Frjáls verslun - 01.11.2014, Page 107
FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 014 107
þekkingu og metnað, enda
bera viðskiptavinir mikið
traust til fyrirtækisins. Annars
kom mér mest á óvart hversu
mikil þróunarvinna er unnin
hjá Mannviti, en félagið hefur
fjárfest fyrir um 600 mill jón
ir króna í þróun verk efna
síðastliðin þrjú ár. Við byrj uð
um að sjá árangur fjár fest inga
okkar á þessu ári og hafa þær
skilað félaginu öflugum verk
efnum á árinu,“ segir Sigur
hjörtur og heldur áfram:
„Eftir erfitt rekstrarár í fyrra
héldum við áfram aðhaldi í
rekstri og breyttum áherslum
í markaðssókn. Félagið skilar
ágætis hagnaði á árinu, t.d.
gekk markaðssókn okkar í
Noregi eftir og tólf mánaða
markmiði var náð á átta
mánuðum.
UMSKIPTI Í
REKSTRINUM ÁRIð 2014
Eyjólfur Árni tekur í sama
streng og segir umskipti í
rekstr inum árið 2014 hafa verið
mikil frá árinu 2013, sem hafi
verið erfitt ár. „Verkefni sem
við áttum von á frestuðust, en í
rekstri eins og okkar tekur tíma
að bregðast við slíku. Við vorum
einnig í mikilli verk efna þróun
og á sama tíma að hasla okkur
völl á nýjum mörk uðum með
tilheyrandi kostn aði. Okkur
til mikillar ánægju skilaði sú
fjárfesting sér á árinu, sem telst
býsna gott á markaði eins og
okkar. Ráð gjafar markaðurinn
er í eðli sínu íhalds samur; þeir
sem kaupa þjónustu okkar hér
heima eða erlendis skipta ekki
oft um ráð gjafa.“
Annað sem stendur upp úr á
árinu að beggja mati er flutn
ingur höfuðstöðvanna í glæsi
legt og hentugt húsnæði við
Urðar hvarf í Kópavogi, en þá
komst öll starfsemi Mannvits
á höfuðborgarsvæðinu undir
sama þak.
HóTELBYGGING,
KÍSILVER OG JARðHITI
Stærstu verkefni Mannvits
árið 2014 voru undirbúningur
hótelbyggingar við Hörpu,
kísilvers Thorsil í Helguvík
og ýmis viðfangsefni fyrir
Landsvirkjun og Orkuveitu
Reykjavíkur. Utan landstein
anna undirbjó Mannvit
endur nýjun fimm jarðganga í
Noregi og virkjun og hitaveitu
í Ung verjalandi. Auk þess er
fyrirtækið með jarðhitaverkefni
í Afríku og á Filippseyjum.
Þótt vöxtur fyrirtækisins sé
mestur utan Íslands er stefn
an að vaxa einnig á innan
landsmarkaði. Þeir nefna aukin
verkefni í Noregi í náinni
fram tíð, sem tengjast smávirkj
unum og almennri þjónustu við
sveitarfélög og ríkið og þá fyrst
og fremst í vega og gangagerð,
raforkudreifingu o.fl.
„Mannvit á meirihluta í
fyrir tæki í Þýskalandi sem
við viljum koma að í aukn um
mæli, en það hefur undan
farna áratugi sérhæft sig í
nýtingu lághita. Einnig viljum
við auka þjónustu við jarðhita
og almenna þjónustu í Ung
verjalandi og stefnum að sama
markmiði í Bretlandi, þar sem
við þjónustum m.a. neyslu
vatns iðnaðinn, sem miklir
vaxtar möguleikar eru fólgnir
í,“ segja Eyjólfur Árni og
Sigurhjörtur.
GæðA STJóRN UNAR
STAðLAR OG SKORTUR
Á KONUM
Þeir eru stoltir af stefnu fyrir
tækisins í umhverfismálum,
sem sé með gæða, umhverfis
og öryggisstjórnunarvottun
samkvæmt alþjóðlegum gæða
stjórn unarstöðlum og segjast
setja sér raunhæf markmið í
þeim efnum. Tekist hafi að draga
úr pappírsnotkun um 35% frá
árinu 2013 og 42% starfs manna
hafi nýtt sér sam göngu styrk sem
Mannvit var fyrst fyrirtækja á
Íslandi til að bjóða upp á fyrir
nokkrum árum.
„Mannvit hefur einnig sett
sér jafnréttisstefnu, en það
felst stöðug vinna í því að laða
konur til starfa á ráðgjafar
mark aðnum. Núna eru konur
um fjórðungur nemenda í
tækni greinum og okkur þykir
miður að ná ekki því hlutfalli í
fyrirtækinu. Hjá fyrirtækjum í
okkar atvinnugrein er því verk
að vinna innan dyra en einnig
að styðja við bakið á háskólum
landsins.“
Eyjólfur Árni og Sigurhjörtur
segja skipta miklu máli að
huga að nærumhverfi fyrir
tækisins. Þeir skoði reglulega
hvað Mannvit gefi sam félag
inu umfram lög og reglur.
„Félagið var með þeim fyrstu
sem fengu vottun sem fyrir
myndar fyrirtæki í góðum
stjórnar háttum. Síðastliðinn
nóvembermánuð fengum við
viður kenninguna endurnýjaða,
fjórða árið í röð, og erum afar
stoltir af því. Við erum stöðugt
vakandi fyrir með hvaða hætti
við getum stutt við bakið á
ýmsum félagasamtökum.“
GERT RÁð FYRIR
BATNANDI AFKOMU
Spurðir hvernig þeir meti
horfurnar á næsta ári svara
þeir einum rómi að þær séu
nokkuð góðar, rekstraráætlun
geri ráð fyrir tæplega 20%
aukningu samstæðunnar í tekj
um á milli ára og einnig batn
andi afkomu. „Undanfarin ár
hefur verið skortur á stór um
langtímaverkefnum innan
lands en við sjáum hilla undir
að það breytist árið 2015
þegar framkvæmdir tengdar
orkufrekum iðnaði sem og
vinna við hótelið við Hörpu
hefjast. Þá eru þróunarverkefni
okkar erlendis byrjuð að skila
árangri og áætlanir gera ráð
fyrir að erlend velta samstæð
unnar verði um 35% af
heildarveltu á árinu.“
Allt lítur því út fyrir að nýi
maðurinn í brúnni taki við
batnandi búi. En ætlar hann
einhverju að breyta eða halda
áfram á sömu braut og fyrir
rennari hans í starfi?
„Mannvit er yfir 50 ára gamalt
fyrirtæki, sem segir manni að
félagið hefur gert margt rétt.
Það hefur alltaf verið vel rekið
og skilað eigendum sínum
góðri arðsemi. Ég mun því
halda áfram á þeirri braut en
með nýjum mönnum verða
allt af einhverjar breytingar á
áherslum og hvernig fyrirtækið
nálgast ákveðna þætti,“ svarar
Sigurhjörtur Sigfússon, forstjóri
Mannvits frá og með 1. janúar
næstkomandi.
Við rekum fyrirtæki
sem er með dóttur og
aðildarfélög í fimm
löndum utan Íslands.
Okkur er þó ljóst að
alltaf má gera betur og
horfum stöðugt fram
á veginn með það í
huga.“
MANNVIT
Velta: 5 milljarðar króna.
Forstjóri: Eyjólfur Árni Rafnsson.
Stjórnarformaður: Jón Már Halldórsson.
Stefnan í einni setningu: Mannvit leggur áherslu á trausta og
faglega ráðgjöf sem byggist á góðri reynslu og víðtækri þekkingu.
Fjöldi starfsmanna: Um 350.
Mannvit flutti
í glæsilegt
húsnæði við
Urðar hvarf í
Kópavogi, en
þá komst öll
starfsemi Mann-
vits á höfuð-
borgarsvæðinu
undir sama
þak.