Frjáls verslun - 01.11.2014, Síða 131
FRJÁLS VERSLUN 11 tbl. 014 131
1. Telur þú að fjármagns
höft in verði loksins afnumin
á árinu 2015?
– Já, fyrri hluta árs.
2. Hugmyndir eru uppi um
að setja á svonefndan út
gönguskatt í tengslum við
afnám hafta – hvernig líst
þér á þá leið?
– Mikilvægast er að sátt náist
við kröfuhafana um fram-
kvæmdina.
3. Hvað heppnaðist best á
árinu 2014 og hverjar eru
horf urnar á árinu 2015.
– Sem formaður Samtaka
versl unar og þjónustu get ég
ekki annað en nefnt niðurfell-
ingu á almennum vörugjöld -
um, sem er gríðarlegt
fram fara spor til einföldunar á
kerfi nu, og fríverslunarsamn-
ing inn við Kína, sem þarfnast
þó aðeins lagfæringar. Sáttin
á vinnumarkaði á milli ASÍ og
SA sem leiddi til mun meiri
hag vaxtar en áætlanir gerðu
ráð fyrir sem koma öllum til
góða. Það er ekki hægt annað
en að nefna einnig skuldaleið -
rétt inguna, hvaða skoðun sem
menn hafa á henni, þá gekk
framkvæmdin ótrúlega vel.
Horfurnar eru góðar en ég hef
þó áhyggjur af kjarasamn-
ingum miðað við yfirlýsingar.
Ef afnám hafta gengur vel er
ég virkilega bjartsýn.
4. Hvaða mistök voru gerð
í efnahagsstjórninni á árinu
2014?
– Mistök er ansi sterkt orð
en það sem ég hefði viljað
sjá á síðasta ári er lækkun
á á lögum á atvinnulífið s.s.
að lækkun tryggingargjalds
haldist í hendur við lækkun á
atvinnu leysi. Vextir þurfa að
lækka mun meira til hagsbóta
fyrir heimilin og fyrirtækin.
5. Hvað er þér minnisstæð
ast frá árinu sem er að líða?
– Ég var kosin formaður SVÞ
á árinu og hlýt því að nefna
það. Einnig fylgdu því blendn-
ar tilfinningar að dóttirin
flutti til Spánar í háskólanám,
gleði yfir velgengni hennar
en ótrúlega erfitt að sleppa
hendinni.
1. Telur þú að fjármagns
höftin verði loksins afnumin
á árinu 2015?
– Já, ég hef fulla trú á því að
Bjarna Benediktssyni og hans
fólki takist að klára þetta verk -
efni á næsta ári.
2. Hugmyndir eru uppi um
að setja á svonefndan út
gönguskatt í tengslum við
afnám hafta – hvernig líst
þér á þá leið?
– Ég treysti vel þeim sem fara
með þessi mál og til þess að
velja þá leið sem er til mestra
hagsbóta fyrir íslenska þjóð til
framtíðar.
3. Hvað heppnaðist best á
árinu 2014 og hverjar eru
horfurnar á árinu 2015?
– Framkvæmd skuldaleiðrétt-
ingarinnar tókst vel og
ánægju legt að sjá að tekist
hefur að ná tökum á rekstri
ríkis sjóðs. Ef vel verður á
hald ið ætti verðbólga að vera í
lág marki og hagvöxtur að taka
við sér. Með því eykst kaup-
máttur sem er mikilvægt og
hagsmunamál fyrir laun þega
– en auðvitað er þetta allt sam-
spil hagstjórnar og ákvarð ana
tekinna á vinnumarkaði.
4. Hvaða mistök voru gerð
í efnahagsstjórninni á árinu
2014?
– Það eru kannski ekki bein
mistök en ég hefði viljað sjá
af nám fjármagnshaftanna á
þessu ári sem er að líða.
5. Hvað er þér minnisstæð
ast frá árinu sem er að líða?
– Sumarið lék við okkur Aust-
firðinga eins og fyrri daginn
og átti ég margar yndislegar
stundir með fjölskyldu og vin-
um. Í október var mér treyst
fyrir formennsku í Samtökum
fyrirtækja í sjávarútvegi og er
það mikill heiður en um leið
mikil áskorun að takast á við
það skemmtilega og krefjandi
verkefni.
Margrét Sanders.
„Vextir þurfa að lækka
mun meira til hags
bóta fyrir heimilin og
fyrirtækin.“
„Ef vel verður á hald ið
ætti verðbólga að vera
í lág marki og hagvöxt
ur að taka við sér.“
Margrét Sanders, formaður Samtaka verslunar og
þjónustu og fram kvæmda stjóri hjá Deloitte:
Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi:
Horfurnar eru góðar
Höftin leyst á næsta ári
Jens Garðar Helgason.