Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Síða 2
Landsdómur kaLLaður saman n Þingmannanefndin sem ákveðið hefur að draga ráðherra fyrir landsdóm staðnæmist ekki síst við skort á formfestu stjórn- sýslunnar, ráðherraræðið og ólöglegt pukur með mikilvægar upplýsingar er varða þjóðar- heill. Nefndin vill koma í veg fyrir að einstakir ráðherrar gangi inn á vald- og ábyrgðarsvið annarra ráðherra. Slíkt verklag í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haar- de og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur einangraði Björgvin G. Sigurðsson frá lögboðnum verkefnum viðskiptaráð- herra. Biskup deiLir um æðardún n Biskupsstofa neitar að láta af hendi ítak sem hún telur sig hafa í hólma á Hagavatni á Snæfellsnesi. Þjóðkirkjan á jörðina Staðarstað á Snæfellsnesi í ná- grenni vatnsins en jörðin liggur ekki upp að vatninu. Saga nýting- arréttarins sem kirkjan telur sig eiga í hólmanum er rakin aftur til 15. aldar. Sóknarpresturinn á Stað- arstað fær að tína æðardún í hólmanum og selja hann sjálfur svo að ágóðinn rennur í hans eigin vasa. Óumdeilt er að þjóðkirkj- an á ekki hólmann en deilan snýst um hvort hún hafi réttinn til þess að tína æð- ardún í honum. Biskupsstofa telur sig vera í fullum rétti. Jörðin Hagi liggur upp að Hagavatni og á þann hluta vatnsins sem umlykur hólmann. Landeigandinn þar telur að kirkjunnar menn tíni æðardún í hólmanum í órétti og hefur kært sóknarprestinn á Staðarstað, séra Guðjón Skarphéðinsson, til lögreglu fyrir ólöglega dúntöku í hólmanum. Tekjur af æðardúni úr hólmanum munu nema allt að 300.000 krónum á ári. Jón „stóri“ í gæsLuvarðhaLdi n Jón Hilmar Hallgrímsson var úrskurð- aður í gæsluvarðhald til föstudags en sleppt úr haldi lögreglu á miðvikudag. Hann er grunaður um að hafa hótað kúbverskum pilti lífláti og valdið eignaspjöllum á heimili hans. Jón, sem iðulega gengur undir nafninu Jón stóri, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Kærasta kúbverska piltsins segir í sam- tali við DV að hún sé hrædd við Jón Hilmar. Hún vill ekki koma fram undir nafni vegna þess hve málið er orðið mik- ið að umfangi. Pilturinn og faðir hans flúðu land eftir að ráðist var inn á heim- ili þeirra. „Ég læt ekki Jón stóra stöðva mig,“ segir stúlkan. Lögreglan verst allra fregna af rannsókn málsins. Kærastan segir að upptökur séu til af samtöl- um við þá sem stóðu í hótunum. Hún segir að strax hafi verið leitað til lög- reglu sem hafi upptökurnar undir höndum. Lögreglan vill þó ekki staðfesta orð kærustu piltsins. 2 3 1 mánudagur og þriðjudagur 13. – 14. september 2010 dagblaðið vísir 105. tbl.100. árg. – verð kr. 395 „þakklátir fyrir að lifa af“ ráðherrar bíða ákæru og landsdóms: leynimakk og lygar n sjálfstæðismenn vilja ekki kalla saman landsdómn deilt um ákæru á hendur björgvini g. sigurðssynin geir h. haarde sagði margsinnis ósatt fyrir hrunn stirt samband björgvins g. og davíðs n einkavæðing bankanna ekki rannsökuð n dýrasti benz landsins gjöreyði- lagðist á hringbraut fréttir sÉra HalldÓr skriFaði brÉF: fréttir bað ráð- herra að reka biskuP biskuP neitar að hætta dÚntöku ódýrast í nautilus n land- eigandi bÚinn að kæra verð á líkaMsrÆktarkOrtUM: fréttir neytendur KLÆÐ- LITLAR STÚLKUR FÁ BOL mIÐvIKUdAgUR og FImmTUdAgUR 15. – 16. september 2010 dagblaðið vísir 106. tbl.100. árg. – verð kr. 395 10 varasamir kúrar: HÆTTULEg mEgRUN FRéTTIR Jón „stóri“ í gæsluvarðhaldi: rukkari tekinn n BLANdAÐI SéR Í RIFRILdI UNgLINgA n REKUR FYRIRTÆKIÐ INNHEImTU Og RÁÐgJÖF n KÚBvERSKU FEÐgARNIR FLÚÐU LANd UNdAN HONUm n KÆRASTAN: „ég LÆT EKKI JóN STóRA STÖÐvA mIg“ NEYTENdUR SiÐFerÐiS- ÞrOSki ÞinGManna aLDa GJaLD- ÞrOta VINNUR MEÐ DANIEL CRAIG FóLK suðurnes: FRéTTIR FRéTTIR ríkur rithöfundur: mEÐ FJóRTÁN mILLJóNIR Á mÁNUÐI FRéTTIR ÍSLANd Í HóPI mEÐ ÞRIÐJA HEImINUm GALDURINN á bak við hjónabandið ÚTTEKT Þessar fréttir bar hæst í vikunni þetta helst Aðgerðahópur gegn klámi segir klám með vísan í barnaníð fást í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Plaköt með grófum dæmum voru hengd upp víða í miðborginni í gær. hitt málið 2 fréttir 17. september 2010 föstudagur Bjargar mannslífum PRIMEDIC hjartastuðtækið • Ávallt tilbúið til notkunar • Einfalt og öruggt • Einn aðgerðarhnappur • Lithium rafhlaða • Íslenskt tal Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is 101 gæðastund suðrænir smáréttir – allir drykkir á hálfvirði frá kl. 17.00 til 19.00 alla daga hverfisgata 10 sími. 5800 101 101hotel@101hotel.is www.101hotel.is Gróft efni sem hefur sterka vísun í barnaklám fæst í umtalsverðu úrvali í verslunum sem sérhæfa sig í klám- varningi og erótískum vörum. Að- gerðahópur sem berst gegn klámi fór í vettvangsferðir í nokkrar klám- verslanir höfuðborgarsvæðisins og tók dæmi um það hversu gróft klám er að ræða. Hópurinn útbjó plaköt sem meðlimir hengdu upp í skjóli nætur og eru ætluð til þess að vekja almenning til umhugsunar. Fólk vakni til vitundar Forsprakki hópsins segir óskandi að fólk vakni til vitundar um klám- heiminn og hafi hann ekki í flimt- ingum. Forsprakkinn vill ekki koma fram undir nafni af ótta við að vera sóttur til saka fyrir birtingu á klám- plakötum í miðbænum. Forsprakk- inn bendir á að klámbransinn sé grófur og einkennist af ofbeldi og áþján. Ef litið er á kynferðislegt efni sem er á boðstólum hér á landi er ljóst að 210. grein almennra hegn- ingarlaga eru þverbrotin. Í greininni er kveðið á um sektir og fangelsisvist við birtingu á klámi. Meðlimir hópsins eru afar ósáttir við að á landinu sé engin virðing bor- in fyrir lögunum. Þeir benda fólki á að það sé alveg ljóst að áherslur iðn- aðarins, sem það talar svo oft fyrir í nafni frelsis, liggi í barnaníði og al- mennri áþján. Myndir á borð við Barely Legal „Efnið sem við fundum var mjög gróft og þau dæmi sem við tókum um hvað má kaupa í verslunum hér á landi eru aðeins dropi í hafið. Meiri- hluti efnisins hefur vísun í barna níð og er viljandi á mjög gráu svæði,“ segir forsprakkinn og tekur dæmi um kynningu á einni mynd sem fæst í einni versluninni – myndir eins og Barely Legal, Legal Pink og School- girl Classics eru meðal mynda þar sem klám er sett upp með sterka og augljósa vísun í barnaníð. Eigandi verslunarinnar Adams og Evu á Hverfisgötu, sem selur klám- varning, játar því að tvær myndanna á plakatinu hafi verið til sölu í versl- un hans. Hann segist alfarið á móti barnaníði eins og landsmenn allir og tekur fyrir að í vöruúrvalinu megi greina þessar áherslur. Hann segist vilja henda umræddum myndum og býður aðgerðahópnum að aðstoða sig við verkið. Honum sé umhugað um að barnaníð og sifjaspell sé upp- rætt og hugnast ekki að varningur með augljósa vísun í slíkt sé á boð- stólum. Eigandi Adams og Evu segir lögunum ekki framfylgt nema í örfáum tilfellum og segir ástæð- una hljóta að vera þá að lögreglan vilji einbeita sér að því að uppræta barnaníð og vændi. Lögin tekin alvarlega Eitt plakata hópsins mátti sjá árla morguns á hurð dóms- og mann- réttindaráðuneytis. Að sögn meðlima hópsins vilja þau sjá frekari að- gerðir. Í landinu gildi lög gegn klámi og að eftir þeim skuli fara. Halla Gunnarsdótt- ir, aðstoðarkona dóms- mála- og mannrétt- indaráðherra, segir að ráðuneytið taki skila- boð aðgerðahópsins alvarlega. „Fyrir það fyrsta þá er útbreiðsla og sala á klámi bönn- uð með lögum á Ís- landi og það varðar allt að tveggja ára fangelsi þegar börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfeng- inn hátt. Klámframleiðendur og -seljendur hafa stundum falið sig á bak við fullyrðingar um að við- komandi leikkonur eða leikarar hafi náð átján ára aldri. Erfitt er að færa sönnur á það. Í því samhengi mætti skoða möguleika á að skýra löggjöfina betur þannig að hún taki ótvírætt til þess þegar klámefni er barngert. Efni þar sem æskan er klámvædd eða gerð erótísk á ein- faldlega að vera ólöglegt. Þá mætti til dæmis ekki selja eða dreifa efni þar sem tvítug leikkona er klædd upp eins og barn eða látin hegða sér eins og barn í kynferðislegum tilgangi.“ Ekki náðist í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við vinnslu fréttarinnar. kristjana guðBrandsdóttir blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is leynilegur hópur benti á barnaklám Meirihluti efnis-ins hefur vísun í barnaníð og er viljandi á gráu svæði. 6 fréttir 13. september 2010 mánudagur Opið virka daga 12-18 laugardag 12-16 LAGERSALA www.xena.is no12 st. 41-46 verð kr. 7995.- no16 st. 36-41 verð kr. 6495.- no21 st. 36-46 verð kr. 4995.- no22 st. 36-41 verð kr. 7995.- Góðir skór - gott verð Mikið úrval af nýjum skóm á alla fjölskylduna Biskupsstofa neitar að láta af hendi ítak sem hún telur sig hafa í hólma á Hagavatni á Snæfellsnesi. Þjóð- kirkjan á jörðina Staðarstað á Snæ- fellsnesi í nágrenni vatnsins en jörð- in liggur ekki að vatninu. Saga þess að kirkjan telur sig eiga nýtingarrétt í hólmanum er rakin aftur til 15. ald- ar. Sóknarpresturinn á Staðarstað fær að tína æðardún í hólmanum og selja hann sjálfur, þannig að ágóð- inn rennur í vasa hans. Óumdeilt er að Þjóðkirkjan á ekki hólmann, en deilan snýst um hvort hún hafi rétt- inn til þess að tína æðardún í honum. Biskupsstofa telur sig vera í fullum rétti. Jörðin Hagi liggur að Hagavatni og á þann hluta vatnsins sem umlyk- ur hólmann. Eigandi jarðarinnar tel- ur að kirkjunnar menn tíni æðardún úr Hólmanum í órétti og hefur kært sóknarprestinn á Staðarstað, séra Guðjón Skarphéðinsson, til lögreglu fyrir ólöglega dúntöku. Tekjur af æð- ardúni úr hólmanum nema allt að 300 þúsund krónum á ári. Mörg hundruð ára Í gegnum aldirnar hefur Þjóðkirkjan eignast ítök í jörðum um allt land, en ítök ganga út á að kirkjan hefur nýt- ingarrétt af tilteknum auðlindum eða hlunnindum í landi annarra. Heim- ildir eru fyrir því að ítak kirkjunnar í hólmanum hafi orðið til í kringum árið 1400 í kjölfar þess að tvö börn fóru niður um ís á vatninu og drukkn- uðu. Lík barnanna fundust ekki, en eftir ráðleggingu prests hétu eigendur hólmans því að nýting æðarvarpsins yrði kirkjunnar ef börnin fyndust. Lík þeirra rak síðan upp um vorið og eign- aðist kirkjan í kjölfarið rétt til að tína æðardúninn og egg. Árið 1952 setti Alþingi hins vegar lög um að kirkjan og aðrir þeir sem teldu sig eiga ítök í jörðum sem eru í annarra eigu yrðu að lýsa þeim ítök- um formlega. Þau áttu þó ekki að taka gildi fyrr en sýslumaður væru búinn að þinglýsa þeim. Kröfum kirkjunnar ekki þinglýst DV hefur undir höndum bréf þar sem biskup Íslands lýsti skömmu síðar ítaki í Gamla hólma í Hagavatni. Ekki er kveðið sérstaklega á um dúntöku í hólmanum. Í öðru bréfi sem DV hef- ur einnig undir höndum svarar sýslu- maðurinn í Snæfellsness- og Hnappa- dalssýslu biskupi þar sem hann óskar eftir frekari gögnum, meðal annars um hvernig kirkjan ætli að nýta þetta ítak. Í bréfi sýslumanns segir: „Þá er ekki gerð grein fyrir hagnýtingu þess- ara ítaka að undanförnu og held- ur ekki hvernig þau eru til komin.“ Af þeim sökum var ekki hægt að þinglýsa ítakinu á þeim tíma. Eigandi jarðarinnar Haga hefur nú fengið staðfestingu á því hjá sýslu- manni að kröfum kirkjunnar um nýt- ingarrétt í hólmanum hafi aldrei ver- ið þinglýst. Kirkjan hafi því ekki lengur rétt á því að tína dún í hólmanum sem um ræðir. Sá réttur hafi fallið niður árið 1953. Þrátt fyrir það neitar Bisk- upsstofa að hætta dúntöku í hólman- um og er málið komið í hnút. Skrán- ingin á nýtingaréttinum í hólmanum mun vera til skoðunar hjá dóms- og mannréttindaráðuneytinu samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu. Biskup viðurkennir ekki eignarrétt Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, verk- efnisstjóri lögfræðimála á fasteigna- sviði Biskupsstofu, segir í samtali við DV að Biskupsstofa viðurkenni ekki að eigandi jarðarinnar Haga eigi grunn- eignarrétt á hólmanum. Því verður haldið áfram dúntöku þar til um ann- að verði úr skorið. „Það er ekki full- komlega ljóst hver geti talist eigandi þessa grunneignaréttar á Hólmanum, en við teljum að Staðarstaðarkirkja eigi dúntökurétt í hólmanum. Ég hef leitað fyrir mér í landamerkjalýsing- um hvort það komi fram að hólm- inn teljist tilheyra ákveðinni jörð sem á land að Hagavatni. Það hefur ekki verið sýnt að eigandi jarðarinnar eigi grunneignarrétt og við viðurkenn- um ekki að hann eigi rétt til dúntöku þarna,“ segir Anna Guðmunda. Aðspurð um bréf sýslumanns, sem bendir til þess að kirkjan hafi ekki lengur afnotarétt af hólmanum, seg- ist hún ekki hafa kynnt sér þau gögn. Bréfið sé ekki til hjá Biskupsstofu og verið sé að vinna í því að finna gögn sem tengjast málinu. Biskupsstofa neitar að hætta æðardúntöku í hólma á Hagavatni á Snæfe llsnesi og vís- ar til ítaks í hólmanum frá 15. öld. Landeigandi Haga, sem á þann hluta vatnsins sem umlykur hólmann, hefur kært sóknarprestinn á Staðarstað fyrir ólög lega dúntöku. Lögfræðingur Biskupsstofu segir kirkjuna vera í fullum rétti að nýta æð ardúninn BISKUP NEITAR AÐ HÆTTA DÚNTÖKU valgeir örn ragnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Æðarfugl Dúnninnerrómaðurfyrirgæðioghefurígegnumaldirnarveriðeftirsótt- ur.Fyrirhannfæstháttverð.Mynd sigtryggur ari Karl sigurbjörnsson Biskupsstofaneitar aðviðurkennaeignarétteigandajarðinnar HagaálandinuáhólmaíHagavatnisem sóknarpresturinnáStaðarstaðnýtir. Móður örnu vífar er létt yfir að stúlkan sé komin í leitirnar: „Hræðslanvarsvomikil“ „Ég var að fá skilaboð um að hún væri komin til fóstursystur sinnar og ég er að fara til hennar. Þessu er sem betur fer lokið og vonandi þarf ég aldrei að upplifa annað eins aft- ur,“ sagði Sigríður Bech Ásgeirsdótt- ir í samtali við DV á sunnudagskvöld en víðtæk leit hafði staðið yfir að 15 ára dóttur Sigríðar, Örnu Víf. Ekk- ert hafði spurst til Örnu Vífar síðan á fimmtudaginn. Hún hafði verið í slagtogi með frænda sínum sem kom í leitirnar á laugardaginn. Sigríður Bech segist ekki vita hvar dóttir hennar hafi eytt síðustu dög- um. „Maður er bara svo grandalaus og mikill kjáni í þessum málum. Þessi stelpa hefur verið svo dugleg í skóla og samviskusöm í öllu sem hún hefur tekið sér fyrir hendur og því er erfitt að trúa því að hún sé komin út af sporinu,“ segir mamma hennar sem hafði nánast ekkert tekist að sofa síðan dóttir hennar týndist. „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert á æv- inni og það skelfilegasta er að hafa þurft að endurtaka aftur og aftur lýs- inguna á henni í hvert skipti sem ég tala við lögregluna. Það er eins og hún hafi aldrei komist inn í neitt kerfi hjá þeim og það er ekki í lagi. Kerfið á að virka fyrir börnin okkar og þá er mér alveg sama hvort eitthvert barn hafi farið oft í meðferð. Þetta eru allt börnin okkar,“ segir Sigríður sem vil nota tækifærið og þakka fyrir þann ótrúlega samhug sem hún fann á þessu erfiða tímabili. „Ég er kannski búin að sofa í þrjá tíma síðan á fimmtudag. Ég næ mér bara ekki nið- ur, hræðslan hefur verið svo mikil. Ég óska engum þess að upplifa annað eins. Hugur fólks hefur verið ótrúleg- ur og ég hef fengið mikinn stuðning frá fólkinu í kringum mig og ókunn- ugu fólki úti í bæ sem vill hjálpa. Nú er ég að fara að sækja hana og nú get- um við vonandi fengið að sofa.“ indiana@dv.is Lokuðu vegi fyrir neyðarbíla Umferðarþrjótar hafa orðið til þess að vegi fyrir neyðarbíla á Reykjanesi hefur verið lokað. Um er að ræða gamlan veg sem liggur upp á Reykja- nesbraut þar sem akstur neyðarbíla var heimilaður til að stytta útkalls- tíma þeirra. Þrátt fyrir merkingar, sem gáfu skýrt til kynna að aðeins væri heimilaður akstur neyðarbíla, nýttu aðrir ökumenn þessa leið og hefur það leitt til þess að veginum hefur nú verið lokað. Kyrrstaða Gaums hluti af samningi Kyrrstöðusamningur við Gaum, eitt sinn aðaleiganda Haga, sem Arion banki gerði á dögunum var hluti af því samkomulagi sem bankinn gerði við Jóhannes Jónsson um að hann hætti aðkomu að Högum. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins. Arion banki samdi nýverið um að Jóhannes myndi láta af störfum sem stjórnarformaður Haga og að hann afsalaði sér forkaupsrétti sínum. Í kyrrstöðusamningum kveður á um að bankinn taki félagið ekki yfir á meðan endurskipulagning þess fer fram. Óljóst er hvaða eignir eru inni í Gaumi þar sem ársreikningi hefur ekki verið skilað frá árinu 2007. Faraldur í gaskútaþjófnaði Tveimur gaskútum var stolið í Mos- fellsbæ á föstudag. Svo virðist sem hálfgerður faraldur ríki í þessum efnum því allnokkur slík mál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar und- anfarnar vikur. Þjófarnir hafa látið til sín taka á ýmsum stöðum í höfuð- borginni og virðist faraldurinn ekki vera bundinn við ákveðinn stað. Lögreglan biður eigendur gaskúta að gera viðeigandi ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þá sem eru með fellihýsi úti við og hafa ekki fjarlægt úr þeim gaskútana. Þá getur verið árangursríkt að kaupa lás og keðju til að gera þjófunum erfitt fyrir. skelfileg lífsreynsla SigríðurBech Ásgeirsdóttir,móðirÖrnuVífar,óskar engumþessaðþurfaaðgangaígegnum martröðinasemhúnhefurupplifað síðustudaga. Mynd sigtryggur ari Plakatið Leynilegurhópurhefurhengtuppplaköt umallt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.