Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Blaðsíða 52
The Social
Network
52 TÆKNI UMSJÓN: PÁLL SVANSSON palli@dv.is 17. september 2010 FÖSTUDAGUR
Í febrúar 2004 hleypti Mark Zuckerberg af stokkunum samskiptasíðunni Facebook, sem í fyrstu var aðeins ætluð
nemendum innan háskólasvæðis-
ins í Harvard í Bandaríkjunum þar
sem Zuckerberg var við nám. Nú,
6 árum síðar, er hinn umdeildi 26
ára gamli milljarðamæringur aðal-
efni nýrrar kvikmyndar sem frum-
sýnd verður víðs vegar um heim-
inn í næsta mánuði og ber nafnið
The Social Network. Kvikmyndin er
byggð á bók bandaríska rithöfund-
arins Bens Mezrich, The Accidental
Billionaires, en bókin hefur reynd-
ar hlotið töluverða gagnrýni fyrir
einsleita heimildavinnslu og þykir
ekki gefa raunsanna mynd af Zuck-
erberg. David Fincher (Se7en, The
Curious Case of Benjamin Button)
leikstýrir myndinni en handrits-
höfundur er Aaron Zorkin, sá hinn
sami og skrifaði handritið fyrir hina
vinsælu sjónvarpsþætti The West
Wing.
Klóki svínahirðirinn
Saga Zuckerbergs í The Social Net-
work minnir um margt á gamla æv-
intýrið um klóka svínahirðinn sem á
endanum giftist prinsessunni, upp-
fært á nútímann er það nördinn sem
verður milljarðamæringur, eigin-
lega fyrir slysni þegar á það er litið
að upphaflegt markmið hins 19 ára
gamla Zuckerbergs var að gera sér
og félögum sínum auðveldara fyr-
ir að fara á fjörurnar við hitt kynið, í
öruggri fjarlægð fyrir framan tölvu-
skjáinn! Í dag er áætlað virði sam-
skiptasíðunnar metið 33 milljarðar
Bandaríkjadala og er hún orðin fast-
ur þáttur í daglegu lífi 500 milljóna
manna víðs vegar í veröldinni.
Ófyrirleitinn svikari
eða bara nörd?
Eins og um marga þá ræðir er rísa
hratt upp á stjörnuhimininn hef-
ur Zuckerberg ekki farið varhluta af
ásökunum fyrrverandi félaga sinna
og vina. Í fjölmiðlum hefur hann ým-
ist tekið á sig mynd stórmennsku-
brjálæðings eða snillings með per-
sónuleikaröskun. Fyrir okkur hin er
hann bara tölvunördinn sem vildi
komast á „deit“.
Fyrrverandi vinur og félagi
Bók Bens Mezrich, The Accidental
Billionaires, byggir að mestu leyti á
frásögnum Eduardos Saverin sem
var einn besti vinur og félagi Zuck-
erbergs á Harvard-tímabilinu.
Þess ber að geta að þegar Mezrich
Eduardo Saverin Breski leik-
arinn Andrew Garfield fer með
hlutverk Saverins í myndinni.
The Social Network, ný kvikmynd um tilurð Facebook, verður frumsýnd í næsta mánuði. Myndin byggir að
mestu á frásögnum fyrrverandi vinar Marks Zuckerberg, Eduardos Saverin, sem stóð á þeim tíma í mála-
ferlum við Facebook en er nú titlaður einn af meðstofnendum samskiptavefsins.