Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Blaðsíða 41
41
Samfélag jafningja: Uppbygging lærdómssamfélags í leikskóla
eiginleikum – skólagreindum – sem vinni
saman á flókinn hátt og þurfi að byggja
upp með námi og þjálfun. 1. mynd sýnir
skólagreindirnar níu og samspil þeirra.
Sýn skóla
Samkvæmt líkani MacGilchrist og fé-
laga endurspeglar sýn skólans siðferðis-
og heimspekigreind hans. Þessar tvær
greindir samtvinnast og þótt þær standi
að mörgu leyti fyrir það sem mætti kalla
hið óáþreifanlega í skólastarfi eru þær
birtingarmynd menningar, orðræðu og
gildismats sem einkennir skólasamfélag-
ið. Við mótun lærdómssamfélags verður
að ígrunda sýn starfsmanna á lífið og
skólastarfið. Mikilvægt er að allir átti sig
á eigin gildum og hvað þurfi að setja í for-
gang en séu um leið tilbúnir að vinna með
skólasamfélaginu að því að móta sýn sem
allir geta gert að sinni og eru reiðubúnir til
að vinna eftir (Schaps, 2003; Sigrún Aðal-
bjarnardóttir, 2007).
Að mati MacGilchrist og félaga ein-
kennist skólasamfélag sem býr yfir sterkri
heimspekigreind af því hversu djúpt
starfsmenn kafa undir yfirborðið og rýna
í skoðanir sínar og tilfinningar. Þeir spyrja
spurninga sem eru mikilvægar fyrir sam-
félagið í heild og leitast við að átta sig á
hvers vegna þeir kenna og læra á ákveð-
inn hátt (Senge, 1990/2006). Meðlimir
slíks samfélags temja sér að hlusta hver
á annan, hlusta á hið ósagða og skynja
þarfir sem endurspeglast í líkamstjáningu
(Barth, 2002). Með því sýna þeir umhyggju
og fá tækifæri til að setja sig í spor annarra
(Noddings, 2005; Sigrún Aðalbjarnardótt-
ir, 2007). Um leið skilja starfsmenn skólans
að þeir eru þátttakendur í einhverju sem
er mun stærra en þeir sjálfir og skynja sig
sem hluta af stærri heild (Elmor, 2002;
Senge, Scharmer, Jaworski og Flowers,
2004).
Stofnanagreind
Sýnin Aðgerðir
● Þessi greind tryggir að
sýnin og aðferðirnar vinna
saman
● Samhengisgreind
● Samvirknigreind
● Aðgerðagreind
● Tilnningagreind
● Ígrundunargreind
● Kennslufræðigreind
● Siðferðisgreind
● Heimspekigreind
1. mynd. Skólagreindirnar (byggt á MacGilchrist o.fl., 2004, bls. 148).