Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Blaðsíða 19
19
Deal og Peterson (1999) greina frá mikil-
vægi þess að skólastjórnendur móti metn-
aðarfulla skólamenningu sem beinist að
nemendum og námi þeirra. Í samræmi við
hefðbundnar skilgreiningar á skólamenn-
ingu leggja þeir áherslu á að móta á mark-
vissan hátt gildi og hefðir sem ýta undir
metnað nemenda í námi. Höfundar líta á
Skólamenning og námsárangur
Amalía Björnsdóttir, Baldur Kristjánsson og Börkur Hansen
Háskóla Íslands, Menntavísindasviði
1 Höfundar þakka RANNÍS fyrir veittan styrk til rannsóknarinnar og Námsmatsstofnun fyrir upplýsingar um
samræmd próf.
Í þessari grein er kastljósinu beint að skólamenningu og tengslum hennar við námsárangur.1
Kennarar og deildarstjórar í átta heildstæðum grunnskólum víðs vegar um landið svöruðu
spurningalista þar sem þeir mátu staðhæfingar sem lýstu ákveðnum þáttum í skólamenn-
ingu. Svör kennaranna voru þáttagreind og reyndist unnt að greina á milli þrenns konar
ríkjandi þátta. Þeir eru: a) völd og áhrif, b) nýbreytni, c) forysta og stefnufesta. Þegar stað-
hæfingar sem tengdust áherslum skólamenningar í kennslu voru þáttagreindar komu fram
tveir þættir: annar beindist að a) samanburði og hinn að b) skilningi. Jákvæð fylgni (r=0,37)
var milli kennslu þar sem áhersla var á samanburð og þess að skólamenning einkenndist af
keppni um völd og áhrif. Á sama hátt mældist jákvæð fylgni milli kennsluhátta þar sem lögð
var áhersla á skilning og skólamenningar sem einkenndist af nýbreytni (r=0,34) og forystu og
stefnufestu (r=0,39). Skoðuð var fylgni allra þessara þátta í skólamenningunni við árangur
nemenda á samræmdum prófum í 4., 7. og 10. bekk það ár sem spurningalistarnir voru
lagðir fyrir og tvö ár þar á eftir. Í ljós kom jákvæð fylgni (r=0,66 og r=0,48) milli árangurs
í 4. og 7. bekk og áherslu á skilning í kennsluháttum. Í 7. og 10. bekk komu fram jákvæð
tengsl milli námsárangurs og áherslu á forystu og stefnufestu (r=0,32 og r=0,31).
Hagnýtt gildi: Í niðurstöðum þessarar rannsóknar koma fram vísbendingar um tengsl
skólamenningar og árangurs nemenda á samræmdum prófum. Sérstaklega hafa þættirnir
kennsla – skilningur og forysta og stefnufesta tengsl við námsárangur. Reynist unnt að stað-
festa þessar niðurstöður í frekari rannsóknum hafa þær mikið hagnýtt gildi fyrir mótun metn-
aðarfulls skólastarfs hér á landi.
Ritrýnd grein
Tímarit um menntarannsóknir /
Journal of Educational Research (Iceland) 8, 2011, 19.-37.