Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Side 28
28
Amalía Björnsdóttir, Baldur Kristjánsson og Börkur Hansen
Tengsl milli þátta í menningu
og munur milli skóla
Þar sem notaður er hornréttur snúningur
(varimax) á þættina er ekki innbyrðis
fylgni á milli þátta í sömu þáttagreiningu.
Í 4. töflu má sjá fylgni á milli þátta úr þátta-
greiningunum tveimur. Jákvæð fylgni er á
milli áherslu á kennslu – samanburð og þátt-
arins sem snýst um völd og áhrif kennara.
Það þýðir að ef þátttakendur lýsa kennslu
sinni sem samkeppnis- og samanburðar-
miðaðri eru þeir einnig líklegri til að lýsa
menningu skólans þannig að hún snúist
um völd og áhrif. Jákvæð fylgni er einnig
á milli þáttarins kennsla – skilningur og
þáttanna áhersla á nýbreytni og forystu og
3. tafla Þáttagreining á mati starfsmanna á staðhæfingum sem taka til áherslna í námi og
kennslu*.
Kennsla –
samanburður
(alfa=0,78)
Kennsla –
skilningur
(alfa=0,64)
h2
Í þessum skóla er mikið rætt við nemendur um mikilvægi
þess að fá háar einkunnir
0,788 0,145 0,642
Í þessum skóla er lögð áhersla á samkeppni milli nemenda
um góðan árangur í námi
0,747 0,036 0,560
Í þessum skóla tölum við mikið um einkunnir
0,698 -0,059 0,491
Í þessum skóla er mikið talað um að nemendur nái góðum
árangri til að vera í hópi þeirra bestu
0,697 0,038 0,488
Í þessum skóla eru nemendur sem ná góðum árangri hafðir
sem fyrirmyndir
0,624 0,116 0,403
Í þessum skóla er megináhersla lögð á skilning, ekki bara
að nemendur leggi hlutina á minnið
-0,134 0,676 0,475
Í þessum skóla er mjög mikil áhersla lögð á að nemendur
leggi hart að sér
0,232 0,676 0,510
Í þessum skóla segjum við nemendum að það sé í lagi að
gera mistök svo fremi sem þeir læri af þeim
-0,007 0,605 0,367
Í þessum skóla er mikið lagt upp úr því að tengja það sem
gert er í skólanum við það sem nemendur þekkja utan hans
0,030 0,610 0,373
Í þessum skóla ítrekum við oft við nemendur að það eigi að
vera gaman að læra
0,118 0,493 0,257
Í þessum skóla eru miklar væntingar gerðar til nemenda um
árangur
0,450 0,474 0,428
*Hátt gildi á staðhæfingu þýðir að viðkomandi var sammála. Þáttum var snúið hornrétt (varimax).