Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Síða 89
89
**p<0,01 *p<0,05
Kyngervi raunvísinda: Námsval og aðstæður kvenna í hefðbundnum karlagreinum við Háskóla Íslands
reynsla og Ástundun og reyndist áreiðan-
leiki þeirra vera yfir 0,8 á fyrstu þremur og
0,75 á álagi í námi en rétt yfir 0,6 á þeim
tveimur síðastnefndu sem innihalda fæst
atriði.
Heildarniðurstöður hvers þáttar sem
tengist aðstæðum í námi voru bornar
saman eftir kyni. Á 3. mynd koma fram
meðaltalsniðurstöður svara á hverjum
þætti. Til að kanna hvort um marktækan
mun á svörum kvenna og karla væri að
ræða var notað t-próf. Ekki er munur
á svörum karla og kvenna hvað menn-
inguna í heild snertir og eru nemendur
frekar jákvæðir, bæði hvað snertir reynslu
af kennurum og kennslustundum og jafn-
ingjum, svo og möguleika á hagnýtingu og
tækifæri til að nýta eigin reynslu í náminu.
Tilhneiging er hjá körlum að meta trú á
eigin færni meiri og þó ekki hafi komið
fram marktækur munur á kvarðanum í
heild kom í ljós þegar einstaka spurningar
voru skoðaðar að munurinn var konum í
óhag: Ég stend mig vel í náminu í samanburði
við samnemendur mína t(129)=-2,11, p<0,05,
Ég hef jafngóða þekkingu og aðrir nemendur
á viðfangsefni námsins t(129)=-3,13, p<0,01,
Ég hef gott sjálfstraust í náminu t(129)=-2,14,
p<0,05 og Flestir samnemendur mínir eiga
auðveldara með að ná tökum á viðfangsefni
námsins en ég t(129)=3,40, p<0,01. Einnig
kom í ljós að konur upplifa meira álag í
námi (t(129)=3,07, p<0,01). Bæði konum
og körlum þykir mikilvægt að sýna góða
ástundun og ganga vel í náminu.
Viðhorf til kynja
Gerð var leitandi þáttagreining (e. exp-
loratory factor analysis) á spurningum sem
snertu viðhorf til kynja innan námsgrein-
anna. Í ljós komu fimm meginþættir; sam-
anlagt skýrðu þættirnir 62,79% af dreifingu
1. mynd
2. mynd
3,0
3,1
3,6
2,3
3,1
2,5
2,8
2,9
1,9
2,9
1 2 3 4 5
Ég fékk hvatningu frá skyldmennum (öðrum
en foreldrum) til að velja háskólanám tengt
raunvísindum.*
Ég fékk hvatningu frá vinum til að velja nám
tengt raunvísindum í háskóla.
Foreldrar hvöttu mig til að velja greinar
tengdar raunvísindum í háskóla.**
Náms- og starfsráðgjafi hvatti mig til að fara
í háskólanám í greinum tengdum
raunvísindum.*
Kennari í framhaldsskóla hvatti mig til að
fara í háskólanám í greinum tengdum
raunvísindum.
Karlar
Konur
3,8
3,9
4,3
2,4
3,0
4,7
4,6
3,3
3,3
4,1
2,6
3,3
4,0
4,1
1 2 3 4 5
Ég fékk hvatningu frá foreldrum við nám í
stærðfræði í framhaldsskóla.**
Ég fékk hvatningu frá kennara við nám í
stærðfræði í framhaldsskóla.**
Ég var með góða kennara í stærðfræði í
framhaldskóla.
Það voru ekki nægilega margir stærðfræðiáfangar í
boði í framhaldsskóla.
Við val á námsbraut í framhaldsskóla var ég ekki
meðvituð/meðvitaður um inntökuskilyrði í þeirri
grein sem ég stunda nám í nú.
Mér fannst stærðfræði skemmtileg í
framhaldsskóla.**
Mér gekk vel í stærðfræði í framhaldsskóla.**
Karlar
Konur
2. mynd: Upplifanir nemenda af stærðfræði í framhaldsskóla.