Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2008, Page 40
40 Föstudagur 28. nóvember 2008 Jólablað Hafðu samband og kynntu þér málið! Þú getur verið eins lengi og þú vilt í húsnæðinu Allur húsnæðiskostnaður er innifalinn í mánaðargjaldi Þú færð vaxtabætur líkt og eigandi Öryggi - ekki er hægt að segja þér upp húsnæðinu Öryggi - kaupskylda félagsins á búseturétti Þú festir minni fjármuni í fasteign Bjóðum einnig uppá almennar leiguíbúðir ™ Hefurðu kynnt þér kaup á búseturétti? Með kaupum á búseturétti færðu það sem máli skiptir; heimili Öryggi til framtíðar, frelsi þegar þér hentar B ú s e t i h s f . · S k e i f a n 1 9 , 1 0 8 R e y k j a v í k · S í m i : 5 2 0 5 7 8 8 · F a x : 5 3 3 5 7 4 9 · V e f f a n g : w w w . b u s e t i . i s Eigum einnig lausar leiguíbúðir hjá Leigufélagi Búseta. Veldu öryggi og láttu ekki henda þér út þegar eigandinn vill selja. ® einfaldar jólasmákökur Smákökubakstur er órjúfanlegur hluti jólanna og er hægt að treysta á það að jólaskapið kemur um leið og kökuilmurinn fer að berast um húsið. Fjölskyldumeðlimirnir tínast líka hver af öðrum að ofninum, spenntir að smakka og njóta. DV tók saman nokkrar uppskriftir að smákökum sem eru virkilega spennandi. Jólasmákökur n 1 bolli mjúkt smjör n ¾ bolli sykur n ¾ bolli púðursykur n 1 tsk. vanilludropar n 2 egg n 2 ¼ bolli hveiti n 1 tsk. matarsódi n ½ tsk. salt n 2 bollar súkkulaðidropar n 1 bolli saxaðar hnetur Hitið ofninn í 190°C. Þeytið smjör, sykur, púðursykur og vanilludropa þar til það verður ljóst og létt. Hrær- ið eggin út í. Blandið saman hveiti, matarsóda og salti og hrærið varlega saman við smjörblönduna. Hrær- ið súkkulaðidropa og hnetur saman við. Setjið með teskeið á smjörpapp- ír á bökunarplötu og bakið í 8 til 10 mínútur. Blúndur n 200 g smjör n 300 g sykur n 2 msk. hveiti n 200 g haframjöl n 2 egg n 2 tsk. lyftiduft Á milli: n ½ lítri þeyttur rjómi Ofan á: n 100 g dökkt súkkulaði, brætt Hitið ofninn í 170°C. Smjörið er brætt og því hellt yfir haframjölið. Egg og sykur er þeytt saman þar til það er ljóst og létt. Öllum hráefn- unum er svo bætt varlega út í eggja- hræruna . Sett á smjörpappír á plötu með sléttfullri skeið. Bakað í 7 mín- útur. Leggið blúndurnar saman tvær og tvær með rjóma á milli. Að lokum er brætt súkkulaði sett yfir. Kökurnar eru geymdar í frysti og bornar fram frosnar. kroppmyntutoppar n 3 eggjahvítur n 150 g flórsykur n 100 g Nóakropp n 2 Pipp-súkkulaðistykki Þeytið eggjahvítur og sigtið flór- sykurinn smám saman út í. Merjið Nóakroppið og brytjið súkkulaðið. Hrærið það varlega út í eggjablönd- una með sleif. Búið til litla toppa með skeið og setjið á bökunarplötu klædda smjörpappír. Bakið við 150°C í 50 mínútur. Hnetudúllur n 200 g hveiti n 100 g kókosmjöl n ½ tsk. matarsódi n 220 g hnetusmjör með hnetubitum n 200 g púðursykur n 2 egg n 3 tsk. vanilludropar Utan á: n hakkaðar hnetur Ofan á: n 40 stk. dökkir súkkulaðidropar Hrærið saman allt sem í deigið á að fara. Mótið kúlur og veltið þeim upp úr hökkuðum hnetum. Bakið kökurnar við 200°C í 10 til 12 mínút- ur eða þar til þær hafa tekið lit. Setj- ið einn súkkulaðidropa á hverja köku um leið og þær eru teknar út úr ofn- inum. sörur n 3 eggjahvítur n 3 ½ dl flórsykur (sigtaður) n 200 g möndlur Krem: n ¾ dl sykur n ¾ dl vatn n 3 eggjarauður n 100 g smjör (mjúkt) n 2 msk. kókómalt Súkkulaðibráð: 250 g Síríus-rjómasúkkulaði Stífþeytið eggjahvíturnar. Blandið brytjuðum möndlum og flórsykri varlega saman við. Bak- ið við 180°C í 10 mínútur. Til að búa til kremið þarf að sjóða sam- an sykur og vatn í síróp sem ekki er mjög þykkt. Þeytið eggjarauðurnar vel. Hellið sírópinu í mjórri bunu út í eggjarauðurnar og hrærið í á meðan. Setjið síðan smjörið út í. Þar á eftir setjið þið kókómaltið. Setjið kremið á kaldar kökurnar og stingið þeim í frysti. Þekið kremið með súkkulaðibráðinni þegar hún er orðin vel köld. Geymið kökurn- ar í kæli. asdisbjorg@dv.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.