Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2010, Side 64
n Ráðgjafarfyrirtækið Capacent fór í kennitöluhopp í gær. Staðfest er að starfsmenn félagsins vildu með þessu forða rekstrinum undan 700 milljóna króna stökkbreyttu láni sem enginn möguleiki var á að greiða. Meðal eigenda og starfsmanna fyrirtækisins var til skamms tíma Kristján Arason, eiginmaður Þor- gerðar Katrínar Gunnarsdóttur al- þingismanns, sem sjálfur lenti undir risavöxnu kúluláni sem hann fékk á sínum tíma til að kaupa hlutabréf í Kaup- þingi. Krist ján var sloppinn út úr Capacent áður en áfallið reið yfir og starfar nú hjá N1. Óljóst er hvort hann tapar einhverjum fjármunum á kennitölu- hoppinu. Menningarbylting Besta flokksins! SLAPP VIÐ RISALÁN www.bluelagoon.is a n to n & b e rg u r 2 fyrir 1 í Bláa Lónið Gildir gegn framvísun miðans til 20. september 2010 Gildir ekki með öðrum tilboðum Lykill 1561 VETRARKORT Vetrarkortin veita ótakmarkaðan aðgang fram til 1. júní 2011 og 2 fyrir 1 í júní, júlí og ágúst Í september verða vetrarkort Bláa Lónsins á sérstöku tilboðsverði Einstaklingskort kosta 8.500 krónur (fullt verð 10.000 krónur) og fjölskyldukort 13.000 krónur (fullt verð 15.000 krónur) Frítt fyrir börn 13 ára og yngri í fylgd með forráðamönnum Vetrarkortin eru fáanleg í Bláa Lóninu, Hreyfingu og í verslun Bláa Lónsins að Laugavegi 15 n Guðfríður Lilja Grétarsdóttir eignaðist stúlkubarn á dögunum. Þetta er annað barn hennar og sambýliskonu hennar, Steinunn- ar Blöndal, sem eignaðist dreng fyrir rúmu ári. Það er því líf og fjör á heimili þeirra. Guðfríður er einn af atkvæða- mestu þingmönnum Vinstri grænna en er í barneignarleyfi þessa dagana. Hún er ákafur stuðn- ingsmaður Ögmundar Jónasson- ar ráðherra og tilheyrir því sem kallað hefur verið órólega deildin innan VG. Heldur hefur slegið á mesta óróleik- ann innan flokksins eftir að Ögmundi var úthlutað ráð- herrastóli að nýju. Guðfríður Lilja snýr því aftur í mun friðsælla umhverfi eftir að barneignar- leyfi henn- ar lýkur. PILTUR OG STÚLKA n Heimildarmynd um Jón Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, er í bígerð. Myndin heitir Gnarr og er ráðgert að hún verði frumsýnd í nóvember. Það er fjölmiðlafulltrúi Besta flokks- ins og kvikmyndagerðarmaðurinn Gaukur Úlfarsson sem er maður- inn á bak við myndina. Hann fylgir borgarstjóranum eftir um allt, alveg frá því að Jón var í kosningabar- áttunni og síðan fyrstu mánuðina í starfi borgar- stjóra. Stikla úr myndinni sem sýnir borgarstjór- ann hlæjandi við ýmis tækifæri hefur vak- ið mikla athygli á netinu. GNARR Í BÍÓ DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Áskriftarsíminn er 512 70 80 FRÉTTASKOT 512 70 70 SÓLARUPPRÁS 06:53 SÓLSETUR 19:50 Ágústa Margrét Ólafsdóttir, eigin- kona Lárusar Welding fyrrverandi bankastjóra Glitnis, hefur verið ráðin verkefnastjóri á dagskrársviði Stöðv- ar 2. Hún mun hafa umsjón með ein- stökum verkefnum auk þess að hafa umsjón með endurvarpi stöðvarinn- ar af erlendum rásum, Fjölvarpinu. Pálmi Guðmundsson, sjónvarps- stjóri stöðvarinnar, staðfesti við DV að Ágústa hefði verið ráðin. „Hún er verkefnastjóri á dagskrársviði,“ segir Pálmi. „Hún stýrir stökum verkefn- um á dagskrársviði og hefur daglega umsjón með Fjölvarpinu.“ Ágústa var ein þeirra sem sóttu um starfið eftir að það var auglýst. „Það var talsverður fjöldi,“ segir hann spurður hversu margir hafi sótt um starfið. Samkvæmt heimildum DV sóttu yfir hundrað manns um. Ágústa er, eins og áður segir, eig- inkona Lárusar Welding. Saman eiga þau tvær dætur, þær Kristínu Ástu og Kötlu Björk. Ágústa er einnig góð vinkona Ingibjargar Pálmadóttur sem er aðaleigandi og stjórnarfor- maður 365 fjölmiðlasamsteypunnar sem á og rekur Stöð 2. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem hún starfar fyrir einhvern inn- an Baugsfjölskyldunnar en hún vann áður hjá eiginmanni Ingibjarg- ar, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, þegar hún starfaði sem verkefnastjóri hjá Baugi. adalsteinn@dv.is Eiginkona Lárusar Welding ráðin til 365: ÁGÚSTA RÁÐIN Á DAGSKRÁRSVIÐ Ágústa og Lárus Ágústa Margrét ásamt eiginmanni sínum Lárusi Welding.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.