Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Side 60
60
Rannsóknin beinist að íslenskum skólabyggingum á grunnskólastigi með það fyrir augum
að greina breytingar í hönnun þeirra með hliðsjón af nýjum straumum á sviði byggingar-
listar, menntavísinda, skólastarfs og tækni. Þættir sem einkenna umhverfi og byggingar
nýlega hannaðra skóla eru gaumgæfðir í ljósi nýrra kennsluhátta og opnara skólastarfs við
upphaf nýrrar aldar. Farið er yfir hönnun fimm skóla, sem allir hafa risið á þessari öld, með
áherslu á skipan kennslurýma, opin rými og samkomusali, rými fyrir list- og verkgreina-
kennslu, skólasöfn eða upplýsingaver, vinnustöðvar kennara, útikennslu, tengsl við nær-
samfélag og undirbúning hönnunar. Skólarnir í þessari athugun eru fimm nýjustu skólarnir
í úrtaki tuttugu grunnskóla sem teymi um námsumhverfi tekur fyrir í viðamikilli rannsókn
um starfshætti í grunnskólum. Teymið skipa tveir fræðimenn á Menntavísindasviði Há-
skóla Íslands, tveir skólastjórar og arkitekt með reynslu af hönnun skólabygginga1. Gögn-
um var safnað með vettvangsathugunum og myndatökum, viðtölum við valda starfsmenn
og nemendur og athugun á teikningum og öðrum tæknilegum gögnum. Niðurstöður sýna
greinileg umskipti í hönnun skólabygginga. Sveigjanleiki, flæði, opin rými, samskipti og
teymisvinna virðast leiða hönnun nýlegra skóla. Klasar skólastofa eða opin rými, gagnsæ
og hreyfanleg mörk og almannarými til margra nota fyrir breytilega hópa virðast leysa
hefðbundna skipan kennslustofa meðfram þröngum göngum af hólmi.
1 Auk höfunda tóku þátt í rannsókninni þau Árný Inga Pálsdóttir, skólastjóri Víkurskóla í Reykjavík, Helgi Grímsson,
skólastjóri Sjálandsskóla í Garðabæ, og Egill Guðmundsson, arkitekt, ARKIS. Rannsóknin er hluti af rannsókninni Starfs-
hættir í grunnskólum (http://www.skrif.hi.is/starfshaettir) og er styrkt af RANNÍS, Rannsóknarsjóði Háskóla Íslands,
Rannsóknarsjóði Háskólans á Akureyri, Nýsköpunarsjóði námsmanna og Vinnumálasjóði.
Hönnun skólabygginga
í deiglu nýrra kennsluhátta
Íslenskar grunnskólabyggingar við upphaf 21. aldar
Torfi Hjartarson og Anna Kristín Sigurðardóttir
Háskóla Íslands, Menntavísindasviði.
Ritrýnd grein
Tímarit um menntarannsóknir /
Journal of Educational Research (Iceland) 8, 2011, 60.-79 .