Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Blaðsíða 46
NAFN OG ALDUR?
„Hrafnhildur Einarsdóttir, 24 ára.“
ATVINNA?
„Danslistamaður.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Í sambúð með Sigga.“
FJÖLDI BARNA?
„Ekkert barn.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Átti einu sinni páfagaukinn Trítil II.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Tónleika með ATOS á Rósenberg.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Var eitt sinn stoppuð fyrir að syngja of hátt úti á
götu og svo í London þegar við Eszter fengum lán-
að umferðarskilti.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Uppáhaldsflíkurnar eru margar. Ef ég á að nefna
einhverja eina sem ég nota hvað mest þá er það
svört skikkja úr Kvk, sem passar við gjörsamlega all-
ar mínar skrautlegu dulur.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Nei, ég nýt þess svo mikið að borða góðan mat.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆL-
UM?
„Nei það hef ég ekki gert enn.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Já, lífið er of skemmtilegt til þess að það geti endað
svo snögglega.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ
HAFA HALDIÐ UPP Á?
„Það er algjör óþarfi að skammast sín fyrir slíkt.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Krummi svaf í klettagjá.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Sýningarhelgar okkar Raven-hópsins sem verður
haldin 17.–19. september í sal Klassíska Listdans-
skólans.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFT-
UR?
„Í augnablikinu er það After the rain, I saw you. Af
því ég get endalaust breytt henni.“
AFREK VIKUNNAR?
„Að klára litlu dansmyndina mína.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Ekki svo ég muni.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Spila smá á píanó.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
(Viðmælandi neitar að svara).
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Fólkið mitt.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
(Viðmælandi neitar að svara).
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST
VILJA HITTA OG AF HVERJU?
(Viðmælandi neitar að svara).
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ?
„Já, eða meira kannski svona vísur.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Ég á svolítið erfitt með að deila því hér.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Ég er nokkuð góð í sjómanni og svo er ég voðalega
góð í að skemmta mér vel.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
(Viðmælandi neitar að svara).
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Á ótal marga uppáhaldsstaði í náttúru Íslands.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA?
„Loka augunum.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Samstaða og bjartsýni og svo mættu allir dansa
meira og syngja.“
Hrafnhildur Einarsdóttir danslistamaður er listrænn stjórn-
andi Raven-hópsins sem sýnir í sal Klassíska Listdansskólans
um helgina. Hrafnhildur er stolt af dansmyndinni sinni After
the rain, I saw you, sem hún kláraði á dögunum og segir fólkið
sitt það mikilvægasta í lífi sínu.
NOKKUÐ GÓÐ
Í SJÓMANNI
46 HIN HLIÐIN 17. september 2010 FÖSTUDAGUR
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
TVÆR KONUR
2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR
Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur.
Hentar öllum, stöðvar sykurinn
áður en hann verður að fitu.
STÖÐVIÐ SYKUR
OG KOLVETNI
NÝJUNG! BRENNIÐ FITU
30 Days
120 töflur ásamt
samnefndu
kremi vinnur á
appelsínuhúð.
30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm
(60 eða 150)töflur gegn kviðfitu
gefur 35% meiri virkni.
Valin
heils
uvara
ársin
s
2008
&
B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað