjer­ mestad og Hiltz, 2000/­2001; Laudon og Laudon, 2002; Orlikowski, 1992﴿. Þá skiptir máli að veita starfsfólki, sem að breytingarverkefnum vinnur, umboð til athafna og þátttöku í breytingarferlinu ﴾Jóhanna Gunnlaugsdótt­ ir, 2006; Kotter og Cohen, 2002﴿. Rannsóknin leiddi enn fremur í ljós að stjórnendur og annað samstarfsfólk gerðu sér ekki grein fyrir því að starf skjalastjóra byggist á mikilli sérfræðiþekkingu og þeir hefðu að jafnaði mikla menntun og starfsreynslu. Fram kom að ákveðin tog­ streita hefði myndast á einum vinnustað milli skjalastjóra og tölvudeildar varðandi RSSK. Þær aðstæður eru ekki einsdæmi eins og rannsóknir sýna ﴾Jóhanna Gunn­ laugsdóttir, 2006﴿. Þátttakendur voru sammála um að stjórnendur yrðu að styðja vel við breytingarferlið, sýna gott fordæmi og vera góð fyrirmynd hvað notkun RSSK varðaði. Það kemur heim og saman við tillögur ÍST/ISO 15489 ﴾Staðlaráð Íslands, 2005a; 2005b﴿. Niðurstöður gáfu til kynna að allstór hluti þátttakenda naut ekki stuðnings æðstu stjórnenda í breytingarferlinu hvað RSSK varðaði sem hamlaði því að innleiðingin reyndist árangursrík. Þar sem aftur á móti góður stuðningur stjórnenda var til staðar heppnaðist innleiðingin umtalsvert betur. Aðrar rannsóknir sýna sambærilegar niðurstöður ﴾Gregory, 2005; Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 2005; 2007; Maguire, 2005﴿. Þá kom fram að í sumum tilvikum hafði ekki verið staðið nægjanlega vel að þjálfunar­ og fræðslumálum skjalastjóra fyrir innleiðingu RSSK og stjórnendur sýndu lítið frumkvæði við innleiðinguna en slíkt hefur iðulega í för með sér að innleiðing RSSK misheppnast ﴾Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 2007﴿. Enn fremur virtist mikilvægt að millistjórnendur styddu við bakið á innleiðingu RSSK en þeir gegna oft lykilhlutverki í breytingum ﴾Sigríður Ásta Ásbjarnardóttir, 2009﴿. Niðurstöður rannsóknarinnar gætu haft hagnýtt gildi fyrir stjórnendur skipulagsheilda sem vilja innleiða eða endurinnleiða RSSK á vinnustað. Aflað hefur verið nýrrar þekkingar á því að hve miklu leyti skjalastjórar hafa umboð til athafna í breytingarferli á innleiðingartíma RSSK svo og hversu miklu máli ríkur stuðningur stjórn­ enda skiptir í breytingarferlinu. Niðurstöðurnar hafa einnig fræðilegt gildi. Þær gefa innsýn í daglegt líf og starf starfsfólks í skipulagsheildum og sýna hvað veldur því að það nýtir sér eða nýtir sér ekki þá nýju tækni sem innleiða skal. Loks má nefna að rannsóknin getur skap­ að grundvöll til frekari rannsókna. Abstract: The records manager's empowerment and management support in implementing an electronic records management system, ERMS This paper focuses on two topics; empowerment of the record manager to take action in the implementation process and the importance of management support in implementing electronic records management system. The study was based on mixed research methods, qualitative methodology and quantitative research met­ hods. Eight record managers were interviewed by using semi­structured questions who had participated in impl­ ementation of electronic record management systems in organizations. Questionnaire was also sent to indi­ viduals in IRMA ­ Icelandic Records Management Association. The data was collected from October 2010 to Mars 2013. The focus was on the following topics: Wether empowerment to take action necessary in the implementation process and how important manage­ ment support was for the implementation of an electronic records management system. The main results seem to indicate that it is valid to use methods, theories and models of change management to support the implementation process of an electronic record management system. It’s necessary to define the role for the record manager from the beginning of the impl­ ementation process. Make him responsible for all aspects of records management including the design, implementation and maintenance and monitoring systems within the organization. It is also necessary to inform employees why the implementation is being carried out and what is the main purpose of the change. It is vital to supply the record manager with authority to act as well as to define scope of work and to let the employees know about the mandate. Heimildir Amalía Björnsdóttir. ﴾2003﴿. Útskýringar á helstu tölfræðihugtökum. Í Sigríður Halldórsdóttir og Kristján Kristjánsson ﴾ritstjórar﴿. Handbók í aðferðafræði og rannsóknum í heilbrigðisvísindum ﴾bls. 115­129﴿. Akureyri: Háskólinn á Akureyri. Armstrong, C. P. og Sambamurthy, V. ﴾1999﴿. Information technology assimilation in firms: The influence of senior leadership and IT infrastructures. Information System Research, 10﴾4﴿, 304­327. Auður Hermannsdóttir og Sif Cortes. ﴾2012﴿. Vinnustaðamenning við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.