Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 87

Bókasafnið - 01.06.2014, Síða 87
Bókasafnið 38. árg. 2014 87 Guðrún Hólmfríður Gísladóttir fæddist á Eyrarbakka 5. september 1920. Foreldrar hennar voru Gísli Ólafur Pétursson læknir og Aðal­ björg Jakobsdóttir. Systkinin voru sjö sem upp komust, sex bræður ásamt Guðrúnu. Einn bræðranna var Jakob Gíslason sem var raf­ orkumálastjóri frá 1947 og síðar orkumálastjóri fram til 1972. Guðrún stundaði nám við Gagnfræðaskóla Lúðvíks Guðmundssonar á Ísafirði og hjá Ágústi H. Bjarnasyni við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga þar til hún fékk inngöngu í stærðfræðideild 4. bekkjar Menntaskólans í Reykja­ vík árið 1937. Þar lauk hún stúd­ entsprófi vorið 1941. Guðrún giftist Pétri Sumarliðasyni kennara árið 1939. Þau eignuðust fjóra drengi á árunum 1940­1949. Guðrún kenndi einn vetur stærðfræði í Kvennaskól­ anum og vann sumarstörf hjá Raf­ orkumálaskrifstofunni við útreikninga úr landmælingum og teiknun korta. Stofnunin keypti bækur til að styðja við rannsóknir sínar og í þær sóttu fræðimenn mikið. Til að hafa reglu á hlutunum keypti stofnunin þýska kerfið UDK sem byggði á bóka­ safnskerfi Dewey. Með öðrum störf­ um var Guðrún fengin til að flokka bækur stofnunarinnar eftir þessu kerfi og koma reglu á notkun þeirra. Hún var svo ráðin í fasta vinnu við safnið en naut þess ekki í launum þar sem hún hafði ekki menntun á sviði bókasafna. Á sjöunda ára­ tugnum var farið að kenna bóka­ safnsfræði við Háskóla Íslands og Guðrún fékk leyfi til að sækja það nám með vinnu. Hún lauk BA­prófi með þremur stigum í bókasafns­ fræði, tveimur í jarðfræði og einu stigi í bókmenntafræði vorið 1972. Prófritgerð hennar sem hún lauk ár­ ið 1967 fjallaði um tímaritakaup á ríksstofnunum og varð seinna grunnur að samskrá um erlend tímarit á íslenskum bókasöfnum. Á þessum árum urðu flestir náms­ menn í verkfræði og náttúruvísind­ um að sækja nám sitt til annarra landa. Háskóli Íslands kenndi til fyrri hluta prófs í verkfræði og kennsla í jarðfræði og landfræði var ætluð kennaranemum til BA­prófs. Starfandi verkfræðingar og fræðimenn í nátt­ úruvísindum gátu því lítið sótt til Há­ skólabóksafns eða Landsbókasafns í sínum fræðum. Því var algengt að þeir færu utan og dveldu við gagna­ öflun á erlendum söfnum. Rann­ sóknastofnanir urðu að bjarga sér með eigin söfnum og þau voru með­ al annars byggð upp á Hafrann­ sóknastofnun, Veðurstofu Íslands og Tilraunastöðinni á Keldum. Jakob Gíslason raforkumálastjóri stefndi að virkjun vatnsfalla og jarð­ hita og réð til sín framsýna fræði­ menn, svo sem Gunnar Böðvarsson og Guðmund Pálmason á sviði jarð­ hita og Jakob Björnsson og Hauk Tómasson á sviði jarðfræði og orku­ verkfræði. Þeir lögðu mikla áherslu á að afla tímarita og fræðibóka vegna rannsókna sinna og undir stjórn Guðrúnar varð bókasafn Raf­ orkumálaskrifstofu og síðar Orku­ stofnunar lykilsafn í þessum fræðum. Við úttekt á söfnum ríkis­ stofnana þóttu söfn Hafrannsókna­ stofnunar, Veðurstofu Íslands og Raforkumálaskrifstofu taka öðrum fram. Guðrún vann braut­ ryðjendastarf við skipulagningu, varðveislu og þjónustu í sínu safni og til hennar leituðu allir sem störf­ uðu í þessum greinum. Bókasafnið sá einnig um útgáfu á skýrslum stofnunarinnar sem urðu brátt mjög miklar að umfangi. Guðrúnu var einnig falið að skipuleggja skjala­ safn stofnunarinnar. Hún leitaði fyr­ irmynda í Danmörku og Noregi og lagaði þær að þörfum stofnunarinn­ ar. Guðrún var einn af stofnendum Félags bókasafnsfræðinga árið 1973. Hún var einnig stofnfélagi í Félagi um skjalastjórn og lengi virk í Kvenréttindafélagi Íslands og bar­ áttu fyrir launamálum kvenna. Störf hennar voru mikils metin í öllum þessum félögum og hún gerð heið­ ursfélagi í þeim öllum. Nú getum við sótt heimildir, tímaritsgreinar og jafnvel bækur á augabragði hvaðan sem er úr heim­ inum. Við eigum því erfitt með að gera okkur í hugarlund þá erfiðleika sem Guðrún glímdi við í frumkvöð­ ulsstarfi sínu. Hún átti drjúgan þátt í þeim mikilvæga árangri sem Raf­ orkumálaskrifstofan og Orkustofnun náðu í virkjun vatnsafls og jarðhita. Hennar verður lengi minnst sem merks brautryðjanda í bókasöfnum hér á landi. Sveinbjörn Björnsson Guðrún Gísladóttir 1920­2013 Minning
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.