Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 77

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 77
Bókasafnið 38. árg. 2014 77 Kölnarsafni glæpasagna­sjálfsala að láni án endurgjalds í nokkur ár. Sjálfsalinn sem er samstarfsverkefni er fyrsti sjálfsali sinnar tegundar í Þýskalandi. Samningurinn milli safnsins og Sorting Systems er þannig að eftir nokkur ár, þegar reynsla er komin á sjálfsalann, skal notkun hans metin og vilji safnið halda áfram notkun sjálfsalans mun það leigja tækið af Sorting Systems. Leyfi var feng­ ið hjá stjórn almenningssamgangna í Köln fyrir afnot af svæði í lestarstöð við Neumarkt-Passage sem er ekki langt frá aðalsafninu. Þetta er nýbreytni í þjónustu sem er ekki í boði annars staðar. Stjórn almenningssam­ gangna í Köln samþykkti að safnið þyrfti ekki að greiða leigu þar sem um er að ræða frumkvöðlaverkefni, en al­ mennt er svæðisleiga í lestarstöðvum mjög há. Safnið fékk mikla fjölmiðlaumfjöllun þegar sjálfsalinn var tekinn í gagnið og voru bæði ljósvaka­ sem og prentmiðlar með veglega umfjöllun um þessa nýbreytni. Þegar tilboðið kom frá Sorting Systems, framleið­ anda vélarinnar, veltu menn fyrir sér hvaða bókmennta­ tegund ætti að bjóða upp á. Glæpasögur urðu fyrir valinu ﴾krimmar﴿, bækur sem eru í brennidepli þessa stundina. Vélin er eingöngu með kiljur og eru 800 bæk­ ur í henni. Auðvelt er að leita í vélinni að efni á snerti­ skjá. Lánþegar nota skírteini til að fá lánaðar bækur. Einnig er hægt að skila bókunum aftur í vélina eða í safnið. Vélin er opin allan sólarhringinn öllum þeim sem eru með gilt bókasafnsskírteini. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvort áframhald eigi að vera á notkun þessa tækis þar sem leigan er há. Metið verður á næstunni hvort áframhald verði á þjónustunni. Nördar Á safninu eru reglulegir viðburðir með tækjakynn­ ingum, fyrirlestrum og „hittingum” fyrir „nörda” eins og þekkist af samfélagsmiðlunum en ekki utan þeirra. Með­ al heppnaðra viðburða er „Vísindaslamm“ sem er í lík­ ingu við ljóðaslamm, þar sem vísindamenn kynna sín sérsvið á óhefðbundinn og einfaldan hátt. Af öðrum viðburðum má nefna þegar tveir aðilar frá þýsku geimferðarstofnuninni ásamt einum aðila frá þeirri evrópsku héldu fyrirlestur um störf sín og komust færri að en vildu. Umsjónaraðilar Geeks viðburðanna stefna að því að fá aðila frá þýsku geimferðastofnuninni árlega á „Nörda viðburði” ﴾geeks event﴿. Höfundar veltu fyrir sér hvort hægt væri að útfæra „nörda viðburð“ í Bóka­ safni Kópavogs, til dæmis með því að vera með teikni­ mynda­ og fantasíuviðburð í samvinnu við Nexus bóka­ og leikjasölu. Einnig væri tilvalið að fá Sprengjuteymið til að vera með sýningu og umræður um efnafræði. Fyrir­ tækið Geeks@cologne er með eigin vefsíðu http://geekscologne.mixxt.de/ sem Babett Hartmann, starfsmaður bókasafnsins sér um. Þrívíddarprentari Í Kölnarsafni hefur þrívíddarprentari verið tekinn í notkun til almenningsnota. Prentarinn var nokkuð dýr, kostaði um 2.200 evrur. Tækið prentar litla hluti úr plasti eftir teikningu úr þar til gerðri skrá sem koma verður með í safnið. Til eru stórir prentarar sem prenta út heilu byggingarnar og gera það að verkum að hægt er að vera með óhefðbundið byggingarform. Í alþjóðlegu geimstöðinni sem svífur á sporbraut um jörðu er þrívídd­ arprentari sem býr til varahluti í geimstöðina úr þeim efnum sem þar þarf að nota – eins konar varahluta­ prentari. Það vakti mikla athygli þegar safnið fékk þenn­ an prentara og var fjallað um það í fjölmiðlum. Í dag er boðið upp á sýningu á þrívíddarprentun vikulega og geta viðskiptavinir komið með hlut til útprentunar þeim að kostnaðarlausu. Talsvert er um að nemendur í arkitektúr komi með teikningar af hlutum eða byggingum sem þeir fá prentað út til að setja á þrívíddarlíkan. Til þess að geta nýtt sér þessa þjónustu þurfa skjölin sem við­ skiptavinir hafa meðferðis að vera á STL formi ﴾standard tessellation language﴿. Plastið sem notað er í þrívíddar­ prentun er 1.8 mm þykkur hitaþolinn plastþráður PLA ﴾Polylactide ­ Polylactic acid﴿. Prentarinn hitar plastið og leggur það í lögum þar til hluturinn er fullgerður, en það getur tekið allt frá nokkrum mínútum upp í nokkra klukkutíma að prenta út einn hlut ­ allt eftir stærð og því hversu flókin teikningin er. Makerspace Skemmtileg nýjung í starfi bókasafnsins í Köln er Makerspace. Þar er búið að koma upp all góðu hljóðveri og vinnuaðstöðu fyrir upprennandi tónlistarmenn. Þar er hljómborð sem er hægt að tengja við tölvu á staðnum og inniheldur hugbúnað sem hljómborðið spilar á. Þarna er einnig fjölbreyttur hljóðbreytir fyrir gítar og gítarmagnari, góður hljóðmixer, hljóðnemi og sérstakir hljóðvers­ hátalarar. Makerspace Kölnarsafns er hugsað fyrir upprenn­ andi listamenn bæði til að koma saman og skiptast á hugmyndum og líka til leiða saman hesta sína. Enn fremur geta tónlistarmenn fengið aðstöðuna til afnota fyrir prufuupptökur ﴾demos﴿. Framtíðaráform safnsins eru þau að tengja fleiri listgreinar í Makerspace, til dæmis myndbandagerð, myndvinnslu. Makerspace er á fimmtu hæð safnsins þar sem tónlistardeildin er og á vel við þar sem fyrsta hlutverk Makerspace rýmisins er tónlistartengt. Að sögn Babett Hartmann, sem hefur um­
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.