Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Blaðsíða 51
FÖSTUDAGUR 17. september 2010 LÍFSSTÍLL 51 Samkvæmt bandarískri rann- sókn telur einn þriðji hluti kvenna á aldrinum 18–35 ára sig eiga við offituvandamál að stríða þrátt fyrir að einungis einn fjórði kvennanna sem spurðar voru hafi átt við raunveru- legt vandamál að stríða. Í rannsókn- inni kem- ur einnig fram að yfir helming- ur aðspurða myndu frekar vilja léttast um fimm kíló en landa drauma- starfinu sínu eða hitta einu sönnu ástina í lífi sínu. MITTIÐ mikilvægara en ástin Samkvæmt undarlegri þýskri rannsókn er hollt fyrir karl- menn að horfa á kvenmanns- brjóst. Karen Weatherby, sem leiddi rannsóknina, segir að glápið auki lífslíkur manna um allt að fimm ár. „Það að horfa á brjóst í tíu mínútur á dag jafn- gildir hálftíma líkamsrækt,“ segir Weatherby sem rannsak- aði 200 heilbrigða menn yfir fimm ára tímabil. Helming- ur þátttakenda horfði daglega á brjóst á meðan hinn helm- ingurinn forðaðist það. Undir lokin gengust mennirnir undir læknisskoðun. Fyrri hópur- inn hafði lægri blóðþrýsting og mældist almennt heilbrigðari. Hollt að GLÁPA á brjóst Ég hef alltaf haft áhuga á föt-um og tísku og var 16 ára þegar ég byrjaði að vinna í tískuvöruverslun. Þá varð ég fljótt fataóð og fékk varla útborgað í lok mánaðarins því öll launin fóru í föt,“ segir þokkadísin Pattra Sriyan- ong sem hefur komið sér vel fyrir í Gautaborg þar sem kærastinn henn- ar, knattspyrnumaðurinn Theodór Elmar Bjarnason, er á samningi. Pattra er hrifin af sænskri tísku og hún segist smellpassa inn í rokk- ið sem einkenni Gautaborg. „Street- style-ið í Stokkhólmi er rosalega skemmtilegt en Gautaborg er þekkt rokkborg og hér klæðir fólk sig meira eftir sínu höfði. H&M er hér á hverju horni svo maður verður að vera duglegur að mixa sinn eigin stíl ef maður ætlar ekki að vera eins og hin- ir,“ segir Pattra og bætir við að sænsk- ir strákar pæli enn meira í útliti sínu en þeir íslensku. „Þeir eru stundum of ýktir fyrir minn smekk. Hér er alveg hægt að sjá gaura í bleikum og jafnvel mintu grænum bux- um.“ Pattra stefnir á leiklistarnám í framtíðinni en hefur ekki enn fundið rétta skólann. Þangað til heldur hún úti tískublogginu www.pattrasclos- et.blogspot.com, sem hefur vakið nokkra eftirtekt. „Ég er á kafi í þessu bloggi og er farin að fá sendar vörur frá fyrirtækjum sem vilja umfjöllun. Annars fæ ég engin laun við þetta en ég hef rosalega gaman af þessu. Draumurinn er að verða leikkona og eins væri ég til í að hanna mína eig- in fatalínu. En þangað til það verður langar mig að fá vinnu í tískubúð eða við tímarit.“ Aðspurð segir hún kærastann standa sig ágætlega þegar kemur að tísku og klæðnaði. „Hann hefur allt- af verið flottur í tauinu en var með einfaldan smekk þangað til ég kom til sögunnar. Ég er aðeins að reyna að rokka hann upp og það gengur hægt og bítandi. Hann er allur að koma til og sem betur fer myndi hann aldrei fara í bleikar buxur og fyrir það er ég þakklát.“ Tískudrósin Pattra Sriyanong hefur komið sér vel fyrir í Gautaborg ásamt kærast- anum sínum, knattspyrnumanninum Theodóri Elmari Bjarnasyni. Pattra heldur úti tískublogginu www.pattrascloset.blogspot.com, sem hefur vakið svo mikla eftirtekt að Pattra fær sendar vörur frá fyrirtækjum í von um umfjöllun. Búin að rokka kærastann upp Smart par Pattra segir kærastann, Theodór Elmar, hafa haft einfaldan smekk þar til hún kom til sögunnar. Flott Pattra byrjaði að vinna í tískuvöruversl- un þegar hún var 16 ára en fékk þá nánast ekkert útborgað þar sem öll launin fóru í fö t. Rokkuð Pattra segist smellpassa inn í rokkið sem einkenni Gautaborg. Hollenskir vísindamenn segja konur sem borða mikið af spínati eignast stelpur. Kynið fer eftir mataræði Ný rannsókn vísindamanna við Maastricht-háskólann í Hollandi hefur vakið eftirtekt og umræðu. Vísindamennirnir halda því fram að tímasetning getnaðar hafi ekki ein- ungis áhrif þegar reynt sé að stjórna kyni væntanlegs barns heldur einnig maturinn sem konan lætur ofan í sig. Samkvæmt þessum fræðum er lík- legra að foreldrar eignist stúlku þeg- ar móðirin borðar fæðu sem er rík af kalki og magnesíum en dæmi um slíka fæðu er til dæmis jógúrt, spín- at, tófú, hnetur, baunir, hafragraut- ur, brokkólí og appelsínur en lítið af fæðu sem innihaldi salt og pótass- íum. Þær sem vilji frekar stelpu ættu því að forðast ansjósur, ólífur, beik- on, spægipyslu, reyktan silung og kartöflur. Vísindamennirnir halda því fram að kynið fari að miklu leyti eftir fæð- unni en þeir sem gagnrýna rann- sóknina segja að þar sem konurn- ar hafi sjálfar séð um að skrásetja mataræði sitt séu miklir annmarkar á rannsókninni. Þar sé helst um að kenna gleymsku við skrásetninguna en einnig hafi sumir þátttakendur ekki farið eftir mataræðinu í einu og öllu þegar þær voru með egglos.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.