Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Síða 62
Baltasar Kormákur er í ítar- legu og skemmtilegu viðtali við tímaritið Monitor sem kemur út með Morgunblaðinu á fimmtu- dögum. Í lok viðtalsins er hann beðinn um eina „skemmtilega bransasögu“ eins og blaðamað- urinn orðar það. Segir Baltasar þá frá því að við tökur á Djúp- inu um daginn ætlaði hann að kasta af sér vatni fyrir aftan gám við höfnina. „Um leið og ég var byrjaður kom gámabíll og tók gáminn, þannig að ég stóð þarna beint fyrir framan tökuliðið með allt niður um mig. Þetta var eins og lélegt grínatriði í bíómynd,“ segir Baltasar í viðtalinu. „Þetta er eitthvert rugl. Ég ætla ekki að vera tjá mig um svona vitleysu,“ segir Grétar Rafn Steinsson leik- maður Bolton í ensku úrvalsdeild- inni spurður út í fréttir Pressunn- ar og Séð og Heyrt þess efnis að hann sé að skilja við eiginkonu sína Manuelu Ósk Steinsson. Grétar vildi ekki tjá sig frekar um málið en það var pressan.is sem flutti fréttir þess efnis á miðviku- dag að hjónin væru skilin. Pressan dró svo að lokum fréttina alfarið til baka og bað hlutaðeigendur afsök- unar. Séð og Heyrt flytur svo frétt- ir af málinu í nýjasta tölublaði sínu undir yfirskriftinni „Brestir í Bol- ton“. Í frétt blaðsins segir að hjónin íhugi nú skilnað. Grétar og Manuela kynnt- ust árið 2007 en þau giftu sig að- eins þremur mánuðum síðar. Þau gengu svo aftur í það heilaga árið 2007 og þá var öllum vinum og vandamönnum boðið í heljarinn- ar veislu. Grétar leikur sem fyrr segir með Bolton í Englandi en þar áður lék hann með AZ Alkmar í Hollandi þar sem þau hjón giftu sig fyrst. Grétar hefur farið vel af stað með Bolton í ensku úrvalsdeildinni sem er í 12. sæti sem stendur. asgeir@dv.is RUGL, SEGIR GRÉTAR GRÉTAR RAFN OG MANUELA SÖGÐ VERA AÐ SKILJA: Spjallþáttur Loga Bergmanns Eiðssonar, Logi í Beinni, hefur sitt fjórða ár á laugardaginn. Logi hefur verið duglegur að fá skærustu stjörnur landsins til sín og spjallar hann við þær á sinn hátt. Fjölmiðlakonan Tobba Marínósdóttir, höfundur metsölubókarinnar Makalaus, verður meðal gesta hjá Loga á laugardagskvöldið og gæti hún komið skrautlega klædd. Á Face- book skrifaði hún: „Á einhver mega ljót föt til að lána mér fyrir Loga í beinni - annað kvöld?“ Fór þá allt á flug og vildu margar konur lána Tobbu samfesting og virðist hún ætla að meta það. Útvarpsmaðurinn Ásgeir Páll Ás- geirsson bauð Tobbu kjól af sér en bætti þó við að hann væri líklega of stór á hana. 62 FÓLKIÐ 17. september 2010 FÖSTUDAGUR HERBERT GUÐMUNDSSON: SAMFEST- INGUR Í BEINNI? MEÐ ALLT NIÐUR UM SIG Grétar og Manuela Hafa verið saman síðan árið 2007. „Ég er farinn að sjá lífið í nýju ljósi. Peningar eru ekki allt,“ segir tónlist- armaðurinn Herbert Guðmundsson en hann er senda frá sér nýtt lag sem kallast Treasure Hunt eða Fjársjóðs- leitin. Herbert segir lagið fjalla um athugavert hugarfar Íslendinga þeg- ar kemur að peningum og öðrum veraldlegum gæðum. „Verðmætamat okkar er rangt. Við erum bara veruleikafirrt. Við elt- umst við einhvern gullkálf og söfn- um einhverjum auði en hvað svo? Er vasi á líkklæðunum? Er hægt að taka þetta með sér í gröfina? Hvað er lið- ið að pæla?“ spyr Herbert ákveðinn. „Meðalaldur er 65 til 70 ár. Heldur fólk að það lifi að eilífu? Lífið snýst um svo miklu meira en peninga.“ Sjálfur hefur Herbert lent í mikl- um fjárhagserfiðleikum í tímans rás þar sem hann hefur um árabil staðið í erfiðum málaferlum vegna þakvið- gerða á heimili hans. Húsfélagið er nú að lögsækja Herbert í fjórða sinn því hann vildi ekki taka þátt í við- haldi á sameigninni þar sem hann hafði látið gera við þakið á sínu húsi stuttu áður. „Mér er alveg sama þótt það sé verið að lögsækja mig enn einu sinni. Það sýnir bara hvernig þetta fólk er innrætt. Ég reyndi að bjóða þeim sættir en þau vildu það ekki.“ Herbert segist bara brosa út í annað og njóta lífsins enda hafi hann engu að tapa. „Núna er ég bara frjáls. Ég á ekkert lengur, konan farin og ég leyfi þeim bara að hirða þetta. Er nokkuð annað að gera?“ segir Herbert í léttum tón. Herbert gerir lagið Treasure Hunt í samstarfi við Svan son sinn en þetta er annað lagið af væntanlegri plötu þeirra feðga. Fyrr í sumar sendu þeir frá sér lagið Time sem hefur verið að gera það gott á útvarpsstöðvunum. „Smellurinn Time er að tröllríða öllu. Það er bara í „powerplay“ á Bylgj- unni, Rás 2, Útvarpi Sögu, Útvarpi Suðurlandi og ég veit ekki hvað og hvað. Svo er nýja lagið líka á leiðinni í „powerplay“ á næstunni. Ef Guð leyf- ir eins og amma gamla sagði alltaf.“ Platan með þeim feðgum er vænt- anleg í október. asgeir@dv.is Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson er að senda frá sér nýtt lag, Treasure Hunt, sem fjallar um græðgi Íslendinga. Sjálfur segist Herbert mikið hafa lært á und- anförnum árum og að hann sé loksins frjáls. Herbert vinnur nú að plötu ásamt syni sínum Svani Herbertssyni en þeir hafa gert það gott með laginu Time í sumar. „PENINGAR eru ekki allt“ Herbert og Svanur Senda frá sér plötu í lok október.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.