Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 17. september 2010 ERLENT 25
UMDEILD HEIMSÓKN
PÁFA TIL BRETLANDS
gow sem sjötíu þúsund manns
sóttu. Fjöldinn fagnaði páfa með
hvatningarhrópum og veifaði fán-
um þegar hann gekk inn á svið-
ið undir orgelleik og sálmasöng.
Hann skaut föstum skotum að trú-
leysingjum og sagði að „einræðis-
stefna afstæðis reyndi að fela hinn
óumbreytanlega sannleik um eðli
mannsins, örlög hans og gæsku
með því að útiloka trúarbrögðin frá
samfélagsumræðunni og jafnvel
að kalla þau ógnun við jafnrétti og
frelsi,“ sagði páfi í prédikun sinni í
Glasgow.
„Þjóðfélög nútímans þurfa á
sterkri rödd að halda sem heldur á
lofti rétti okkar til að búa í þjóðfélagi
sem vinnur fyrir sönnum hagsmun-
um borgara sinna og veitir þeim
leiðsögn og skjól fyrir eigin veikleik-
um, en ekki sterkri rödd sem vill að
við búum í frumskógi sjálfseyðandi
og handahófskenndra hugmynda
um frelsið,“ sagði Benedikt.
Benedikt og Elísabet Páfi og Elísabet II. Bretlandsdrottning ræddu málin á
fimmtudaginn. MYNDIR REUTERS Það er erfitt að átta sig á
því hvernig þessi villa
prestanna var möguleg.
STEPHEN FRY, þáttagerðarmaðurinn
og grínistinn er einn þeirra fjölda
Breta sem gagnrýnt hefur opinbera
heimsókn Benedikts páfa til Bretlands.
Hann skrifaði undir bréf sem sem
fimmtíu listamenn, fræðimenn,
stjórnmálamenn og rithöfundar
sendu Guardian á fimmtudaginn til að
mótmæla heimsókninni.
„Honum er auðvitað velkomið að
heimsækja Bretland, hann er leiðtogi
gríðarstórrar trúarhreyfingar. Það er
réttur hans og allra annarra. En ég held
hins vegar að það sé kolrangt að hann
komi í opinbera heimsókn. Hann er
alls ekki þjóðarleiðtogi, hann er það
að nafninu til vegna einhvers slyss í
sögunni en er það alls ekki í raun. Það
er ekki hægt að vera bæði trúarlegur
leiðtogi og veraldlegur þjóðarleiðtogi
og búast við því að breskir skattgreið-
endur borgi brúsann. Það er alls ekki
rétt,“ sagði Stephen Fry í viðtali við
BBC.
Kirkjan hafi valdið skaða
Bréfið sem barst Guardian og Stephen
Fry, Richard Dawkins, Terry Pratchett
og Philip Pullman skrifuðu meðal
annarra undir:
„Við undirrituð erum sammála því að
Ratzinger páfi eigi ekki að fá að koma í
opinbera heimsókn til landsins. Okkur
finnst að páfanum, sem er evrópskur
borgari og leiðtogi trúarhreyfingar sem
margir Bretar aðhyllast, sé auðvitað
frjálst að ferðast um landið okkar. Hins
vegar er páfinn ekki aðeins trúarleið-
togi heldur einnig leiðtogi ríkis en ríkið
og stofnunin sem hann stýrir hefur:
n Verið andvíg notkun smokka sem
hefur stækkað fjölskyldur í fátækum
löndum og aukið útbreiðslu alnæmis.
n Stuðlað að aðskilnaði í menntun.
n Neitað jafnvel berskjölduðustu
konum um fóstureyðingu.
n Verið andvíg réttindum lesbía,
homma, tvíkynhneigðra og transgend-
er-fólks.
n Ekki náð að bregðast nægilega vel
við fjölda dæma um kynferðisofbeldi
innan stofnunarinnar.
Ríkið sem páfinn leiðir hefur einnig
neitað að skrifa undir marga mannrétt-
indasáttmála og búið til eigin sáttmála
við ríki („concordat“) sem hefur haft
neikvæð áhrif á mannréttindi þeirra
sem byggja þau lönd. Við neitum að
viðurkenna Vatíkanið sem þjóðríki og
páfann sem þjóðarleiðtoga, sem við
lítum á sem hentugan skáldskap sem
Vatíkanið notar til að auka alþjóðleg
ítök sín.“
Mótmælir opinberri heimsókn Stephen Fry segir að páfanum sé frjálst að
ferðast út um allt en mótmælir því harðlega að breskir skattgreiðendur þurfi að
borga fyrir opinbera heimsókn hans.
Trúleysingjar
mótmæla
Kynferðisofbeldi
skekur kirkjuna
KAÞÓLSKA KIRKJAN hefur á síðustu
árum þurft að þola gífurleg hneyksl-
ismál vegna barnaníðs presta um
gervalla Evrópu, aðallega í Austurríki,
Belgíu, Írlandi og Þýskalandi – og
einnig í Bandaríkjunum og Suður-Am-
eríku. Benedikt páfi hefur verið undir
miklum þrýstingi að upplýsa hvaða
vitneskju hann býr yfir um ofbeldi
innan vébanda kirkjunnar af hálfu
kaþólskra presta.
Fyrr í ár komu fram ásakanir á
hendur eldri bróður páfa, Georg
Ratzinger biskupi, vegna rannsóknar
á kór sem hann stjórnaði í eina
tíð. Drengjakórinn Regensburger
Domspatzen, eða Dómkirkjuspörvarnir
í Regensburg, sætir rannsókn vegna
ásakana um kynferðislega misnotkun
innan vébanda hans.
„Ég vissi ekkert,“ sagði Ratzinger
í viðtali við ítalska dagblaðið La
Repubblica og bætti við að um væri
að ræða mál sem ætti rætur að rekja til
sjötta áratugarins.
Fyrrverandi nemandi í heimavistar-
skóla kórsins, Franz Wittenbrink, sagði
hins vegar í viðtali við þýska tímaritið
Der Spiegel að hann „gæti ekki skilið“
hvernig misnotkunin gat farið fram hjá
Ratzinger.
Talsmaður páfagarðs hefur stöðugt
haldið því fram að ásakanirnar séu
hluti af herferð gegn páfanum og
kaþólsku kirkjunni.
Æðstu menn kaþólsku kirkjunnar
í Belgíu viðurkenna að prestar innan
hennar hafi beitt börn kynferðislegu
ofbeldi um langt árabil. Kirkjan lýsti því
yfir í síðustu viku að hún vilji endur-
heimta traust almennings með því að
hjálpa fórnarlömbunum og koma í veg
fyrir kynferðisglæpi í framtíðinni.
Páfi við messu í Glasgow Benedikt
XVI. segist ekki vita hvernig mönnum
innan kaþólsku prestastéttarinnar hafi
verið mögulegt að stunda nauðganir
og barnaníð. Hann sagði að barnaníð-
ingar væru haldnir „veiki“. Páfi sagði að
kirkjan hefði ekki verið nægilega á verði
gagnvart kynferðisbrotum presta.