Són - 01.01.2004, Page 130
KRISTJÁN EIRÍKSSON130
Eins og vænta má er persónugerving helsta stílbragð Dýrólínu í
hringhendum þeim er hún kveður um náttúruna og fetar hún þar í
spor fyrri snillinga þessarar skáldskapargreinar eins og Sigurðar Breið-
fjörðs, Þorsteins Erlingssonar og Stephans G. Stephanssonar. Allt
verður lífi gætt og heimullegt. Vindar „greiða“ skýin og geislar sólar
„lauga“ tinda fjallanna.
Næmt auga skáldkonunnar fyrir landinu, árstíðaskiptum og lit-
brigðum jarðarinnar kemur hvergi betur fram en í meitluðum hring-
hendum hennar þar sem lifandi náttúran skartar í blæbrigðum sínum.
Jafnast þær vísur hennar fyllilega á við það sem fegurst hefur verið
kveðið undir þessu þaulræktaða formi eða hvar getur nærfærnari
lýsingu á næturkyrrð að vori eftir gróðrarskúrir dagsins en í þessari
vísu hennar:
Allt er hljótt um haf og sund,
hulið óttuskýlu,
tárast nótt en grátin grund
gengur rótt til hvílu.
Dýrólína er eitt fjölmargra íslenskra skálda sem ekki gat sakir hvers-
dagsamsturs lagt stund á þann skáldskap sem hugurinn stóð til. Aftur
á móti varð hún meistari lausavísunnar, þeirrar kveðskapargreinar
sem allir gátu lagt rækt við í dagsins önn þótt tíma skorti til annars
konar skáldskapariðkunar.
HEIMILDIR
HANDRIT
Dýrólína Jónsdóttir. 28. janúar 1918. Bréf til Margeirs Jónssonar á
Ögmundarstöðum. HSk 1304 4to. Sendibréfasafn Margeirs Jónsson-
ar, kennara og rithöfundar á Ögmundarstöðum.
Dýrólína Jónsdóttir. 1920 eða 1921. Bréf til Margeirs Jónssonar á
Ögmundarstöðum, ódagsett en líklega frá 1920 eða 1921. HSk 1304
4to. Sendibréfasafn Margeirs Jónssonar, kennara og rithöfundar á
Ögmundarstöðum.
Dýrólína Jónsdóttir. 28. janúar 1922. Bréf til Margeirs Jónssonar á
Ögmundarstöðum. HSk 1304 4to. Sendibréfasafn Margeirs Jónsson-
ar, kennara og rithöfundar á Ögmundarstöðum.
Dýrólína Jónsdóttir. 15. júní 1925. Bréf til Margeirs Jónssonar á