Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Qupperneq 22
22 neytendur umsjón: baldur guðmundsson baldur@dv.is 17. september 2010 föstudagur Vissir þú að með 7,5 prósenta vöxtum nífaldast spariféð þitt á 30 árum? Ferð til fjár, ný bók eftir hagfræðinginn breka Karlsson, er aðgengilegur leiðarvísir um fjármál einstaklinga. Í bókinni er farið yfir öll mikilvægustu hugtökin í heimi fjármála og lesandanum er kennt að ná tökum á fjármálum sínum. „Fyrirtæki sem ekki hefur skipulag á fjármálum á sér litla framtíð. Ef stjórnendur þess hafa ekki markmið, yfirsýn yfir fjármálin eða áætlun til að fara eftir er líklegt að illa fari. Hvers vegna skyldi það vera öðruvísi hjá einstaklingum?“ Þetta er meðal þess sem Breki Karlsson, hagfræðingur og stofnandi Stofnunar um fjármála- læsi, segir í nýrri bók sem komin er út. Bókin heitir Ferð til fjár og er leið- arvísir um fjármál fyrir ungt fólk. gagnast flestum Þótt bókin sé ætluð ungu fólki og í raun hugsuð sem kennslubók fyr- ir framhaldsskólanema má ætla að flestir Íslendingar geti haft af henni gagn, sérstaklega í ljósi rannsókn- ar sem sýnir að aðeins þriðja hvert heimili á Íslandi heldur heimilisbók- hald. Við lestur bókarinnar öðlast les- andinn skilning á helstu hugtökum sem viðkoma fjármálum og nauð- synlegt er að kunna skil á þegar heimilisbókhald er haldið. Bókin er rituð á fremur einföldu máli en les- andanum er skref fyrir skref kennt að ná tökum á fjármálum heimilisins. Í upphafi bókarinnar er lesandan- um kennt að gera sér grein fyrir hvar hann stendur og skilja hvers vegna mikilvægt er að halda bókhald: „Bókhald er útgangspunktur í allri stefnumörkun. Markmið með heim- ilisbókhaldi er tvíþætt: Að fá yfirsýn yfir tekjur og fá yfirsýn yfir útgjöld,“ segir í samantekt fyrir fyrsta kafla en í lok hvers kafla er hægt að spreyta sig á verkefnum og prófum til að kanna þekkingu sína. Peningurinn nífaldast á 30 árum Í bókinni er mönnum kennt að setja sér markmið í fjármálum, finna hvaða gildi eru mikilvægust hverjum og einum og ekki síst hvernig hægt er að ná markmiðum sínum með áætl- anagerð og með því að taka skyn- samlegar ákvarðanir í fjármálum: „Láttu peningana vinna fyrir þig svo þú getir lifað því lífi sem þig langar. Ekki láta peninga stjórna þér. Hafðu ávallt í huga að peningar eru ein- gungis leið að takmarki en ekki tak- markið sjálft.“ Í bókinni er líka fjallað um hvern- ig bregðast skuli við fjárhagslegum áföllum og hvernig best sé að búa sig undir þau, fólki eru kennd helstu at- riði sem vert er að hafa í huga þeg- ar kemur að fjárfestingum. Þá er far- ið vel yfir lífeyrissjóðakerfið og V-in þrjú, vexti, verðbólgu og verðbæt- ur. „Ef þú leggur þúsundkall inn á bankabók með 7,5% vöxtum í 10 ár þá tvöfaldast upphæðin. Eftir 20 ár rúmlega fjórfaldast hún og eftir þrjá- tíu ár næstum því nífaldast hún,“ segir í kaflanum um vexti en að sama skapi er farið í saumana á því hversu dýrt er að skulda peninga: „Í raun má segja að með því að taka lán ertu að skuldbinda þig og ákveða að hluti framtíðartekna þinna renni til lán- veitandans. Og ef þú stendur ekki í skilum eiga lánveitendur jafnvel kröfu á enn hærra hlutfalli framtíðar- tekna þinna. Ef þú eyðir um efni fram getur það þannig haft miklu víðtæk- ari áhrif en margir gera sér grein fyrir og getur jafnvel kollvarpað fjárhags- legum áformum þínum og þar með ýmsum öðrum framtíðaráformum þínum.“ ræða kynlíf frekar en fjármál Farið er vel ofan í það hvaða lán eru góð og hver þeirra eru slæm. Um smálán eða SMS-lán segir til dæm- is: „Lán í allt að 15 daga. Kostnað- ur við þau jafngildir allt að 600 pró- senta vöxtum. Erfitt er að ímynda baldur guðmundsson blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Bókhald er út-gangspunktur í allri stefnumörkun. Svona nærðu tökum á fjár álu þín m Ferð til fjár B ókin er sögð leiðarvísir fy rir ungt fólk en ætti að gagnast fl estum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.