Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Page 69
69
Hönnun skólabygginga í deiglu nýrra kennsluhátta
rýmum þar sem geta verið 40 til 120 nem-
endur á aldursbili sem í eldri skólanum
spannar eitt til þrjú ár og yngri skólanum
þrjú til fjögur ár. Rýmin eru, eins og gefur
að skilja, miklu stærri en hefðbundnar
kennslustofur. Í eldri skólanum, skóla 2,
eru kennslurýmin brotin að hluta í tvennt,
m.a. með vinnurýmum kennara og næðis-
herbergi fyrir 15 til 20 nemendur. Hægt er
að vinna með marga hópa, t.d. fjóra hópa
af hefðbundinni stærð, tvo hvorum megin
í rýminu, þegar það þykir henta (sjá 3.
mynd). Í skóla 5, yngri skólanum sem er
enn í byggingu, var leitast við að lagfæra
vissa agnúa sem þóttu vera á eldri bygg-
ingunni, svo sem með því að láta næðis-
herbergi rúma fleiri nemendur, eða sem
nemur hefðbundnum bekk, og bjóða upp
á aukinn sveigjanleika með rennitjöldum,
felliveggjum og færanlegum tjaldturnum
fyrir smærri hópa. Kennslurýmin eru
aflöng og auðvelt að greina þau sundur í
þrjú til fjögur smærri svæði.
Þrjár myndir (1., 2. og 3.) endurspegla
breytingar á skipan og grunngerð kennslu-
rýma eins og þær birtast í rannsókn okkar.
Hver mynd dregur fram dæmigerð ein-
kenni og er ekki byggð á neinum einum
skóla. Hefðbundin skipan kennslustofa er
rædd í upphafi þessarar greinar og sýnd
með 1. mynd. Tilbúið dæmi um klasa
kennslustofa þar sem kennarar geta átt
mikið samstarf, nýtt sameiginleg gang-
svæði, lítil herbergi í tengslum við stof-
urnar eða opnað dyr og veggi á milli stofa
er sýnt á 2. mynd. Tilbúnu dæmi um opið
kennslurými sem rúmar stóran hóp eða
hópa nemenda og marga starfsmenn er
lýst á 3. mynd.
3. mynd. Opið kennslurými fyrir stóran hóp eða hópa nemenda ásamt rýmum til sérstakra
nota og opnum svæðum fyrir allt skólasamfélagið. Tilbúið dæmi byggt á úrtaki íslenskra grunn-
skólabygginga.