Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2011, Side 90
90
Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir og Sif Einarsdóttir
breytanna. Þættirnir fimm fengu heitin
Hlutfall kvenna í náminu, Jafnrétti og virðing,
Fyrirmyndir/stuðningur, Konur og tækni og
Kyngervi námsins. Áreiðanleiki þáttanna
reyndist vera yfir 0,8 nema á þeim tveim
síðastnefndu (0,68 og 0,57) sem innihalda
fæst atriði. (sjá nánar Þuríði Ósk Sigurjóns-
dóttur, 2011). Á 4. mynd koma fram með-
altalsniðurstöður svara á hverjum þætti.
Þátturinn sem fékk heitið Hlutfall kvenna í
náminu metur hversu sammála nemendur
eru því að fjölga eigi konum og styðja að-
gerðir í þá átt, því hærra sem meðaltalið er,
þeim mun meira sammála eru nemendur.
Ekki er marktækur munur milli karla og
kvenna og benda svörin til þess að nem-
endur telji þetta ekki sérstaklega mikil-
vægt. Hvað varðar jafnrétti og virðingu, þar
sem fram kemur hvort nemendur telji að
konum, jafnt sem körlum, sé sýnd virðing
og viðurkenning og hvort jafnrétti ríki í
náminu, kom fram að konur telja síður en
karlar að virðing, viðurkenning og jafn-
rétti ríki milli kynjanna innan námsins
(t(125)=3,1, p<0,01). Því lægra sem meðal-
talið er, þeim mun meira sammála eru
nemendur um að virðing, viðurkenning
og jafnrétti ríki innan námsgreinarinnar.
Þær telja einnig mikilvægara en karlar að
hafa kennara af báðum kynjum í náminu,
samanber þáttinn Fyrirmyndir/stuðningur
(t(125)=2,22, p<0,05). Bæði konur og
karlar eru frekar ósammála því að tækni-
og raungreinar henti konum ekki og ekki
mælist marktækur munur milli kynja á
þættinum Konur og tækni. Vísbendingar
eru þó um að karlar telji síður en konur
að tækni- og raungreinar henti konum þar
sem meðaltal karla er hærra en kvenna á
þessum þætti. Ekki er munur milli kynja á
því hvort þau telji sig eiga heima í náms-
greininni vegna karllægra staðalmynda
**p<0,01 *p<0,05
3. mynd
4. ynd
4,0
3,1
3,3
3,2
3,5
3,7
3,9
3,0
2,9
3,5
3,5
3,7
1 2 3 4 5
Ástundun
Hagnýting og reynsla
Álag í námi*
Trú á eigin færni
Jafningjamenning
Kennslumenning
Karlar
Konur
2,4
1,9
3,5
2,3
2,4
2,4
2,2
3,0
1,8
2,4
1 2 3 4 5
Kyngervi námsins
Konur og tækni
Fyrirmyndir/stuðningur*
Jafnrétti og virðing**
Hlutfall kvenna í náminu
Karlar
Konur
3. mynd: Aðstæður í námi: Meðaltal svara eftir kyni.