Frjáls verslun - 01.11.2014, Page 73
FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 014 73
mun framleiða úr rækjuskeljarmjöli sem
við flytjum að mestu inn. Þetta er verkefni
sem við reiknum með að muni taka þrjú til
fjögur ár að koma í fullan rekstur.
Ef draumar okkar rætast um þessi áform
verður þetta mjög stór vinnu staður hér,
með kannski 50 starfsmenn og þriðj ung
urinn af þeim með háskólamenntun. Þetta
er ekki í höfn en unnið að þessu hörðum
höndum. Það er búið að fjárfesta um 1,0
milljarð króna í Genís hf. og meiru fé
verður bætt við verkefnið. Mörgum finnst
þetta kannski djarft en svona er þróunar
vinna og frumkvöðlastarfsemi. Þau verða
mörg vonbrigðin í svona ferli – en ef þú
sérð ljós fyrir enda gangnanna er ekkert
um annað að ræða en halda áfram. Við
erum hér í Siglufirði með fjóra starfsmenn
og fjóra í Reykjavík eins og ég nefndi
en við munum bæta við áður en langt
um líður nokkrum til viðbótar hér. Við
keyptum allar fasteignir hér í Siglufirði
af Síldar vinnslunni sem áður tilheyrðu
Sílda verksmiðjum ríkisins, alls um 12
þúsund fermetra, og gerum ráð fyrir því að
uppistaða þessara fasteigna fari undir fram
leiðslu Genís í framtíðinni. Ég hef reyndar
ekki gert mikið af því að útskýra fyrir
fólki um hvað þetta snýst en við værum
að sjálf sögðu ekki að setja alla þessa pen
inga og alla þessa vinnu í þetta verkefni ef
við værum ekki nokkuð sannfærð um að
vera með hlut í höndunum sem geti orðið
eitthvað stórt og mikilvægt.“
á FjóRða milljaRð í FRam-
kvæmdiR
Róbert segir að þegar allt sé talið séu
fjárfestingar á hans vegum í Siglufirði
komnar á fjórða milljarð króna. Um 1
milljarður hafi farið í líftækninni, um 1,4
milljarðar í nýja hótelið, Sigló hótel, og að
veitingahúsin tvö, Hannes boy og Rauðka,
hafi kostað um 600 milljónir.
„Að auki settum við 300 milljónir inn
í sjálfseignarfélagið sem við stofnuðum
með sveitarfélaginu til að standa að upp
byggingu skíðasvæðisins og nýja golf vall
arins. Þetta er því orðið nokkuð á fjórða
milljarð sem verið er að fjárfesta í þessu
samfélagi. Það var ekkert einfalt hvernig
við ættum að haga málum með sveitar
félaginu varðandi skíðasvæðið og golfvöllinn
en duttum niður á þessa lausn að stofna
um það sjálfeignarstofnunina Leyningsás,
sem sveitarfélagið lagði þessar eignir sínar
inn í auk þessara 300 milljóna sem við
leggjum til á móti til uppbyggingar á fram
kvæmdatímanum. Af þeim eru þegar um 200
milljónir farnar í nýja golfvöllinn.“
Ætlaði að verða
ljósmyndari
Ferill Róberts er ævintýralegur. Hann ætlaði að verða ljósmyndari en álpaðist
í stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum. Hann varð fyrst þekktur í íslensku við
skipta lífi þegar hann tók þátt í frægri hallarbyltingu í SH á sínum tíma.
R
óbert Guðfinnsson er
það sem hinir ensku
mæl andi myndu kalla
„a selfmade man“,
maður sem hafist hefur
til vegs og virðingar
algjörlega á eigin forsendum. Hann fæddist
í Reykjavík 1957, sonur íslenskrar stúlku
og Bandaríkjamanns. „Ég kom hingað til
Siglufjarðar sem kornabarn og ólst fyrstu
tvö árin upp hjá móðursystur minni eða
þar til móðir mín, Steinfríður Ólafsdóttir,
og Guðfinnur Grétar Aðalsteinsson,
fóstur faðir minn, komu og tóku við mér.
Hér ólst ég upp og fer, eins og gengur og
gerist um unga stráka í sjávarplássi, að
vinna í fiski, fer á trillur, á línubáta og svo á
togara. Ég fór í iðnskóla og ætlaði mér að
verða ljósmyndari. Svo álpaðist ég til þess,
eftir að hafa verið að skemmta mér, að skrá
mig í stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum
og var þar mættur viku síðar. Kláraði þar
stýrimanninn en fór svo í Tækniskólann og
tók útgerðartækni. Þegar ég útskrifaðist
þaðan var ég kominn með barn og konu
og stóð frammi fyrir tveimur kostum: Að
fara aftur til Vestmannaeyja eða heim til
Siglufjarðar. Mér tókst að telja konu mína