Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2014, Page 56

Frjáls verslun - 01.11.2014, Page 56
56 FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 2014 Mið­Austurlöndum, borgara styrj öldin í Sýrlandi, mótmælin í Hong Kong, pólitísk átök í illa stæðum olíu framleiðsluríkjum); og loks að mikil hækkun á gengi banda ­ ríkjadals skapi ringul reið á gjaldeyris mörk ­ uðum. Þessir atburðir geta hver um sig leitt til vandræða. Ef allt þetta gerist sam tímis má búast við að galdra veður leiki um hagkerfi heimsins – og það er sennilega rétt. 10. Þú hefur kennt hagfræði í þekktum háskólum erlendis. Hvað er það sem einkennir góða viðskipta­ og hag fræði ­ háskóla? Hvað er það sem þeir leggja ofuráherslu á? Það hefur verið sagt um bandaríska há ­ skóla að nær enginn munur sé á náms ­ gæðum (nema helst í doktorsnámi) milli virtustu háskóla landsins og annarra há ­ skóla, ef frá eru taldir slökustu skólarnir. Námsefni, bækur og námskeið eru yfirleitt mjög áþekk. Kennararnir eru ýmist val ­ inkunnir fræðimenn eða fyrrverandi nem ­ endur þeirra. Því má segja að nær alls staðar sé sama menntun í boði, að formi til. Hvað er þá fengið við að lesa við mjög virta háskóla? Í hverju felst ágæti þeirra? Í nemendunum sjálfum og tengslaneti þeirra, mundi ég segja. Í vinsælustu skólunum eru nær allir nemendurnir klárir og áhugasamir og margir þeirra eiga eftir að ná langt í lífinu. Í háskólum læra nemendur mikið hver af öðrum og þá er eins gott að eiga skarpa félaga. Frægu prófessorarnir hjálpa nemendum sínum (einkum doktorsnemum) að komast í góðar stöður, stórfyrirtæki leita fyrst að nýjum starfsmönnum hjá virtustu skólunum, og loks þegar námi lýkur eru nemendur virtra skóla í tengslum við fyrrverandi skólabræður sem þá eru oft í áhrifastöðum. Þetta er spurning um að fá inngöngu í góðan klúbb. Í Háskóla Íslands eru margir afburða ­ nem endur. Þeir sem leita utan til fram ­ haldsnáms hafa oft slegið rækilega í gegn í bestu háskólum heims. Í HÍ eru einnig margir nemendur sem stunda námið illa. Ég hef kennt við erlenda háskóla, til dæmis í New York. Þar mæta allir nemendur í tíma nema þeir séu veikir og þá láta þeir mig vita. Og þeir koma undirbúnir í tímana. Í HÍ eru margir nemendur sem aðeins stöku sinnum líta við á námskeiðunum sem þeir eru skráðir í og eru yfirleitt úti á þekju ef rætt er við þá um námsefnið. Auðvitað er slappleiki einnig algengur í erlendum háskólum þar sem aðeins eru gerðar lág ­ markskröfur til nemenda. 11. Landbúnaður í heiminum er ævinlega til umræðu. Er landbúnaður einhvers staðar í heiminum rekinn án ríkisstyrkja – og hvar þá helst? Segja má með nokkurri einföldun að land búnaður í heiminum skiptist í tvo flokka. Í fátækum þróunarlöndum starfa flestir við landbúnað og landbúnaður er stærsti skattstofn ríkisins. Þar hefur víða tíðkast, einkum í löndum sem búa við óvirkt lýðræði, að arðræna bændur með ofurskattlagningu, sérstaklega þá sem eru í útflutningsgreinum. Víða hefur ofur skattlagning lamað landbúnaðinn. Bændur búa í dreifðum byggðum, samtaka máttur þeirra er lítill og þeir liggja vel við höggi. Ríkisvaldið kemur betur fram við þjónustugreinar og iðnað, einkum greinar sem er að finna í höfuðborginni, til að forðast mótmæli og uppþot við stjórnarbyggingar. Á Vestur ­ löndum snýst dæmið við. Land bún aður fær gífurlega styrki frá ríkinu og nýtur verndar gegn innflutningi. Í okkar heims ­ hluta er landbúnaður örlítið brot af hagkerfinu svo að kostnaðurinn við land ­ búnaðarstyrki er ríkinu ekki ofvaxinn, bændur hafa yfirleitt skipulagt sig vel í hagsmunabaráttunni, stundum í skjóli úreltrar kjördæmaskiptingar, og þeir njóta oft samúðar hjá almenningi. Margir rekja ættir sínar út í sveitirnar og sjá ekki eftir styrkjunum. Svissneskur hagfræðingur sagði mér fyrir nokkrum árum að þarlendu styrkjakerfi yrði best lýst með þeim orðum að svissneskir skattborgarar skreyttu Alpana með blómlegum bændabýlum til að gleðja auga ferðamannsins. Þetta er landslagsarkitektúr, sagði prófessorinn. 12. Færum okkur til Íslands. Flestir eru á því að helstu veikleikar íslensks viðskiptalífs séu fjármagnshöftin og að stöðugleikinn innan þeirra sé „falskt öryggi“. Afnám hafta tengist augljóslega einhvers konar samningum við erlenda kröfuhafa – en hefur ekki gengið of hægt að afnema höftin til þessa í áföngum? Jú, mér finnst afnámið hafa gengið of hægt, en þó með þeim fyrirvara að ég veit lítið um samningsstöðu okkar. Huga verður meðal annars að líkunum á nýrri kollsteypu í gengis málum og efnahagslegum og póli­ tískum afleiðingum af slíkri þróun. Fyrir nokkrum vikum gaf George W. Bush út bók um pabba sinn, George H.W. Bush. Þar segist W (43. forseti BNA) oft vera spurður að því, hvort hann á for seta ár ­ unum hafi ekki oft leitað til pabba (41. forseta BNA) um góð ráð. W segist hafa reynt það í fyrstu en fljótlega gefist upp vegna þess að HW svaraði ætíð: OK. En fyrst verð ég að sjá öll skjöl og þar með leyniskjöl sem þú átt aðgang að. HW er augljóslega varkár maður (fyrir utan frjálst fall og fallhlífarstökk á stórafmælum) og það er eins gott að ég sé það líka. 13. Ferðaþjónustan á Íslandi er orðin stærsta útflutningsatvinnugreinin og undirstaða hagvaxtar. Enn er stórfelldum erlendum ferðamannastraumi spáð til Íslands. Hvaða hættur fylgja svo miklum vaxtarverkjum í einni atvinnugrein? Straumhraði ferðamanna var svo mikill að við tókum tæpast eftir flóðinu. Greinin er að stórum hluta sjálfsprottin og ríkið hefur lítið komið við sögu. Ég trúi því að við berum gæfu til að finna aðferðir til að skattleggja greinina skynsamlega og jafnframt vernda ferðamannastaði gegn átroðningi. Ég hef mestar áhyggjur af því að mínir áköfu og duglegu landar eigi eftir að skjóta yfir markið í fjárfestingu í gistihúsnæði og annarri þjónustu. Vita þeir sem nú reisa gistirými um væntanlegt fram ­ boð annarra af slíku rými? Hve traust ar Svissneskur hagfræðingur sagði mér fyrir nokkrum árum að þar­ lendu styrkjakerfi yrði best lýst með þeim orðum að svissneskir skattborgarar skreyttu Alpana með blómlegum bændabýlum til að gleðja auga ferðamannsins. Þetta er landslagsarkitektúr, sagði prófessorinn. Ég hef mestar áhyggjur af því að mínir áköfu og duglegu landar eigi eftir að skjóta yfir markið í fjárfestingu í gistihúsnæði og annarri þjónustu. Vita þeir sem nú reisa gistirými um væntanlegt framboð annarra af slíku rými? um áramÓt www.mp.is Ármúli 13a / 540 3200 Við óskum viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári með þökkum fyrir viðskiptin á liðnu ári. Starfsfólk MP banka. Gleðilega hátíð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.