Bókasafnið

Eksemplar

Bókasafnið - 01.06.2014, Side 66

Bókasafnið - 01.06.2014, Side 66
Bókasafnið 38. árg. 2014 66 kostsins enn í geymslu úti í bæ. Eftirspurnir úr þeim safnkosti eru skráðar niður og efni sótt þangað einu sinni í viku, en vonir standa til að hægt verði að koma öllum safnkostinum fyrir á þessu ári. Það var því snemma ljóst að gera þurfti ýmsar breytingar á núverandi húsnæði og hluti þeirra breytinga hefur nú þegar farið fram, meðal annars með niðurbroti veggja. Við flutningana var tekin sú ákvörðun að hafa alla menningarviðburði innan safnsins en áður höfðu allir stærri dagskrárliðir farið fram í menningarsölum Reykjanesbæjar, svo sem Listasafni og Bíósal. Í Ráð­ húsinu rekur Angela Marina Barbedo Amaro Ráðhúskaffi og gaman hefur verið að prófa samstarf við kaffihúsið. Í nóvembermánuði voru til að mynda þrjú Bókakonfekt þrjú síðdegi í röð í stað einnar stórrar dagskrár í byrjun desember. Árleg menningardagskrá til heiðurs Erlingi Jónssyni listamanni var einnig með nýju sniði í ár. Aðrar breytingar urðu á starfsemi Bókasafns Reykjanesbæjar árið 2013. Hulda Björk Þorkelsdóttir for­ stöðumaður til 21 árs lét af störfum og við forstöðu tók Stefanía Gunnarsdóttir bókasafns­ og upplýsingafræð­ ingur. Stefanía hefur auk þess mastersgráðu í opinberri stjórnsýslu og rúmlega sex ára starfsreynslu á safninu. Fastráðnir starfsmenn safnsins eru samtals 10 í mismikl­ um starfshlutföllum. Mynd.4 Upplýsingaþjónusta eftir breytingar 1984 Geng niður götu minninganna hvar litirnir fölna, blöðin sölna, hrópin hljóðna, en sól skín að eilífu. Steikjandi hitinn á malbikinu útvarp í fjarska, hamarshöggin, rauðröndótt sippuband, hring eftir hring eftir hring eftir hring. Eyrún Ýr Tryggvadóttir

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar: 38. árgangur (01.06.2014)
https://timarit.is/issue/382244

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

38. árgangur (01.06.2014)

Handlinger: