Morgunblaðið - 25.04.2015, Síða 27
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2015
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Malín Brand
malin@mbl.is
Lokað hefur verið um tveggja vikna
skeið í bakaríi Bakarameistarans í
Suðurveri. Þó er ekki þar með sagt
að allt hafi verið með kyrrum kjör-
um þar á meðan. Síður en svo! Á
þessum tveimur vikum hefur hver
sólarhringur verið nýttur eins vel og
hægt var og bakaríið hreinlega end-
urnýjað. Systkinin Andri og Sig-
urbjörg reka Bakarameistarann
ásamt föður sínum og stofnandanum
Sigþóri Sigurjónssyni og hafa haft í
nógu að snúast við að gera gera bak-
aríið í Suðurveri einnig að kaffihúsi.
Stein- og pitsuofnar
Þegar gera á eins viðamiklar
breytingar og í þessu tilviki er eins
gott að gæta vel að undirbúningi til
að hlutirnir gangi hratt fyrir sig.
Tvær vikur eru ekki svo langur tími
þegar allt kemur til alls en nokkrum
tíma hefur verið varið í að taka stór-
ar ákvarðanir um aukið vöruúrval,
nýjar innréttingar og fleira. Þre-
menningarnir hafa farið nokkrum
sinnum út til Þýskalands til tækja-
kaupa enda bakaríið byggt upp að
þýskri fyrirmynd.
„Við erum búin að taka húsnæðið
alveg í gegn, skipta um allar lagnir,
veggi og gólf,“ segir Sigurbjörg um
helstu þrekvirkin sem unnin hafa
verið á síðustu tveimur vikum.
„Nánast öll tæki hafa verið endur-
nýjuð. Við erum með nýja ofna í
búðinni auk steinofna og pitsuofns.
Við höfum útbúið horn þar sem
verður bakað og eldað allan daginn,“
segir Andri. Viðskiptavinir geta
fylgst með bakara og kokki að störf-
um á meðan þeir njóta veitinganna
þar sem hluti starfseminnar hefur
verið færður inn í aðalrýmið. Sjálft
aðalrýmið hefur stækkað umtalsvert
frá því sem áður var og er húsnæðið
nú um 80 fermetrum stærra og geta
55 manns sest þar að snæðingi.
Sigurbjörg segir að mikil áhersla
sé lögð á að viðskiptavinurinn fái
vöruna sem ferskasta. „Við bökum
jafnt og þétt yfir daginn, tökum
rúnnstykkin úr ofninum, smyrjum
þau og setjum á disk viðskiptavin-
arins þannig að hann fær þetta al-
veg nýtt og ferskt,“ segir hún.
Kræsingar og kruðirí
Hægt verður að velja úr enn fleiri
vörutegundum en áður og munu
ýmsar nýjungar prýða hillur bak-
arísins í Suðurveri. „Fólkið á að
þekkja okkar vöru þó að við komum
með nýjungar. Við munum bjóða
upp á ommilettur og verðum með
pitsur í hádeginu sem við bökum í
okkar stíl. Við erum vissulega með
þekkta vöru þannig að það má ekki
breyta of miklu,“ segir Sigurbjörg.
Það verður því boðið upp á gott úr-
val bakkelsis og brauða sem verður
með sama handbragði og við-
skiptavinir Bakarameistarans
þekkja en tegundirnar verða marg-
ar. „Við erum búin að sækja okkur
nýjar uppskriftir en þetta verður
bakað á gamla mátann í steinofn-
inum í búðinni fyrir framan fólkið,“
segir Andri.
Þó svo að uppskriftirnar liggi ekki
fyrir allra augum eiga viðskiptavinir
kost á að fylgjast vandlega með því
hvernig kræsingarnar verða til í
fimum höndum bakarans í nýopnuðu
bakaríinu og kaffihúsinu í Suð-
urveri.
Nýjungar upp á gamla mátann
Bakarameistarinn í Suðurveri stækkar um 80 fermetra Sæti fyrir 55 manns Viðskiptavinir fá
að fylgjast með bökurum að störfum Suðurver er elsta bakarí Bakarameistarafjölskyldunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægð Sigurbjörg, Sigþór og Andri, er ánægð með þær góðu breytingar sem orðið hafa í Suðurveri.
Bakarameistarinn opnaði fyrsta
bakarí sitt í Suðurveri árið 1977.
Síðan hafa fleiri bæst við, eitt
af öðru og alls er Bakarameist-
arinn á sex stöðum: Í Mjódd,
Glæsibæ, Húsgagnahöllinni,
Smáratorgi og Austurveri. Á
hverjum stað má nú setjast nið-
ur og dreypa á rjúkandi kaffi
með kruðeríinu. Lengstur er af-
greiðslutíminn í Suðurveri en
þar er opnað alla daga klukkan
6.30 á morgnana, að sunnudög-
um undanskildum. Þá er opnað
klukkan 7 og bregst það ekki að
fjöldi fólks leggur leið sína í
bakaríið snemma á sunnudags-
morgnum sem aðra daga.
6 bakarí opn-
uð á 38 árum
BAKAÐ AF LÍFI OG SÁL